Um bókasafnið
Miðstöð norrænna bókmennta
Bókasafn Norræna hússins er eitt sinnar tegundar á landinu, á Norðurlöndunum og líklega í heiminum. Það hóf starfsemi árið 1969, ári eftir að húsið var vígt. Sérstaða safnsins er að þar er eingöngu að finna bækur á Norðurlandamálum eftir norræna höfunda. Bækur á íslensku eru ekki í safninu en þýðingar á íslenskum höfundum á önnur Norðurlandamál eru þar að sjálfsögðu.
Þýðingar af öðrum tungumálum en Norðurlandamálum eru ekki í safninu.
Bókasafnið er skráð í norskan gagnagrunn, Mikromarc, sem hægt er að leita í á heimasíðunni undir: skrár safnsins.
Safninu er fyrst og fremst ætlað að vera safn norrænna samtímabókmennta og sígildra norrænna höfunda. Í safninu eru skáldsögur og fræðibækur fyrir börn og fullorðna, tímarit, hljóðbækur,tónlist á geisladiskum, kvikmyndir á DVD og VHS og nótur.
Frá árinu 1976 hefur safnið lánað út grafíkmyndir eftir norræna listamenn.
Bókasafnið á allnokkurt nótnasafn yfir norræna tónlist. Þær eru skráðar í spjaldskrá sem staðsett er í kjallara.
Í safninu er aðstaða til lestrar, en þess ber þó að geta að bókasafn Norræna hússins er frábrugðið öðrum söfnum að því leyti að það er staðsett í miðju menningarhúss og það má því eins búast við að t.d. tónlist hljómi í bókasafninu frá sal hússins.
Barnadeild safnsins er í kjallara og gengur undir heitinu “Barnahellir” í daglegu tali.
Þjónusta
Þeir sem náð hafa 18 ára aldri geta gerst lánþegar.
Lánþegaskírteini kostar 1500 kr. og gildir í ár.
Bækur, tímarit og tónlist eru lánuð út í 30 daga.
Kvikmyndir eru lánaðar út í 7 daga.
Grafíkmyndir eru lánaðar út í 3 mánuði. Sjá nánar: Artótek
Einstaklingar, bókasöfn og skólar úti á landi geta fengið safnefni að láni.
Leikskólar, grunnskólar og aðrir hópar geta pantað heimsókn í safnið.
Í safninu eru 3 tölvur til afnota fyrir gesti.
Nánar upplýsingar veittar í síma: 551 7090 eða á netfangið: nordlib@nordice.is


