Fréttir

nanoook_smal_top

2.7.2010 Fréttir : Nanook (GRL) með tónleika í Norræna húsinu 31.ágúst

Grænlenska hljómsveitin Nanook mun spila á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Sveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur síðan haldið tónleika um öll Norðurlöndin. Nánari upplýsingar og Miðaverð verður auglýst síðar.

Lesa meira
 
peach-jam-m

26.8.2010 Fréttir : Fjöregg: Úr jörðu og upp á borð: Sultukeppni fyrir börn 

Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna

 Laugardaginn 11. september kl. 14.00 gefst áhugafólki á öllum aldri

tækifæri til að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði.

 Í sumar hefur eldhúsgarðurinn við Norræna húsið vaxið og dafnað í sumarblíðunni. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant

Lesa meira
 
haskoli-Islands-logo

30.8.2010 Fréttir : Opinn fyrirlestur: Finland - a Survival Strategy of a Small Country

Miðvikudaginn 1. september býður Alþjóðamálastofnun og rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands til hádegisfundar með Dr. Jyrki Iivonen, yfirmanni upplýsingadeildar finnska varnarmálaráðuneytisins. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 12.

Lesa meira
 
gaman

24.8.2010 Viðburðir Tónleikar : Nýstárleg alþýðutónlist: Tríó Gáman (DK) 1.9

Gáman (DK) kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu 1.9 kl. 21.00. Húsið opnar kl. 20.00 og miðasala er við inngang. Meginviðfangsefni Gáman tríósins er að tvinna saman gamla norræna alþýðutónlist og nýjar tónsmíðar. Gáman snýr upp á menningararfinn á nýstárlegan hátt og er útkoman engu lík.

Lesa meira
 
danskur-kor

22.6.2010 Fréttir : Danskur kór í Norræna húsinu

Danski kórinn Gimsingers kemur frá náttúruperlunni Struer við Limafjörðinn á vestur Jótlandi.

Gimsingers er blandaður kór sem samanstendur af 22 meðlimum. Efnisskráin er fjölbreytt blanda af sígildum lögum og ryþmískri tónlist.


Enginn aðgangseyrir.

Lesa meira
 
Listahatid---Dagskra---00---Kapa

6.5.2010 Viðburðir Sýningar : Sýning um upphaf og aðdraganda Listahátíðar 1970

Í  sýningarrými á fyrstu hæð Norræna hússins er sýning um aðdraganda og tilurð  Listahátíðar í Reykjavík 1970.  Það var Ivar Eskeland, fyrsti forstjóri Norræna hússins, sem átti hugmyndina að Listahátíð í Reykjavík.

Sýningin er frá 12.maí  til 30.júní.

Lesa meira
 
sandkassinn-copy

8.4.2010 Viðburðir Barnadagskrá : Skjólgóði sandkassinn

Stavanger í Noregi hefur gefið Norræna húsinu 6 metra háan sandkassa hannaðan af teiknistofunni Happy Space í Svíþjóð. Sandkassinn var fyrst vígður þegar Stavanger var ein af menningarborgum Evrópu. Nú rís hann upp á lóð Norræna hússins, fyrir alla að njóta. Áætlað er að vígja sandkassann og útisvæðið 15.maí.

Lesa meira
 
riff-2010

23.8.2010 Forsíðu fréttir : RIFF í Norræna húsinu

Norræna húsið er einn af stoltum styrktaraðilum RIFF í ár. Vegleg dagskrá verður að vanda í Norræna húsinu á hátíðinni s.s. Talent Lab, smiðjur fyrir börn og að sjálfsögðu kvikmyndirnar. Fylgist með á www.riff.is og www.norraenahusid.is

Lesa meira
 
Bo-skort-100-ara-afmaeli-islensku-hljomplotunnar---A

17.8.2010 Fréttir : 100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar í Norræna Húsinu

Haldið verður upp á 100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar í Norræna húsinu mánudaginn 23. ágúst 2010. Fram kemur fjöldi listamanna ásamt því að flutt verða erindi úr sögu íslenskrar tónlistar.

Lesa meira
 
h1jq_OLOFsquare300dpi_2

11.8.2010 Fréttir : Ólöf Arnalds með tónleika

Nú er komið að myndbandinu við næstu smáskífu, Crazy car, sem verður frumsýnt þessu sinni. Í laginu syngur Ólöf dúett með myndlistarmanninum og fyrrum glypspopparanum Ragnari Kjartanssyni, sem einnig kemur fram í myndbandinu, en hann leikstýrir því ásamt Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. Tónleikarnir í Norræna Húsinu hefjast kl. 21:00.  Verð: 1.500

Lesa meira
 
Sunna

4.8.2010 Fréttir : Jazzhátíð Reykjavíkur 14. – 29. ágúst 2010

Dagskrá hátíðarinnar í Norræna húsinu

Sjá nánari upplýsingar um hátíðina á www.reykjavikjazz.is


Lesa meira
 
artfart-logo

3.8.2010 Fréttir : ArtFart: Hvað er hátíð?

Með Jesper De Neergaard, Johanna Tuukanen og Ragnheiður Skúladóttir


Þrír mikilsvirtir stjórnendur norrænna hátíða munu ræða efni sem varða spurninguna; Hvað er hátíð?

Hvenær: 13. ágúst kl 15:00
Hvar: Norræna Húsið
Tími: 2 klukkustundir
Verð: Ókeypis

Lesa meira
 
LOCAL

30.7.2010 Fréttir : Alþjóðlega leiklistarhátíðin LÓKAL verður haldin í Reykjavík dagana 1. til 5. september

Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á nýjar og spennandi leiksýningar frá Norðurlöndunum. Að þessu tilefni verður haldið málþing í samvinnu við Norræna húsið um nýjustu strauma og stefnur í norrænu leikhúslífi.

Lesa meira
 
nanoook_smal_top

2.7.2010 Fréttir : Nanook (GRL) með tónleika í Norræna húsinu 31.ágúst

Grænlenska hljómsveitin Nanook mun spila á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Sveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur síðan haldið tónleika um öll Norðurlöndin. Nánari upplýsingar og Miðaverð verður auglýst síðar.

Lesa meira
 
27062010058

1.7.2010 Fréttir : Tilraunalandiðleggur í'ann

Nú komið að því að kynna Tilraunalandið víða um landið og er Landsvirkjun aðalstyrktaraðili ferðarinnar. Það er ekki ofsögum sagt að nánast öll börn á höfuðborgarsvæðinu þekki Tilraunaland Norræna hússins og Háskóla Íslands. Sýningin hefur slegið í gegn og mörg þúsund manns hafa gert sér ferð niður í Vatnsmýrina.

Lesa meira
 
bygdalivid-V

1.7.2010 Fréttir : Bygdarlívið: Randi Ward sýnir í anddyri Norræna hússins 31/7- 21/8

Randi Ward er rithöfundur og ljósmyndari, fædd í Bandaríkjunum 1982 í Vestur Virginíu.  Hennar fyrsta verk, ljósmynda og ljóðabókin, meditations on salt, var gefin út í Færeyjum 2007. Ljósmyndir og ljóð Randi hafa birst víða þar á meðal í Listasafni Færeyja, Gallery SO.ZO,  Graffiti Magazine og víðar.

Lesa meira
 
iki_plakat

30.6.2010 Fréttir : IKI - með níu röddum getur allt gerst

IKI verður með tónleika í Norræna húsinu kl. 20:00 á menningarnótt.


"Fallegar laglínur, skemmtilegar, lifandi, fallegar, grimmar sögur. Allt spunnið á staðnum! Í tónlistarsköpun IKI nota söngkonurnar bæði innsæi sitt og hvatvísi.  Ungu söngkonurnar eru níu talsins og eiga rætur í Noregi, Finnlandi, Danmörku og á Íslandi. "

Lesa meira
 
silfurberg

29.6.2010 Fréttir : Hljómsveitin Silfurberg með hádegistónleika 30.júní

Hljómsveitin Silfurberg samanstendur af sex einstaklingum, söngkonu og fimm hljóðfæraleikurum, en leiðir þeirra lágu saman í Tónlistarskóla FÍH. Í sumar ætlar hljómsveitin að flytja norræn þjóðlög í eigin útsetningum fyrir gesti og gangandi víðs vegar um Reykjavík. Silfurberg spilar í Norræna húsinu kl. 12.00 30.júní. 

Lesa meira
 
h1jq_OLOFsquare300dpi_2

23.6.2010 Fréttir : Ólöf Arnalds heldur tónleika

Ólöf Arnalds heldur tónleika í Norræna Húsinu þriðjudaginn 29.júní næstkomandi, þá fyrstu sem hún hefur haldið hér á landi í þónokkurn tíma.

 Nýrrar plötu Ólafar, “Innundirskinni” er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún kemur út á vegum One Little Indian útgáfunnar í september. 

Lesa meira
 
ensemble2009_600

23.6.2010 Viðburðir Tónleikar : Elokuu ensemble frá Finlandi með tónleika

Finnska kammersveitin, Elokuu - ensemble, verður með tónleika í Norræna húsinu 3.ágúst kl. 20.00.


Um er að ræða hóp sem hefur spilað saman í 10 ár. Þau hafa ferðast víða og gengið vel í alþjóðlegum keppnum.


Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.

Lesa meira
 
Gargond5_20

22.6.2010 Fréttir : Friðlandið í Vatnsmýrinni – friðland í miðri borg.

Friðlandið í Vatnsmýrinni – friðland í miðri borg.

24.06 kl. 10.00- 12:00 í Norræna húsinu

 Norræna húsið efnir til málþings um tækifærin sem felast í friðlandi í miðri borg og möguleikum til endurbóta á núverandi ástandi.


Lesa meira
 
jupu

21.5.2010 Bókasafn : Nýjar finnskar bækur

Barnabækurnar um Tatu og Patu eru mjög vinsælar í Finnlandi og núna er hægt að fræðast um stafrófið í bókinni Tatun ja Patun oudot aakkoset. Einnig er mælt með bókunum um Heinähattu ja Vilttitossu. Fyrir alla sem hafa gaman af teiknimynda- sögum erum við með nýjar flotta finnskar teiknimyndasögur: Eero eftir Petteri Tikkanen, Jupu: baa- rien nainen eftir Johanna Tolonen og Minerva: Jääkarhun sydän eftir Juba.

Lesa meira
 
LOCAL

24.8.2010 Fréttir :  Pallborðsumræður í Norræna húsinu á LÓKAL-alþjóðlegri leiklistarhátíð

Pallborðsumræðna um norrænt samtímaleikhús í Norræna húsinu, laugardaginn 4. september, kl.13:00-15:00.  Steinunn Knútsdóttir, leiklistarkona stjórnar umræðum.

Lesa meira
 
noturimagine

30.4.2010 Fréttir : HÁSPENNA! 15:15 Tónleikasyrpan


Ingólfur Vilhjálmsson bassa- og klarinettuleikari

 Á efnisskrá eru einleiksverk fyrir klarinettur með elektróník:

 Áki Ásgeirsson - 306° frumflutningur,

Páll Ívan Pálsson - “KhPff” frumflutningur,

Davíð Brynjar Franzson - Elimination of Metphysics (B)

Pei-Yu Shi- Zwei singende Klarinetten

Rodericdk de Man- Ecoute- ecoute

Klas Thorstensson- Spans

 Almennt miðaverð er kr. 1500 en kr. 750 fyrir eldri borgara, öryrkja og nemendur

 

Lesa meira
 
logo_press_package_web2

30.8.2010 Fréttir : YOU ARE IN CONTROL: Alþjóðleg ráðstefna skoðar tækifæri sem felast í stafrænni framtíð

Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í fjórða sinn í Reykjavík dagana 1. og 2. október næstkomandi þar sem rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum. Tilgangurinn er að sameina þá sem starfa í skapandi greinum, markaðsfólk og útgáfufyrirtæki á samvinnuþýðan máta og ræða þær breytingar sem hafa átt sér stað í menningarmiðlum.

Lesa meira
 
f-forsidu

27.8.2010 Sýningar : Facing the Climate: Loftslagsbreytingar frá skoplegu sjónarhorni

Hópur 25 sænskra skopmyndateiknara komu með húmoríska en jafnframt ógnvekjandi sýn á loftlagsbreytingarnar í tilefni af loftlagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn í desember 2009.

Myndirnar verða til sýnis í Norræna húsinu 11. september til 3. október. 

Lesa meira
 
breikdans

26.8.2010 Viðburðir Barnadagskrá : Fjöregg: Breikdans - Freestyle Phanatix frá Danmörku 15/9 kl. 10 og 14

Norræna húsið býður nemendum, 10 – 12 ára og 13 – 15 ára að taka þátt í stuttu og skemmtilegu námskeiði í breikdansi. Námskeiðið er liður í Fjöreggi – Barnamenningu í Norræna húsinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Lesa meira
 
icelandic-love

25.8.2010 Fréttir : Opið fyrir umsóknir í Norrænu menningargáttina

Nú er opið fyrir umsóknir í menningar og listaáætlun Norrænu menningargáttarinnar.  Umsóknarfrestur er til og með 15. september. Menningar- og listaáætlunin veitir styrki til verkefna á sviði allra menningar- og listgreina. Áætlunin veitir styrki til fagfólks og áhugafólks sem starfar að listum og menningarmálum.

Mikilvægustu matsþættir  eru gæði  verkefnis og nýsköpun.


Lesa meira
 
dovile

24.8.2010 Viðburðir Sýningar : DOVILE TOMKUTE –Tvær hliðar raunveruleikans.

Grafíklistamaðurinn Dovile Tomkute  opnar sýningu sýna Tvær hliðar raunveruleikans í Norræna húsinu 27/8. Sýningin er í anddyrinu og stendur til 12/9.

Lesa meira
 
Sumars8ning_2010-01

22.7.2010 Fréttir : Sumarsýning:
Hljómar vel

Sýningin saman stendur af gjöfum til Norræna hússins. Hlutirnir tengjast allir tónlist á einn eða annan hátt.
Lúður var gjöf til Norræna hússins 1975 frá Moras ungdomsspelmanslag í Svíþjóð.

Lesa meira
 
Magnús Ingvar Ágústsson

22.7.2010 Fréttir : Teiknimyndasögusýning

Sýning á teiknimyndasögum eftir Magnús Ingvar Ágústsson í bókasafni Norræna hússins, neðri hæð. Sýningin stendur frá 19. júlí – 13. ágúst og er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins kl. 12-17 alla virka daga og um helgar.

Lesa meira
 
sarablaedel

23.6.2010 Fréttir : Ný bók eftir spennusagnahöfundinn Söru Blædel kynnt í Norræna húsinu

 Föstudaginn 25. júní næstkomandi kemur út á vegum forlagsins Uppheima bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana. 

Lesa meira
 
SapbubblorDSC_0145greinalisti

3.5.2010 Fréttir : Áhugasamir aðstoðarmenn óskast

Norræna húsið leitar að áhugasömum og öflugum aðstoðarmönnum/ leiðbeinendum vegna sýningarinnar Tilraunalandið og Náttúruleikgarðs Norræna hússins. Verkefnið er liður í átaksverkefni til atvinnusköpunnar. Til að geta sótt um vinnuna þarf viðkomandi að vera á skrá hjá vinnumálastofnun.  Lesa meira
 
SapbubblorDSC_0145

4.3.2010 Fréttir : Tilraunalandið

Tilraunalandið sýnir náttúruvísindin í nýju samhengi, á skemmtilegan og fjörugan hátt með áherslu á gagnvirkni og upplifun allra skilningarvita.

Gestir eru beðnir um að skrá sig í Tilraunalandið á netfangið nh@nordice.is og í síma 551 7030

Lesa meira
 
Hørsholm-Koret-2

21.5.2010 Viðburðir Tónleikar : Danskur kór heldur tónleika í Norræna húsinu

7.júní kl. 20.30

Kórinn heitir "Hørsholm kórinn" og er eins og nafnið bendir til frá Hørshólmi, sem er bær á austanverðu Norður-Sjálandi, um 20 km. fyrir norðan Kaupmannahöfn.

Kórinn var stofnaður 1896 og var þá karlakór en hefur verið blandaður kór síðan 1962.

 Undirleik í nokkrum verkum annars Örn Magnússon.

 

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Lesa meira
 
vigdis

6.4.2010 Fréttir : Afmælisráðstefna Vigdísar Finnbogadóttur

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu dagana 15.-17. apríl 2010 í tilefni af áttræðis afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur og mun hún fara fram við Háskóla Íslands og í Norræna húsinu.

Lesa meira
 

25.5.2010 Fréttir : Viltu spyrja frambjóðendur um stefnu þeirra í leik- og grunnskólamálum Reykjavíkurborgar?

Svæðadeild Félags leikskólakennara og Kennarafélag Reykjavíkur stendur fyrir opnum fundi um leik- og grunnskólamál með fulltrúum framboðanna.

Fundarstjóri verður María Ellingsen leikkona.

Leik- og grunnskólakennarar eru hvattir til að mæta og spyrja þá sem vilja stjórna Reykjavíkurborg næstu fjögur árin spjörunum úr. 26. maí kl. 17:30 – 18:30 í Norræna húsinu í Reykjavík

Lesa meira
 
rautt-og-blatt-ljost

9.3.2010 Viðburðir Sýningar : Sameiginlegt sameinast

Fatahönnunarsýning tveggja íslenskra fatahönnunarnema, Öglu og Sigrúnar, frá Kolding, School of Design í Danmörku. Sýningin hefst 16.mars og er til 18.apríl.

Lesa meira
 
fjoregg_heimasidubordi

10.3.2010 Viðburðir Barnadagskrá : Fjöregg: Barnamenning í Norræna húsinu 2010

Norræna húsið leggur sérstaka áherslu á börn og barnamenningu árið 2010. Sérstök barnadagskrá, Fjöregg Norræna hússins, verður kynnt í byrjun apríl og hefur hún að geyma fjölbreytta viðburði fyrir börn á öllum aldri. Við munum bjóða upp á sýningar, tónleika og margvíslegar smiðjur út árið fyrir börnin.

Lesa meira
 
sandkassinn-copy

10.5.2010 Fréttir : Vatnsmýrarhátíðin 15.maí kl. 14.00

Háskóli Íslands og Norræna húsið blása til hátíðarhalda 15.maí n.k þegar Tilraunalandið flytur út á lóð Norræna hússins. Margt verður á boðstólum fyrir smáfólkið s.s. atriði úr Bláa gullinu, Lúðrasveitin Svanur blæs í lúðra, Blikandi Stjörnur taka lagið, tilraunaeldhús verður við gróðurhúsið, skjólgóði sandkassinn vígður og margt margt fleira. Komum saman í Norræna húsið!

Lesa meira
 
nordurlond-fanar

7.4.2010 Fréttir : Ferða-og dvalarstyrkir KKN

Norræn- Eystrasalts ferða- og dvalarstyrkjaáætlunin fyrir menningu er opin fyrir umsækjendur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Eystrasaltslöndin taka þátt í fjármögnun og ákvarðanatöku varðandi áætlunina ásamt Norðurlöndunum. Umsóknartími er frá 31.mars - 24.apríl. 

Lesa meira
 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica