Um Norræna Húsið
Hönnun og þekking
Staður innblásturs og gagnrýnnar hugsunar.
Norræna húsið í Reykjavík er hannað af hinum heimsþekkta finnska arkitekt Alvar Aalto. Norðurlöndin fimm, Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð stóðu að byggingu hússins sem var vígt 24. ágúst 1968. Húsið er eitt af síðustu verkum Alvar Aalto á annars löngum og umfangsríkum ferli. Frá upphafi hefur húsið haft það hlutverk að vera vettvangur fyrir kynningu á norrænni menningu og norrænt samstarf.
Manngerð þúst í miðri mýri
Bygging Norræna hússins er ekki stór en staðsetning þess ber vitni þeirri næmu tilfinningu sem Aalto hafði fyrir landslagi staðar. Í stað þess að berast mikinn á tyllir hann húsinu á manngerða þúst í miðri mýrinni og formar síðan litla tjörn norðan við húsið sem kallast á við stærri tjarnirnar tvær í átt að miðbænum. Með því móti dregur hann fram náttúruleg sérkenni bæjarstæðisins og gagnkvæm tengsl manns og náttúru, byggingar og staðar. Sjálf byggingin er að grunni til lágreist og hvítmáluð.
Upp úr flötu þaki ferhyrningslaga jarðhæðarinnar rís hins vegar allsérstakt og áberandi form sem klætt er dökkfjólubláum glerjuðum flísum. Inn af anddyrinu er skáli í miðju hússins sem nýtur dagsbirtu um kringlótt ofanljós sem dreift er yfir loftið. Frá skálanum er gengið inn í bókasafn hússins, inn í tónlistar- og ráðstefnusalinn, inn í skrifstofuálmuna og ekki síst inn í veitingastofu hússins sem opnast með miklu útsýni yfir miðbæinn að Esjunni til norðurs.
Bókasafn Norræna hússins
Í bókasafninu opnast rýmið á óvæntan hátt þar sem lögun þess og lofthæð markast af strýtuforminu upp úr miðju byggingarinnar. Miðhluti gólfsins er tekinn niður og leiðir að neðri hæð byggingarinnar, en birtan streymir á örlátan hátt niður um ofanljós í loftinu sem formað er líkt og kristall sem stendur upp úr strýtunni á áberandi hátt. Bókasafnið hefur að geyma um þrjátíu þúsund titla. Þar er auk bóka hægt að fá lánaðar hljóðbækur, myndbönd, geisladiska, hljómplötur, nótur, DVD myndir og grafík myndir eftir norræna listamenn. Við hlið bókasafnsins er tónlistar- og ráðstefnusalurinn. Óreglulegt form hans og viðarklæddir veggirnir stuðla að góðum hljómburði hvort sem um er að ræða tónlist eða talað mál. Alvar Aalto hannaði innanstokksmuni í flest allar byggingar sínar og mörg húsgagna hans, lampa og annarra muna eru framleidd enn í dag.
Í Norræna húsinu eru allar innréttingar, lampar og nær öll húsgögn eftir Aalto.
.


