Bókasafn

Magnús Ingvar Ágústsson

22.7.2010 Fréttir : Teiknimyndasögusýning

Sýning á teiknimyndasögum eftir Magnús Ingvar Ágústsson í bókasafni Norræna hússins, neðri hæð. Sýningin stendur frá 19. júlí – 13. ágúst og er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins kl. 12-17 alla virka daga og um helgar.

Lesa meira
 
dagblod

1.7.2010 Bókasafn : Lokað á bókasafninu 5.júlí -9.júlí

Bókasafnið í Norræna húsinu verður lokað frá mánudeginum 5. júlí til og með föstudeginum 9. júlí vegna pússningar á gólfparketi í safni og sal.


Gestir bókasafnsins eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem geta skapast vegna þessa.  Hægt verður að skila safngögnum í skilakassa við dyrnar að bókasafninu alla dagana.

Lesa meira
 
sarablaedel

23.6.2010 Fréttir : Ný bók eftir spennusagnahöfundinn Söru Blædel kynnt í Norræna húsinu

 Föstudaginn 25. júní næstkomandi kemur út á vegum forlagsins Uppheima bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana. 

Lesa meira
 
jupu

21.5.2010 Bókasafn : Nýjar finnskar bækur

Barnabækurnar um Tatu og Patu eru mjög vinsælar í Finnlandi og núna er hægt að fræðast um stafrófið í bókinni Tatun ja Patun oudot aakkoset. Einnig er mælt með bókunum um Heinähattu ja Vilttitossu. Fyrir alla sem hafa gaman af teiknimynda- sögum erum við með nýjar flotta finnskar teiknimyndasögur: Eero eftir Petteri Tikkanen, Jupu: baa- rien nainen eftir Johanna Tolonen og Minerva: Jääkarhun sydän eftir Juba.

Lesa meira
 
børnik

14.5.2010 Bókasafn : Matreiðslubækur fyrir börn og unglinga

Nýlega fékk bókasafn Norræna hússins danskar matreiðslubækur fyrir börn og unglinga, sem eru þó einnig áhugaverðar fyrir mömmur og pabba. Um er að ræða Prinsessekogebogen, Børn i køkkenet, Heibergs vilde dessertcirkus og fyrir unga fólkið Mad uden mor

Lesa meira
 
Karl-Ove-Knausgaard-02-KRN

7.5.2010 Bókasafn : Karl Ove Knausgård-Í Norræna húsinu

Norski rithöfundurinn Karl Ove Knausgård er væntanlegur í Norræna húsið 26. maí næstkomandi. í maí munu, auk Knausgårds, Bjarni Bjarnason rithöfundur og Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur taka þátt í dagskránni. Tiril Myklebost lektor í norsku við Háskóla Íslands er kynnirDagskráin hefst klukkan 20.00 og er öllum opin.

Lesa meira
 
Sigrid_Undset_young-(2)

7.5.2010 Viðburðir Tónleikar : Kabarett: Hin unga Sigrid Undset

kl. 19:00 25.maí. 

Kabarett eftir Kristi Kinsarvik byggður á ævi Sigrid Undset Fram koma Kristi Kinsvarvik og Øystein Johnsen. Kabarettinn hefur verið fluttur á bókmenntahátíðum, í menningarhúsum og leikhúsum víða um Noreg auk þess sem kabarettinn er settur reglulega upp í Bjerkebæk, húsinu þar sem Sigrid Undset bjó, fyrir fullu húsi áhorfenda. Aðgangur er ókeypis - Allir velkomnir.

 

Lesa meira
 
Gustav1

4.5.2010 Bókasafn : Ungt fólk á hnattrænum vinnumarkaði 7. maí kl. 12.15-13.30

Gustav Fridolin, blaðamaður og lýðháskólakennari, fv. þingmaður, kynnir bók sína Blåsta! Nedskäringsåren som formade en generation (2009). Sigríður Ingibjörg Ingadóttir alþingiskona, starfandi formaður félags- og tryggingamálanefndar Alþingis og fulltrúi í Norðurlandaráði, ræðir við Gustav Fridolin og setur bók hans í samhengi við aðstæður hér á landi fyrir og eftir efnahagshrunið 2008. Dagskráin verður á sænsku. Allir velkomnir.

Lesa meira
 
oksanen2

30.3.2010 Bókasafn : Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 hlaut rithöfundurinn Sofi Oksanen frá Finnlandi fyrir bókina "Puhdistus".


Lesa meira
 



Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica