Beint í leiðarkerfi vefsins.
Grænlenska hljómsveitin Nanook mun spila á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Sveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur síðan haldið tónleika um öll Norðurlöndin. Nánari upplýsingar og Miðaverð verður auglýst síðar.
Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna
Laugardaginn 11. september kl. 14.00 gefst áhugafólki á öllum aldri
tækifæri til að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði.
Í sumar hefur eldhúsgarðurinn við Norræna húsið vaxið og dafnað í sumarblíðunni. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant
Miðvikudaginn 1. september býður Alþjóðamálastofnun og rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands til hádegisfundar með Dr. Jyrki Iivonen, yfirmanni upplýsingadeildar finnska varnarmálaráðuneytisins. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 12.
Lesa meira
Gáman (DK) kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu 1.9 kl. 21.00. Húsið opnar kl. 20.00 og miðasala er við inngang. Meginviðfangsefni Gáman tríósins er að tvinna saman gamla norræna alþýðutónlist og nýjar tónsmíðar. Gáman snýr upp á menningararfinn á nýstárlegan hátt og er útkoman engu lík.
Danski kórinn Gimsingers kemur frá náttúruperlunni Struer við Limafjörðinn á vestur Jótlandi.
Gimsingers er blandaður kór sem samanstendur af 22 meðlimum. Efnisskráin er fjölbreytt blanda af sígildum lögum og ryþmískri tónlist.
Enginn aðgangseyrir.
Lesa meira
Í sýningarrými á fyrstu hæð Norræna hússins er sýning um aðdraganda og tilurð Listahátíðar í Reykjavík 1970. Það var Ivar Eskeland, fyrsti forstjóri Norræna hússins, sem átti hugmyndina að Listahátíð í Reykjavík.
Sýningin er frá 12.maí til 30.júní.
Stavanger í Noregi hefur gefið Norræna húsinu 6 metra háan sandkassa hannaðan af teiknistofunni Happy Space í Svíþjóð. Sandkassinn var fyrst vígður þegar Stavanger var ein af menningarborgum Evrópu. Nú rís hann upp á lóð Norræna hússins, fyrir alla að njóta. Áætlað er að vígja sandkassann og útisvæðið 15.maí.
Norræna húsið er einn af stoltum styrktaraðilum RIFF í ár. Vegleg dagskrá verður að vanda í Norræna húsinu á hátíðinni s.s. Talent Lab, smiðjur fyrir börn og að sjálfsögðu kvikmyndirnar. Fylgist með á www.riff.is og www.norraenahusid.is
Haldið verður upp á 100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar í Norræna húsinu mánudaginn 23. ágúst 2010. Fram kemur fjöldi listamanna ásamt því að flutt verða erindi úr sögu íslenskrar tónlistar.
Lesa meira