Hvað er rafbók?

Hvað er rafbók?

rafbaekur-001Rafbók er bók sem hefur verið yfirfærð á rafrænt form þannig að hægt er að lesa textann beint af tölvu, fartölvu, síma eða sérstökum rafbókalesara.  Rafræn hljóðbók spilast í gegnum internetið.  Hlustað er á upplestur úr rafrænni hljóðbók af internettengdri tölvu eða síma.  Hljóðbókin hleðst ekki niður á harðadiskinn. Ekki er hægt að hlusta á streymandi hljóðbók á MP3 spilara.

 

  • Rafbækur á þessari síðu eru á sænsku.
  • Útlánatími á bók er 28 dagar frá þeim degi er henni er hlaðið niður. Niðurhal er takmarkað við 2 rafbækur á viku, rafbækur til lestrar og eða streymandi hljóðbækur. Þegar útlánatíma lýkur hverfur bókin úr tækinu og hljóðbækur hverfa af síðunni “Mina ljudböcker”.

     

 

Hvernig er hægt að fá rafbækur að láni ?

1.      Hlaða niður forriti (läsarprogram) sem er ókeypis. Forritin eru: Adobe Digital Editions, MobiPocket Reader og Microsoft Reader.  Það forrit  sem hlaðið er niður fer eftir því á hvaða tæki á að lesa.

Þú finnur forritin hér: http://www.elib.se/library/get_install.asp?lib=947

 

2.      Eftir að forriti hefur verið hlaðið niður er leitað að bók í rafbókasafninu.

      http://www.elib.se/library/default.asp?lib=947 

3.      Veljið bókina og smellið á “Låna boken”.

4.      Veljið “format” (t.d. EPUB) og skráið inn númerið á bókasafnskortinu.

5.      Smellið síðan á “Hämta hem bok”.

6.      Smellið á tengilinn “Klicka här för att påbörja nedladdningen”.  Niðurhal hefst og að því loknu getur þú byrjað að lesa á tölvunni eða fært bókina yfir á rafbókalesara.

 

Hvernig er hægt að hlusta á rafrænar hljóðbækur?

  1. Hljóðbókasafn: http://www.elib.se/library/default_ljud.asp?lib=947
  2. Veljið bókina sem á að hlusta á.  Smellið á “Lyssna på boken” neðst á síðunni.
  3. Skráið inn númerið á bókasafnskortinu númer og smellið á “Lyssna på boken