Beint í leiðarkerfi vefsins.
Leiðsögn verður um sýninguna Con-Text, í sýningarsal Norræna hússins, sunnudagana 13. og 20.mars kl. 15.00. AÐgangur ókeypis, Allir velkomnir.
Opin ráðstefna Lions hreyfingarinnar um áhrif kreppunnar á börn og ungmenni verður haldin í Norræna húsinu í dag kl. 16.30-18.30. Aðgangur ópkeypis, allir velkomnir.
Norskt bókmenntakvöld, sem vera átti í kvöld, fellur niður vegna forfalla höfundanna Karl Ove Knausgård og Erlend Loe. Bókakvöldið verður þess í stað haldið miðvikudaginn 26. maí og verður dagskrá auglýst nánar síðar.
Lesa meira
Tilraunalandið sýnir náttúruvísindin í nýju samhengi, á skemmtilegan og fjörugan hátt með áherslu á gagnvirkni og upplifun allra skilningarvita.
Hægt er að bóka tíma í tilraunalandið í síma Norræna hússins 5517030 og á netfangið thuridur@nordice.is
Bókunum þurfa að fylgja fjöldi gesta, símanúmer, netfang og æskilegur komutími.
Verið velkomin!
Lesa meira
Í tengslum við námskeiðið Norræn öndvegisverk í bókmenntum sem kennt er á námsleið í norrænum fræðum við Háskóla Íslands er blásið til málþings í Norræna húsinu um efnið þar sem gagnrýnendur, rithöfundar og fræðimenn ræða meðal annars um kanónu-hugtakið.
Lesa meira
15:15 Tónleikasyrpan í Norræna húsinu 2010 býður upp á úrval tónleika í upphafi árs og fram á vor. Meðal flytjenda eru s.s. Nína Margrét Grímsdóttir, Sigurður Flosason ...
UNA SVEINBJARNARDÓTTIR, fiðla, og TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR, píanó,
frumflytja verk eftir Unu Sveinbjarnardóttur og flytja verk eftir Alfred Schnittke.
Mánudaginn 1. mars kl. 20 verður ljósmyndasýningin Veður í Fókus opnuð í anddyri Norræna hússins. Hér er á ferðinni samsýning félaga í Fókus sem er félag áhugaljósmyndara. Norræna húsið er opið fyrir almenning alla daga frá kl. 12 til 17. Sýningin stendur til 15. mars nk.
Fatahönnunarsýning tveggja íslenskra fatahönnunarnema frá Kolding, School of Design í Danmörku. B.A. verkefni verða til sýnis auk endurhönnunar á íslenska faldbúningnum annars vegar og á grænlenskum skinnjakka hinsvegar. Auk lokaafraksturs verkefnanna verða til sýnis ljósmyndir og ferilsbækur sem gefa innsýn inn í hönnunarferlin. Sýningin hefst 16.mars og er til 31.mars.