Sögustund á sænsku
Laugardaginn 30. janúar kl. 15.00 mun Åsa Bergdahl vera með sögustund á sænsku fyrir börn í kjallara bókasafns Norræna hússins, Hellinum. Börnin heyra sögur um Emil, Línu, Krakel Spektakel og aðrar sænskar sögur í notalegu umhverfi bókasafnsins. Öll börn á Íslandi, sem eru hrifin af Svíþjóð og sænskum barnabókum eru velkomin.



