Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skyggnst verður í skuggalegri hluta menningararfs þjóðarinnar í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. febrúar kl. 20:30. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju flytja þjóðlög og önnur verk íslenskra tónskálda þar sem þjóðsagnaarfurinn er viðfangsefni.
Lesa meira
Miðvikudagur 8.febrúar kl. 20.00 Karen Thastum segir frá verkum sínum og í bland við grænlenskan trommudans. Miðaverð 1000 kr.
Lesa meira
Iðar þú í skinninu að vinna við menningu og listir? Hefur þú brennandi áhuga á Norður-Atlantshafslöndunum sem og Norðurlöndunum? Þá er vinna í menningarhúsinu NordatlantensBrygge kannski rétta starfið fyrir þig!
Við leitum að umsjónarmanni menningarmála og listasýninga sem sér um skipulagningu,uppsetningu og frágang hinna mismunandi listasýninga hússins, en listamennirnir koma aðallega frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi.
Lesa meira
Miðgarður Reykjavík | Hugmyndasamkeppni í miðborg Reykjavíkur
Norræna húsið í samvinnu við Félag íslenskra Landslagsarkitekta og Hönnunarmiðstöð Íslands, efna til hugmyndasamkeppni um hönnun á svæði sem umlykur Norræna húsið.
Sögustund á norsku fyrir börn laugardaginn 21. janúar kl. 14 í bókasafni Norræna hússins. Lesið, sungið og spjallað saman á norsku.
Sögustundin er fyrir alla krakka sem tala og skilja norsku og foreldra þeirra.
Landslið íslenskra jazzleikara leikur í minningu trommarans Paul Motian í Norræna húsinu 19. janúar kl. 21.00
22. nóvember s.l. féll frá bandaríski trommarinn og tónsmiðurinn Paul Motian. Í minningu hans hefur bandaríski trommarinn Scott McLemore (nú búsettur á Íslandi) skipulagt tónleika þar sem tónsmíðum Motian's verður gert skil.
1.500 kr. aðgangseyrir.
Þar verður fjallað um ískyggilegar niðurstöður rannsókna sem sýna að ört stækkandi hópur ungs fólks getur ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans.
Lesa meira
Kynning á helstu niðurstöðum landskönnunar á mataræði 2010-2011 haldin í Norræna húsinu mánudaginn 23. janúar kl. 15.
Lesa meira
Norræna húsið leitar að öflugum einstaklingi til starfa við húsvörslu. Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi og er því hluti vinnutíma á kvöldin og um helgar. Um 100% starf er að ræða.
Lesa meira
Færeyskur jazz og grænlenskur trommudans með Artic yggdrasil og fleirum laugardaginn 21. janúar í Norræna húsinu.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
Miðaverð 1000 kr.
ATH: Fundinum er frestað um viku vegna veikinda.
Opinn fundur Landverndar í Norræna húsinu þriðjudaginn 24 janúar kl. 12-13.30. Allir velkomnir.
15:15 tónleikaröðin er farin aftur að stað á nýju ári. Frá janúar til maí verða alls sex tónleikar á dagskrá. Miðaverð er 2000 kr. Fyrir öryrkja, eldri borgara og námsmenn er miðaverðið 1000 kr.
NEXUS, rannsóknarvettvangur á sviði öryggis- og varnarmála, boðar til ráðstefnu um þjóðaröryggisstefnu Íslands mánudaginn 16. janúar kl. 9.00.
Lesa meira
Sunnudaginn 15. janúar kl. 15:15 leika Greta Guðnadóttir fiðluleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari tónleika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu.
Almennt miðaverð: 2000 kr.
Eldri borgarar, öryrkjar og námsmenn; 1000 kr.
Á síðasta ári greiddi Norræni menningarsjóðurinn út 23,4 milljónir danskar krónur til 232 norrænna samstarfsverkefna. 15 af þessum verkefnum eru íslensk og fengu þau verkefni samanlagt 1,393 milljónir danskar krónur í styrk.
Lesa meira
Leikhúsupplifun fyrir börn í hæsta gæðaflokki þar sem börnin taka þátt og upplifa í miklu návígi töfra leikhúss, tónlistar og myndlistar. Sýningar hefjast 4.febrúar í Norræna húsinu. Sýningin er um 35 mínútur og listsköpunin á eftir um 45 mín.
Miðaverð: 1500kr.
Miðapantanir á www.midi.is og hjá Norrænahúsinu s: 551 7030
Lesa meira
Þeir sem eiga eða fá í jólagjöf hverskonar rafbókalesara og eiga kort í bókasafni Norræna hússins geta farið inn á heimasíðu bókasafnsins (þarft ekki að koma í bókasafnið) og fundið þar mikið úrval af nýjustu bókunum á sænsku á rafrænu formi til lestrar og hlustunar. Verið velkomin milli jóla og nýárs í bókasafn Norræna hússins sem er opið kl. 12-17 frá 27-30. des.
Lesa meira
Bókasafn Norræna hússins og sýningarsalir eru opin milli jóla og nýárs frá kl. 12 - 17 dagana 27.-30 desember. Verslun og skrifstofur opna að nýju 2. janúar 2012. Við bendum á að veitingastaðurinn DILL er með venjulegan opnunartíma yfir alla hátíðina. Verið velkomin í húsið í jólafríinu ykkar , við tökum fagnandi á móti ykkur.
Hér er uppskrift að jólaglöggi og eplaskífum Norræna hússins. Glöggið okkar er óáfengt og bragðgott. Uppskriftin er á dönsku en ætti samt ekki að vefjast fyrir neinum. Njótið!
Umræðuefnið var sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Dr. Riyad útskýrði hvernig það var að alast upp í frjálsu ríki en Palestína var hertekin af Ísrael þegar hann var 11 ára gamall. Hann sagðist vera drifinn áfram af því að fá son sinn aftur heim en eftir að hann flutti til Dublin til náms í rafmagnsverkfræði og uppgötvaði hvernig það var að ganga frjáls um götur, vildi hann ekki flytja aftur til Palestínu.
Lesa meira
Fimmtudaginn 15.desember í Norræna húsinu kl. 14.45 verður opinn fyrirlestur með utanríkisráðherra Palestínu, Dr. Riyad al-Maliki. Hann tók við embætti utanríkisráðherra í maí 2009 og hann er jafnframt opinber talsmaður palestínsku stjórnarinnar.
Markmið Norðurlandaráðs í COP17 er að koma með haldbæra aðferð til þess að sporna við loflagsbreytingum og hvetja aðra til að nýta sömu aðferðir. Hægt er að finna fleiri upplýsingar um aðgerðir Norrænu ráðherranefndarinnar vegna COP17 hér; www.norden.org/cop17 einnig eru upplýsingar um þau verkefni sem Norðurlandaráð hefur komið að og fjalla um loflagsbreytingar.
Lesa meira
Norsk danssýning 18. des. kl. 20.00.
Í sýningunni Gisela and Orlando's fantastic account of The Beautiful Helena takast Sissel M. Bjørkli og Erlend Samnøen á við fegurðarhugtakið.
Lesa meira
Sýningar úr mótunardeild Myndlistarskólans í Reykjavík.
Sýningarnar opna 2. desember kl 17.00 – 19.00.
Allir velkomnir.
Lesa meira
Þann 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, mun íslensk-skandínavíska veforðabókin ISLEX verða opnuð í Norræna húsinu. Formleg opnun verður frá kl. 16-16.30. Að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar. Vakin er athygli á ráðstefnu fyrr um daginn á vegum ISLEX sem hefst klukkan eitt á sama stað. Lesa má meira um ráðstefnuna hér.
Lesa meira
Til forældre med dansktalende børn
Vi indbyder til eventyrtime i børnehulen i Nordens Hus bibliotek, lørdag d. 19. november kl 11.00.
Eventyrtimen arrangeres i samarbejde med den nordiske biblioteksuge som afholdes fra 14. til 20. november. Malene Ørnstrup Petersen, lektor i dansk, læser op af Mustafas kiosk af Jakob Martin Strid
Mustafas kiosk er en rigtig festlig bog fyldt med humør og biblioteksugens tema er i år netop ”Nordisk humor”.
Dýraverndarsamband Íslands og Norræna húsið halda málþing um nýja dýravelferðarlöggjöf í Norræna húsinu í Vatnsmýri,Reykjavík föstudag 25.nóvember 2011, kl 17.00-20.00.
Þema Umhverfisverðlaunanna 2012 er líffræðilegur fjölbreytileiki. Verðlaunin nema 350.000 dönskum krónum.
Allir geta sent inn tilnefningar. Nánari upplýsingar á www.norden.org/miljøprisen
Lesa meira
Þema Norrænnar bóksafnsviku er að þessu sinni húmor úr norðri. Dagskrá vikunnar hefst með norrænu uppistandi 11.nóvember kl. 20.00. Aðrir viðburðir á dagskrá eru t.d. hláturjóga, kvikmyndasýning, sögustund fyrir börn og margt fleira. Kynnið ykkur dagskrána.
Duo Harpverk koma fram í Norræna húsinu 13. nóvember kl. 15:15. Þau munu flytja nýja tónlist fyrir hörpu og slagverk. Tónleikarnir eru hluti af 15:15 tónleikaröðinni. Almennt miðaverð er 2000 kr en 1000 kr. fyrir öryrkja, eldriborgara og námsmenn.
Norræna húsið býður upp á uppistand með Zinat Pirzadeh, Ruben Søltoft og Önnu Svövu Knútsdóttur föstudaginn 11. nóvember kl. 20. Uppistandið fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis.
Världen 2050 – om framtiden, framtidsforskning och konsten att forma
framtiden
Framtiden har alltid intresserat människor, vi har försökt att såväl
spå och förutse som att behärska och förändra den. Än idag är det
just detta som vi som enskilda, företag och nationer försöker att
göra. Men kan man veta något om den, och i så fall vad? Vilka är de
starkaste långsiktiga trenderna och osäkerheterna idag, det som kommer
att forma världen under de kommande 40-50 åren? Och vilka är
framgångsfaktorerna för företag och organisationer i dagens och
morgondagens alltmer komplexa och turbulenta värld?Lesa meira
Segja má að Jazzhátíð Reykjavíkur leiti til uppruna síns á þessum tímamótum og efli samstarf við nágrannaþjóðirnar en áberandi er að erlendir gestir eru margir frá Norðurlöndum auk Frakklands, Bandaríkjanna og Austurríkis. Jazzhátíð Reykjavíkur er þakklát Norræna Húsinu og menningarfulltrúum þessara ríkja fyrir að hlutast til um þessar heimsóknir.
Lesa meira
Owe Ronström mun halda tónleika í Norræna húsinu þann 18. ágúst kl. 20:00 og mun hann þar leika á fjölmörg hljóðfæri og gefa tónleikagestum sýnishorn af ýmiskonar þjóðlagatónlist.
Í tilefni af heimsókn forseta Litháens setjum við upp sýningu ljósmyndarans Rimantas Dichavicius. Sýningin stendur frá 23.Ágúst - 27.ágúst.
Forseti Litháens heimsækir Ísland heim og að því tilefni verður sett upp sýning á helstu verkum litháíska listamannsins Ciurlionis. Sýningin stendur yfir frá 21.ágúst - 28.ágúst.
Píanóleikarinn Luke Howard (frá Ástralíu) og bassaleikarinn Janos Bruneel (frá Belgíu) flytja ópusa af diski sínum "Open Road" í Norræna húsinu á menningarnótt. Samstarfsverkefni tónskáldanna tveggja var tekið upp í hinu þekkta Rainbow-hljómveri í Ósló í fyrra.
Lesa meira
„Aesthetica Creative Works Competition“ auglýsir nú eftir umsækjendum fyrir 2011 keppnina. Tímaritið Aesthetica býður öllum listamönnum, ljósmyndurum og rithöfundum að skrá verkin sín í „The Creative Works Competition“. Keppnin sem nú er á fjórða ári tekur við verkum í öllum formum; skúlptúrum, textíl, ljósmyndum, keramik, málverkum, stafrænni list ásamt ljóðum og öðrum bókverkum. Frekari leiðbeiningar er að finna á vefsíðunni: http://www.aestheticamagazine.com/submission_guide.htm
Lesa meira
Í tónverkinu Lost in a legend eftir Eva Sidén og Jens Hedman hefur flygillinn aðalhlutverkið. Tónskáldin Eva og Jens hafa tekið upp hljóð frá flygli sem þau svo breyta í rafræn hljóð ásamt hljóði sem tengist pappír sem þau nota í tónverkið. Eva Sidén og Jens Hedman skapa tónlist sem gefur hlustandanum draumakenndar myndir, tilbúið landslag. Þemað er vatnið og vindurinn. Á tónleikunum er einnig pianosolo eftir Evu og rafrænt verk eftir Jens.
Lesa meira
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2010 falla í skaut norska tónskáldsins Lasse Thoresen fyrir verkið Opus 42 sem samsett er úr fjórum raddverkum fluttum af söngvurum kammersveitarinnar Nordic Voices.
Lesa meira
Sissel M. Bjørkli og Erlend Samnøen har i ”Gisela og Orlandos fantastiske berettelse om Den Skjønne Helena” tatt for seg begrepet skjønnhet.
18.desember kl. 20.00 i Nordens hus
Lúsíuhátíð í Norræna húsinu, þriðjudaginn 13. desember kl. 08.00
Í Svíþjóð og á Norðurlöndum er siður að halda Lúsíuhátíð 13. desember þar sem Lúsía og og þernur hennar syngja Lúsíu- og jólalög.
Sænski barnakórinn, Lúsíukórinn á Íslandi flytur hefðbundin jólalög í tilefni dagsins.
1.-3.des verður veittur 10% afsláttur af öllum barnavörum í verslun Norræna hússins.
Verslunin er staðsett hægra megin við aðalinngang hússins og hefur verið sögð eitt best geymda leyndarmálið í bænum.
Norska sendiráðið og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands boða til málþings um sagnaskáldið Kristmann Guðmundsson (1901 – 1983) í Norræna húsinu sunnudaginn 23. október n.k. kl. 13.30 – 17.30 en þann dag eru liðin 110 ár frá fæðingu skáldsins.
Lesa meira
Sænska ljóðskáldið Tomas Tranströmer fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag 6. október 2011. Fyrsta ljóðabók hans ”17 dikter” kom út 1954 og með henni vakti hann athygli og fékk mikið lof. Síðan hefur hann sent frá sér um 20 ljóðasöfn sem hafa verið þýdd á u.þ.b. 60 tungumál.
Samtök lifrænna neytenda býður upp á kvikmyndasýningu í Norræna húsinu á þriðjudag 11. október kl. 20. Myndin heitir “The Future of Food” en fjallar hún um sannleikinn á bak við nútíma matvælaframleiðslu. Lesa má meira á: http://www.thefutureoffood.com. Umræður eftir myndina. Ókeypis inngangur, allir velkomnir!
Samfélag Ahmadiyya múslima á Íslandi stendur fyrir málþingi um umburðarlyndi í trúmálum í Norræna húsinu á föstudaginn þann 7. óktóber kl. 17. Smelltu á titilinn til að sjá dagskrána. Svar óskast: Ahmadiyyaiceland@hotmail.co.uk / 551 9423.
Hljómsveitin Støv var stofnuð haustið 2009 af sex nemendum við Rytmíska Músíkkonservatoríið í Kaupmannahöfn. Sveitin spilar djassaðar útsetningar af norrænni tónlist. Tónleikarnir fara fram í svartamyrkri og á meðan þeim stendur verður spilað myndband sem listakonan Michelle Carlslund gerði við tónlistina. Aðgangseyrir 1000kr. Støv skipa: Nynne F. Hedal - söngurIngimar Andersen - saxófónn Rolf Thofte Sørensen - trompet Per Walfridsson - píanó Jakob Roland Hansen - kontrabassi Johan Dynnesen - trommur
Lesa meira
Norræna húsið býður finnsku og finnskumælandi fólki upp á sögustund einu sinni á mánuði. Við hittumst í fyrsta sinn laugardaginn 24. september kl. 11. Við lesum fyrir börnin og kaffi á könnunni handa foreldrum. Sögustundin er ætluð fyrir börn á öllum aldri og foreldra þeirra. Allir velkomnir til að spjalla saman á finnsku!
Lesa meira
Háskóli Íslands og Norræna húsið blása til hátíðarhalda 15.maí n.k þegar Tilraunalandið flytur út á lóð Norræna hússins. Margt verður á boðstólum fyrir smáfólkið s.s. atriði úr Bláa gullinu, Lúðrasveitin Svanur blæs í lúðra, Blikandi Stjörnur taka lagið, tilraunaeldhús verður við gróðurhúsið, skjólgóði sandkassinn vígður og margt margt fleira. Komum saman í Norræna húsið!
Norræn- Eystrasalts ferða- og dvalarstyrkjaáætlunin fyrir menningu er opin fyrir umsækjendur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Eystrasaltslöndin taka þátt í fjármögnun og ákvarðanatöku varðandi áætlunina ásamt Norðurlöndunum. Umsóknartími er frá 31.mars - 24.apríl.
Lesa meira
Á haustdögum býður Norræna húsið upp á þrjá fyrirlestra tileinkaða byggingarlist. Fyrirlestrarnir fara allir fram í Norræna húsinu á fimmtudögum kl. 20.00. 1.september er fjallað um sundlaugina á Hofsósi. 6.október fjallar um sýnHenning Larsen architects á vistvæna hönnun og 17.nóvember um Hörpuna.
Fjórða árið í röð bjóða Norræna húsið og Iceland Airwaves upp á einstaka utandagskrá í Norræna húsinu. Dagskráin hefst kl. 13.00, fimmtudaginn 14. október og verða 4 tónleikar daglega fram á Sunnudag en þá sýnum við heimildarmyndir um tónlist. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Norræna húsið býður upp á góða aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalds í fallegu umhverfi. Funda- og ráðstefnuþjónusta Norræna hússins nýtist vel fyrir minni fundi og málstofur sem og fyrir stærri samkomur, allt að 120 manns í sæti í einum sal. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og lögum okkur að þörfum hvers og eins.
Hér eru upplýsingar um verð
Gunvor Kronman, forstjóri Hanaholmen, flytur fyrirlestur í boði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Norræna hússins um verkefnið „Svenska nu“. Fyrirlesturinn verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 5. nóvember kl. 15. Verkefnið „Svenska nu“ hefur hlotið verðskuldaða athygli og í erindinu fjallar Gunvor Kronman um þær nýstárlegu leiðir sem farnar eru til að vekja áhuga finnskra nemenda á að læra sænsku.
Lesa meira
Sama dag og norrænu listahátíðinni Ting lýkur hefst norræn bókasafnsvika og er þema hennar að þessu sinni fantasía og töfrar í norrænum bókmenntum. Norræna bókasafnsvikan verður opnuð með athöfn í Norræna húsinu þar sem hún verður kynnt með erindum og upplestrum. Þemabók bókasafnsvikunnar er tryllirinn Hleyp þeim rétta inn eftir John Ajvide Lindquist og sýnir Sjónvarpið samnefnda kvikmynd byggða á bókinni sama kvöld kl. 22.15.
Lesa meiraÓlafur Örn Ólafsson og Gunnar Karl Gíslason frá veitingastaðnum Dill bjóða upp á sýnishorn af túlkun sinni á Nýja norræna eldhúsinu. Mads Holm frá Norræna húsinu segir frá verkefninu Nýr norrænn matur; hvernig er hann? Til hvers notum við hann? Hvert er hann að fara?
Lesa meira
Þormóður Kolbrúnarskáld leggur allt í sölurnar fyrir hetjuhugsjónina og skáldskapinn. Hann yfirgefur konu sína og börn en að endingu þarf hann að horfast í augu við það að ef til vill færði hann allar þessar fórnir fyrir rangan málstað. Fyrir eitthvað sem var hégómi einn. Gerpla í uppfærslu Þjóðarleikhússins er leikur með þjóðararfinn þar sem vísað er í söguöldina og þjóðleg minni. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og verið tilnefnd til fjölda verðlauna.
Lesa meira
Bíó Paradís sýnir 29/10-4/11 kvikmyndirnar fimm sem tilnefndar voru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2010.Einnig verða sýndar aðrar kvikmyndir eftir leikstjórana. Ath Sýningartímar eru birtir með fyrirvara
Lesa meira
Málþing þar sem saman koma safnstjórar, listagagnrýnendur og sýningarstjórar frá öllum Norðurlöndunum til að ræða stöðu samtímalistarinnar á Norðurlöndum.
Heimur norrænu goðafræðinnar er ævintýralegur söguheimur og á sýningunni Ormurinn ógnarlangihitta gestir fyrir goð, jötna og aðrar skrýtnar skepnur. Ganga má inn í Niflheim, skríða inn um gin Miðgarðsormsins, máta hásæti Óðins, setjast í vagn Freyju, skoða fésbókarsíður goðanna eða varpa sér í fang Fenrisúlfsins.
Ríkisútvarpið og sjónvarpið munu verða með norræna áherslur í dagskrá sinni á ting.
Lesa meiraRáðstefna á vegum Iðnaðarráðuneytisins og Nordisk InnovationsCenter (NICe) um nýsköpun á Norðurlöndunum.
Lesa meiraNorræna menningargáttin er stofnun fyrir menningaráætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar; Lista- og menningaráætlunina og Ferða- og dvalarstyrkjaáætlunina. Áætlanirnar veita ýmis konar styrki til ólíkra verkefna, allt frá ferðastyrkjum til verkefna sem ná yfir nokkurra ára tímabil
Lesa meira
Átaksverkefni með það markmið að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í samnorrænt styrkfé. Veitt er ráðgjöf og stuðningur og leiðbeint m.a. við umsóknarskrif og við myndun tengslaneta. Frumkvæði að verkefninu kom frá Norrænu ráðherranefndinni sem fjármagnar það.
Lesa meira
Hönnunarteymið Apokalyps Labotek (Petra Lilja og Jenny Nordberg), sem hefur m.a. unnið til verðlauna fyrir parket hannað úr hjölbörðum, fjallar um sjálfbæra hönnun og endurnýtingu hráefnis.
Lesa meira
Sænski blaðamaðurinn Tom Juslin fjallar um ferðalag sitt um Norðurlönd þar sem hann kannaði áhrif veðurfarsbreytinga á fólk, dýr og náttúru
Lesa meiraSagnfræðingurinn Gunnar Wetterberg lýsir málefnalega og af hugmyndauðgi hvernignorrænt sambandsríki gæti tryggt Norðurlöndunumáhrifameiri sess í heimspólitíkinni
Lesa meira
Petri Sakari hljómsveitarstjóri hefur átt einstaklega gjöfult og gott samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan á níunda áratugnum. Auk Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur Petri Sakari stjórnað fjölda finnskra sinfóníusveita sem og sinfóníusveitum um allan heim. Hann hefur stjórnað upptökum á leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir tónlistarútgáfurnar Naxos og Chandos og hafa þær hlotið góðar viðtökur.
Lesa meira
Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fyrir kvikmyndina Submarino. Fimm voru tilnefndar, ein frá hverju Norðurlandanna. Bío Paradís sýnir, allar myndirnar á Ting.
Lesa meira
Á sýningunni Power has a Fragrance notar norski listamaðurinn Gardar Eide Einarsson táknmyndir framúrstefnu og jaðarmenningar til þess að kallast á við innviði og birtingarmyndir nútímasamfélagsins. Listamaðurinn teflir fram svarthvítum málverkum, ljósmyndum, skúlptúrum, myndböndum og dreifimiðum og sækir efnivið sinn m.a. í veggjakrot og pönktónlist
Lesa meiraCristina Andersson sópransöngkona og Ilkka Paananen píanóleikari halda tónleika þar sem þau flytja verk um skandínavískar kvenhetjur eftir Edvard Grieg, Jean Sibelius, Armas Järnefelt, Toivo Kuula og Richard Wagner.
Cristina Andersson er sjálfmenntuð í klassískum söng og hentar rödd hennar dramatískum sinfóníuóperum einstaklega vel. Ilkka Paananen er þekktur píanóleikari í Finnlandi og hefur spilað undir hjá fjölmörgum finnskum óperusöngvurum.
Lesa meira
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur frá upphafi beint kastljósi sínu til Norðurlandanna. Það er því viðeigandi að hátíðin bjóði upp á sérstaka dagskrá í tilefni Ting. Við kynnumst framsæknustu og uppfinningasömustu röddum norrænnar kvikmyndagerðar, veitum hinni síbreytilegu dönsku kvikmyndagerð sérstaka athygli og hittum fyrir stóru nöfn norskrar kvikmyndagerðar framtíðarinnar.
Lesa meira
Sá íslenski myndlistarmaður sem fyrstur sótti myndefni til Sama var Guðmundur Einarsson frá Miðdal (1895-1963). Hann var fjölhæfur, afkastamikill og áberandi í listalífinu. Guðmundur lagði áherslu á íslenska náttúru t.d. í grafík, vatnslita- og olíumyndum og leirlist en sótti líka myndefni til Grænlands, Alpalanda og finnska hluta Samalands.
Lesa meira
ting, norræn listahátíð, kynnir direkt- norræna tónlistarhelgi í Reykjavík. 4. -6. nóvember. Hljómsveitirnar sem fram koma eru: Slaraffenland (DK), Budam (FO), Orhic Oxtra (IS), Datarock (NO), Retro Stefson (IS), Berndsen (IS), Wildbirds & Peacedrums (SE), Hjaltalín (IS) og Schola Cantorum (IS).
Lesa meira
Tómlegt borgarumhverfi í niðurníðslu umbreytist í ný heimkynni gíraffa, pelíkana og ljóna. Framandi og heillandi dýr hafa yfirtekið byggðir og mannvirki og falla inn í umhverfið eins og þau séu á sínum heimaslóðum. Á sýningunni „The Isle of Human“ rannsakar danski ljósmyndarinn Johan Rosenmunthe baráttuna um ný yfirráðasvæði sem verður æ stærri hluti af lífi manna með hverjum deginum
Lesa meira
Listaleypurin er færeysk menningardagskrá sem Norræna húsið í Færeyjum býður skólanemendum í Þórshöfn og nágrenni upp á. Dagskráin hefur undið upp á sig og er núna samvinnuverkefni Norrænu húsanna í Færeyjum og á Íslandi, auk norrænu stofnunarinnar í Nuuk á Grænlandi. Listamennirnir sem koma fram í dagskránni í Norræna húsinu taka allir þátt í ofangreindu samvinnuverkefni.
Lesa meira
Málstofa með bönkunum sem skipta með sér umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs 2010. Þema umhverfisverðlaunanna 2010 er umhverfisvæn eignastýring.
Á bóndabæ í afskekktri sveit í Finnlandi búa fráskilin hjón ásamt tannhvassri ömmu og börnum sem gera óraunhæfar kröfur til lífsins.
Lesa meira
Ráðstefna um framtíð ríkisrekinna fjölmiðla á Norðurlöndunum verður haldin í Norræna húsinu 4. og 5. nóvember. Skráning á ráðstefnuna er hjá nh@nordice.is
Pirkko Lindberg, fædd 1942, hóf feril sinn sem rithöfundur árið 1989 með skáldsögunni Byte sem vakt athygli bæði gagnrýnenda og lesenda, bæði í Svíþjóð og Finnlandi. Sagan fékk ”J. H. Erkkopriset” sem besta frumraun höfundar 1990. Hún verður á höfundakvöldi kl. 20.00 12.september í Norræna húsinu
Lesa meira
Sýning Nadine í sýningarsal Norræna hússins til 18. september. Enginn aðgangseyrir.
Nadine er fædd í suðvestur Frakklandi árið 1953. Á sýningunni má sjá m.a ljósmyndir, grafíkverk, myndlist og textaverk eftir Nadine Cabarrot.
Nýjar og spennandi finnskar kvikmyndir í bókasafni Norræna hússins : "Postia Pappi Jaakobille", "Hovimäki" - sjónvarpssería 8 þættir, "The truth about SAUNA, the truth about Finns", "Poliisin Poika, barnamyndin "Urpo & Turpo", mynd um finnska listmálarann "Albert Edelfelt", grínmyndin "Star wreck" og dramamyndin " Gränsen 1918". Kvikmyndir eru lánaðar út í 7 daga gegn framvísun bókasafnskorts.
Lesa meira
Norræni tískutvíæringurinn, Nordic Fashion Biennale, verður haldinn í Seattle 30.september – 13.nóvember. Norræni tískutvíæringurinn (NFB) var fyrst haldinn af frumkvæði Norræna hússins í Reykjavík 2009 með stórkostlegum árangri: 60 hönnuðir og listamenn tóku þátt og fékk viðburðurinn mikla umfjöllun hér heima og erlendis. Í ár verður viðburðurinn haldin í Nordic Hertiage Museum í Seattle sem er meðframleiðandi að viðburðinum. Nordic Hertiage Museum er safn sem miðlar norrænum menningararfi en það er staðsett í Ballard hverfinu í Seattle sem var byggt upp af norrænum landnemum á 19.öld.
Lesa meira
Bangsavika í Bókasafni Norræna hússins 25.- 29. október 2010 í tilefni af alþjóðlegum bangsadegi þann 27. október. Í bangsavikunni er sýning á böngsum, bangsabækur bíða eftir því að verða lesnar, leikskólabörn eru velkomin í heimsókn, hægt er að syngja bangsasöngva og lita bangsa- myndir.
Lesa meira
You Are In Control is an annual international conference returning for the fifth year running to provide a necessary platform for exploring digital business developments in the Creative Industries. This year the conference will take place between October 10th – 12th in Reykjavik's brand new centrally-located concert hall and conference centre Harpa.
Lesa meira
Þú getur, meðal annars: Hjálpað til við að búa til mat fyrir 30.000 nemendur í skólum í Washington, unnið með færum leiðbeinendum, aukið færni þína sem kokkur, matreitt á einum af norrænu sendiráðunum í Washington og fengið að búa til mat á einum af betri veitingastað Washingtonborgar.
Ef að þú ert á aldrinum 18 og 24 ára og getur ferðast á tímabilinu 21-28. október, gætir þú unnið allt þetta.
Lesa meira
Miðvikudagskvöldið 5. október kl. 20 verða tónleikar í Klassík í Vatnsmýrinni, tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið. Þessir fjórðu og síðustu tónleikar starfsársins skarta ungum og efnilegum flytjendum frá Noregi. Þetta eru þeir Johannes Martens sellóleikari og Joachim Kwetzinsky á píanó en þeir eru meðal færustu hljóðfæraleikara sinnar kynslóðar í Noregi.
Lesa meira
Sýningar fyrir börn og fullorðna – frítt inn
Stuttmyndasýningar fyrir börn og fullorðna alla virka daga kl. 14 frá 26. -30. september Myndir eftir unga teiknimynda og hreyfimyndahöfunda þar sem mannlegi þátturinn er hafður í fyrirrúmi. Skemmtilegar myndir sem höfða jafnt til barna og fullorðinna.
Lesa meira
Hvert fer íslensk kvikmyndagerð héðan? Þriðjudagur 27. september kl. 16:00
Veigamikið málþing um stöðu og samkeppnishæfi íslenskrar kvimyndagerðar í skugga niðurskurðar og efnahagsþrenginga. Þátttakendur eru fulltrúar íslenska ríkisins og þungavigtarfólk úr kvikmyndaiðnaðinum.
Lesa meira
Bókmenntahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta skipti árið 1985. Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Einar Bragi skáld og Knut Ödegård þáverandi forstöðumaður Norræna hússins stofnuðu til hátíðarinnar og varð hún fljótt einn af helstu viðburðum íslenska bókmenntasamfélagsins.
Athugið breyttan tíma: Fimmtudaginn 8.september kl. 20.00 flytur Anders Ahnfelt Rønne sýningu sína Kontrabassann eftir Patrick Suskind. Verkið er sýnt í tengslum við bókmenntahátíðina í Reykjavík. Flutningur fer fram á skýrri og skilmerkilegri dönsku. Aðgangseyrir er 1500 kr.
Norræni menningarsjóðurinn (Nordisk Kulturfond) hefur á þessi ári stutt íslensk menningarverkefni um 19 milljónir, íslendingar taka ennfremur þátt í 88 verkefnum sem sjóðurinn styrkir.
Samtals hefur sjóðurinn styrkt 155 samnorræn verkefni um 300 milljónir á þessu ári.
Lesa meira
Nú stendur yfir í Norræna húsinu sýning fjögurra upprennandi listamanna, tvö þeirra lifa og starfa í Berlín og tvö í Osló. Öll verkin voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna sem ber heitið Verkefni 0. Titillinn vísar til þess að mikil umræða á sér nú stað um áhrif mannsins á umhverfi sitt og náttúruna. Sýningin fjallar um þá togstreitu sem fylgir því að taka þátt í lifanaðarháttum nútíma samfélags á sama tíma og vilji fólks er fyrir hendi að stuðla að því sem er umhverfinu og jörðinni fyrir bestu.
Lesa meira
Finnska listakonan Agneta Ekholm, sem búsett er í Ástralíu, sýnir málverk í anddyri Norræna hússins. Ekholm vinnur með akrýl, vatn og svampa við gerð myndanna.Hún tekur yfirleitt langar vinnutarnir og einbeitir sér þá oft að litlum hluta myndarinnar í senn. Sýningin er frá 9.júlí - 14.ágúst. Agneta Ekholm verður viðstödd opnunina.
Fimmtudaginn 9. júní n.k. kl. 12:00 munu meistaranemarnir Drífa Gústafsdóttir og Sólveig Helga Jóhannsdóttir kynna lokaverkefni sín í MSc. námi í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Námsbraut í Skipulagsfræði er tveggja ára MS nám með sjálfbæra þróun og sköpun lífvænlegs umhverfis að leiðarljósi.
Norræna húsið óskaði eftir samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands við skipulagningu á fuglafriðlandinu. Stór hópur sérfæðinga hefur unnið að greiningum á svæðinu og miðast þetta MSc. verkefni við að draga saman upplýsingar og greiningar sem hafa verið gerðar í og við fuglafriðlandið og leggja fram skipulagstillögu fyrir svæðið.
Lesa meira
Í sumar, 16.-23.júlí, verður litrík, ævintýraleg og skemmtileg, strandmenningarhátíð á Húsavík. Hátíðin er sniðin að fjölskyldufólki og verður eitthvað fyrir alla s.s. lifandi handverskssmiðja, tónlist, sýningar, óskalög sjómanna og opnar smiðjur. Kynnið ykkur alla dagskrána á www.sailhusavik.is
Norski rithöfundurinn Beate Grimsrud sem tilnefndur var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 fyrir skáldsöguna En dåre fri verður gestur á höfundakvöldi í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. júní kl. 20.00. Kynnir er Tiril Myklebost sendikennari í norsku við Háskóla Íslands.
Lesa meira
Sænski rithöfundurinn Kajsa Ingemarsson er gestur okkar á næsta höfundakvöldi. Kajsa Ingemarsson þekkt skáldkona og sjónvarpskona frá Svíþjóð en Forlagið hefur gefið út tvær af bókum hennar: Sítrónur og saffran og nýútkomna bók Allt á floti. Þórdís Gísladóttir, þýðandi Allt á Floti mun ræða við Kajsu. 1.júní kl. 20.00
Ekki verður af komu franska rithöfundarins Michel Houllebecq til landsins í þessari viku en til stóð að hann kæmi fram hér í Norræna húsinu. Truflanir á flugumferð urðu til þess að höfundurinn hætti við komu sína að svo stöddu og því er viðburðinum aflýst.
Barnahellir og Artótek í kjallara bókasafns Norræna hússins, eru lokuð vegna iðnaðarvinnu til fimmtudagsins 16. júní
Barnbiblioteket är stängt fram till måndagen den 16 juni.
Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum.
Bókaverðir Lesa meira
6 íslensk verkefni fá styrk frá Nordisk Kulturfond, heildarupphæðin nemur um 695.000 DKK. Sjóðurinn styrkir samtals 75 verkefni og eru íslendingar þáttakendur í 49 af þessum verkefnum.
Myndlistarmaðurinn Jóhannes Dagsson sýnir í Norræna húsinu 9.júlí - 14.ágúst. Sýningin nefnist Vensl.Venslin sem titill sýningarinnar vísar til eru milli margskonar fyrirbæra. Vensl upplifunar af landslagi og listasögunnar, vensl lita og forma, þekkingar og skynjunar, hins almenna og hins sértæka, hversdagsins og upphafins augnabliks, vensl kaldhæðni og einlægni. Venslin sjálf eru einnig af ólíkum gerðum; samhverf, ósamhverf, gegnvirk, sjálfhverf, ósjálfhverf; og milli heims og manns.
Norðmenn halda þjóðhátíðardag sinn, 17.maí, hátíðlegan í Norræna húsinu með skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
ATH. Leiðsögn verður um sýninguna Sunnudaginn 5.júní kl. 13.00. Verkefni "0" er norsk sýning og fást listamennirnir allir við hinn póstmoderniska raunveruleika á brotakenndan og margbreytilegan hátt.
Lesa meira
Færeyska hljómsveitin Orka verður með ókeypis tónleika í Norræna húsinu 26.maí kl. 20.00. Þá mun hljómsveitin flytja nýtt efni í bland við gamalt. Hljómsveitin er nýstárleg og hefur vakið athygli fyrir frumlegar lagasmíðar og óvenjuleg hljóðfæri sem jafnan eru heimasmíðuð. 26.maí kl. 20.00
Sænski rithöfundurinn Eva Gabrielsson kemur fram á höfundakvöldi # 4 12.maí n.k. kl 20:00 . Hún er þekktust sem ekkja Stieg Larsson en er jafnframt höfundur nokkurra bóka sjálf og eru þær fáanlegar á bókasafni Norræna hússins. Þóra Arnórsdóttir mun ræða við hana um höfundaverk hennar.
Naja Marie Aidt fæddist árið 1963 og fyrsta bók hennar var ljóðasafnið "Så længe jeg er ung". Hún hefur skrifað 8 ljóðasöfn, 3 smásagnasöfn, kvikmyndahandrit og nokkur leikrit. Hún er mjög áberandi í sinni kynslóð danskra rithöfunda. Væntanleg neon-bók er smásagnasafnið Bavíani eftir Naju Marie Aidt. Naja Marie hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2008 fyrir þetta safn sem Bjartur gefur nú stoltur út, í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur en hún mun ræða við Naju á höfundakvöldinu 19.maí n.k. kl. 20.00
Lesa meira
Norrænar bækur til sölu á bókasafni Norræna hússins. Bókamarkaðurinn er frá laugardegi 7. maí til og með miðvikudegi 11. maí, opið frá kl. 12-17.
Skáldsögur, fræðibækur, barnabækur og ljóð ásamt geisladiskum með norskri tónlist af öllum gerðum.
Lesa meira
Sænska félagið, í samvinnu við Norræna félagið og Norræna húsið, stendur fyrir barnaklúbbi fyrir sænkumælandi börn á Íslandi.Hugsunin er að börn sænska foreldra sem og börn Íslendinga sem búið hafa í Svíþjóð fái tækifæri til að hittast og tala sænsku. Dagskrá verður í boði hverju sinni.
Fyrsta skiptið verður laugardaginn 30. apríl kl. 11:00 - 12:30 í húsnæði Norræna félagsins á Óðinsgötu 7 en dagskrá verður í gangi næstu
fjóra laugardaga, 30. apríl og 7., 14. og 21. maí, fyrst tvö skiptin á Óðinsgötu en seinni tvö í Norræna húsinu.
Fyrri hluti ráðstefnnunar er á ensku en meðal fyrirlesara eru aðilar sem hafa komið að hönnun og skipulagningu verkefna í mannvirkjageiranum þar sem sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi. Þá verður því velt upp hvernig sé hægt að auka almenna þekkingu á vistvænum aðferðum við hönnun og skipulag mannvirkja og tekin fyrir nokkur dæmi um slík verkefni, bæði hérlendis og erlendis.
Lesa meira
Almenningsrými skipta okkur öll máli en hvað eru almenningsrými, hvert er hlutverk þeirra, hvernig eru þau nýtt og hvaða gæðakröfur eru gerðar við hönnun þeirra?
10.maí kl. 12 -13
Miðvikudagur 15. júní 2011 kl. 20 „Himneskt horn”, Emil Friðfinnsson, horn og Þórarinn Stefánsson, píanó. Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið með áherslu á norrænt og alþjóðlegt samstarf. Markmiðið með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á „einleikarann” annars vegar og „kammertónlist” hins vegar
Á næstu tónleikum tónleikaraðar Jazzklúbbsins Múlans í Norræna húsinu, miðvikudaginn 11. maí kemur fram Fley tríóið, tríó píanóleikarans Egils B. Hreinssonar. Meðleikarar hans eru bassaleikarinn Gunnar Hrafnsson og Erik Qvick sem leikur á trommur. Tríóið leikur klassískan jazz m.a.
Tónleikar Múlans fara fram í Norræna Húsinu, Sturlugötu og hefjast þeir kl. 21 og er þúsund króna aðgangangseyrir, 500 krónur fyrir nemendur. 11.maí kl. 21.00
Laugardaginn 7. maí opnar sýningin Það sem ég finn í því sem ég fann.
Á sýningunni má sjá verk eftir leikskólabörn á Laufásborg, stúlkur og drengi á aldrinum 3ja til 5 ára. Verkin eru unnin úr efniviði sem kom til þeirra úr öllum áttum, sumt sem börnin fundu sjálf og það sem leikskólanum hefur verið gefið, verk úr tré, rusli, textil og gifsi.
7. - 15.maí
Laugardaginn 21.maí opnar í Norræna Húsinu sýningin Víðátta og rjóður sem unnin er upp úr syrpu listbúða sem haldnar voru þrjú sumur í þremur norrænum löndum fyrir ungmenni úr þremur norrænum lista- og byggingarlistarskólum.
Lesa meira
Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 birtist Finnum sem ekki aðeins hættulegt ástand heldur einnig sem ákfalega fallegt. Nemendur og leiðbeinendur í skólanum Kiipula í Turenki í Finnlandi söfnuðu myndum og fréttum af gosinu og unnu útfrá þeim röð málverka sem verða nú sýnd í Norræna húsinu.
Lesa meira
5.maí kl. 20.00. Á þriðja höfundakvöldi Norræna hússins munum við fanga þennan áhuga og höfum fengið til liðs við okkur höfunda sem allir tengjast nýútkomnum og endurútgefnum bókum sem fjalla um matjurtarækt.
Lesa meira
Í tilefni af 5 ára afmæli Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu verða haldnir stórir viðburðir á vegum samtakanna í samvinnu við Norræna húsið dagana 29. og 30. apríl.Hið árlega málþing samtakanna, Söguslóðir 2011 verður haldið í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl frá 14:00 - 17:00.
Lesa meira
Mánudaginn 2.maí verða fyrstu tónleikar Múlanns, jazzklúbbs, í Norræna húsinu. Þá kemur Tríó Agnars Más Magnúsonar fram og leikur tónlist Agnars af útkomnum geisladiskum hans í bland við þekkt lög í fyrra setti. Í seinna setti verður jamsession fyrir alla sem vettlingi geta valdiðÞetta er upphafið á glæsilegri dagskrá sem stendur til 24.maí.
2.maí kl. 21.00
Faghópur dönsku Bruno Gröning Stofnunarinnar um læknisfræði og vísindi, heldur fyrirlestur í Norræna húsinu föstudaginn 6. maí frá kl 18-21.
Yfirskrift fyrirlestranna er Heilbrigði í gegnum andlegar leiðir, eftir kenningum Bruno Grönings -læknisfræðilegar staðreyndir.
Fyrirlesari er Oliver Bonifer frá Finnlandi.
6. maí kl. 18-21
G. Mouritsen, prófessor við Syddansk Universitet, heldur opinn fyrirlestur um nýtingu þörunga í matargerð á morgun 28. apríl í sal Norræna hússins, kjallara. Fyrirlesturinn, sem hefst klukkan 19.30, fjallar um þörunga sem eru mikilvægur hluti af mataræði í mörgum löndum Asíu. Notkun þeirra í matargerð hefur ekki náð fótfestu á Vesturlöndum nema að litlu leyti. Ole telur líklegt að þörungar verði stærri hluti af mataræði Vesturlandabúa í framtíðinni enda séu þeir afbragðs matvæli.
28.apríl kl. 19.30
Þörf umræða hefur sprottið upp um ýmsa vankanta á aðbúnaði og velferð dýra íslenskum landbúnaði.
Dagskrá:
Sjónarmið neytenda – Linda Pétursdóttir
Ódýr matur, dýrkeypt blekking – Dr Ólafur R.Dýrmundsson frá Dýraverndarsambandi Íslands
Velferð dýra - Sif Traustadóttir – Dýralæknir og stjórnarmaður í Velbú
Aðgangur að lífrænu hráefni – Oddný Anna Björnsdóttir
26.apríl kl. 20.00
Á ,,Bókasafnadeginum” 14. apríl bauð bókasafn Norræna hússins til merkisviðburðar. Opnað var fyrir aðgang að rafrænum bókum og hljóðbókum á sænsku í gegnum heimasíðu safnsins, fyrst almenningsbókasafna á Íslandi. Lánþegar bókasafnsins munu hvar og hvenær sem er geta hlaðið niður rafbókum á ýmis konar rafbókalesara og hlustað á ,,streymandi” hljóðbækur á sænsku í gegnum internetið. Víða á Norðurlöndunum, sérstaklega í Svíþjóð er hægt að fá lánaðar nýjar bækur á rafrænu formi í gegnum heimasíður almenningsbókasafna.
Lesa meira
Fimmtudaginn 28. apríl kl. 20 tekur Norræna húsið á móti þekktum verðlaunarithöfundi frá Færeyjum, Carl Jóhan Jensen . Höfundakvöldin snúast um höfunda eins og nafnið ber með sér en lesendur eru ekki síður mikilvægir eins og útlit viðburðarins ber með sér því hvað er höfundur án lesenda sinna? Bókelskir lestrarhestar ættu því ekki að láta Höfundakvöld í Norræna húsinu framhjá sér fara.
Lesa meira
Isabel Sörling Group leikur á tónleikum í Norræna húsinu 19.apríl kl. 20.00. Þau hafa komið víða við og unnið til margra verðlauna s.s. "Svenska Jazzkometer" og "Yong Nordic Jazz". Þau leika frjálsan jazz og blanda saman spuna og skrifuðu efni. þau eru bæði ljóðræn og raftmikil.
Rusl sem rúmast fyrir í yfir 80 ruslapokum var týnt upp úr friðlandinu í Vatnsmýri á mánudag í tilefni samkomulags um endurbætur á friðlandinu. Sjálfboðaliðar frá Seeds, www.seeds.is ,sáu um hreinsunina og þakka aðstandendur verkefnisins þeim kærlega fyrir. Sjálfboðaliðunum var síðan gefinn heit súpa til að ylja sér á, eftir vel unnið verk, en miklar sviptingar voru í veðrinu á mánudaginn.
Lesa meira
Norræna húsið óskar Gyrði Elíassyni til hamingju með bókmennta-verðlaun Norðurlandaráðs en hann hlýtur þau fyrir smásagnasafnið Milli trjánna.
Er hópur 6 listamanna frá Svíþjóð, Finnlandi, Kanada og Íslandi sem munu setja upp sýningu þar sem Friðlandið í Vatnsmýrinni og umhverfi Reykjavíkurtjarnar er aðal innblásturinn.
15 15 Tónleikarnir, sunnudaginn 10. apríl eru tileinkaðir minningu Sigursveins D. Kristinssonar á 100
ára afmæli hans en einnig verða flutt verk eftir Nadia Boulanger, Robert
Schumann, Francis Poulenc, Franz Schubert, Charles Gounod, Erik Satie og
Claude Debussy.
Kannski einn af höfundunum sem heimsækja okkur á höfundakvöld? Kristian Olsen Aaju, Tóroddur Poulsen og Beate Grimsrud eru öllu tilnefnd til verðlaunaanna í ár og þau koma öll fram á höfundakvöldum. Höfundakvöld Norræna hússins hefjast 14.apríl og verða reglulega til 9.júní. lesið meira og skoðið skemmtilegt myndband um höfundana sem tilnefndir eru í ár.
Lesa meira
Rafbók er bók sem hefur verið yfirfærð á rafrænt form þannig að hægt er að lesa textann beint af tölvu, fartölvu, síma eða sérstökum rafbókalesara. Rafræn hljóðbók spilast í gegnum internetið. Hlustað er á upplestur úr rafrænni hljóðbók af internettengdri tölvu eða síma. Hljóðbókin hleðst ekki niður á harðadiskinn. Ekki er hægt að hlusta á streymandi hljóðbók á MP3 spilara. Hægt er að taka rafbækur til láns hjá bókasafni Norræna hússins.
Kihlman er meðal fremstu rithöfunda sem skrifa á sænska tungu í Finnlandi. Hvað hefur hann að segja í dag? Hvaða áherslu leggur hann á spurningar eins og framtíð tungumáls minnihluta gagnvart meirihluta þjóðar? Meðal annars þetta kemur hann til með að taka upp i erindi sínu um ”samfélagskritisk” verk sín - Ett ”samhällskritiskt” författarskap í Norræna húsinu miðvikdaginn 13. aprìl kl 19.
Ekkert, andastæða alls, hefur verið umfjöllunarefni hinna ýmsu greina vísinda og lista á öllum tíma. Engu að síður hefur spurningunni um hvort hægt sé að skapa altæmi aldrei verið fyllilega svarað. Í þessum fyrirlestrar-/útgáfugjörningi leggur sviðslistamaðurinn Friðgeir Einarsson sitt af mörkum í leitinni að „engu.“
Lesa meira
Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess er haldin í fyrsta sinn í ár og tekur Norræna húsið þátt í henni. Viðamikil dagskrá verður í húsinu á meðan hátíðinni stendur en dagskráin stendur yfir í tvo daga. Á meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni eru Nive Nilsen frá Grænlandi og Deerhunter frá Bandaríkjunum.
14.apríl kl. 20.00 : Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, ræðir við Kristian Olsen Aaju og Mariane Petersen frá Grænlandi. Kristian Olsen Aaju er í ár tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína Det tatoverede Budskap og Mariane Petersen hefur nýverið gefið út ljóðasafn sitt: Storfangernes efterkommere
Lesa meira
Friðlandið í Vatnsmýrinni er einn af þessum gleymdu stöðum í Reykjavík, fólk keyrir framhjá án þess að gefa svæðinu nokkurn gaum. Þar eru samt mikilvæg varplönd Tjarnarfugla og jafnframt uppvaxtarsvæði fjölda annarra tegunda. Ástand fuglalífsins, gróðursins og vatnsins er ekki sæmandi þjóð né borg sem vil láta kenna sig við hreint vatn og fagurt land.
Lesa meiraBjörg í bú frumsýna nýja náttúruafurð, fitulausar kartöfluflögur kryddaðar með íslenskum sjó. Allt frá árinu 1758 hefur kartaflan vaxið við Íslandsstrendur og alltaf átt í nánu ástarsambandi við hafið og afurðir sjávar.
Lesa meira
Stefnumót rússneskra og íslenskra fatahönnuða verður í Norræna húsinu á HönnunarMars 26.mars. Tilefnið er heimsókn rússsneskra fatahönnuða á HönnnarMars og samstarf vegna viðburðarins Nordic Look sem verður í St. Pétursborg í haustið 2011.Viðburðurinn fer fram á ensku.
„Bækur eru saklausir hlutir, en höfundar eru ægilegar verur“, sagði Þórbergur Þórðarson í bókinni Mitt rómantíska æði og á þessi tilvitnun ágætlega við höfundakvöldin í Norræna húsinu þar sem „ægilegir“ höfundar fyrirhitta lestrarhesta borgarinnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.Á höfundakvöldunum koma fram rithöfundar og ljóðskáld frá Grænlandi, Færeyjum, Svíþjóð, Noregi og Íslandi.
Bruno Compagnon er franskur ljósmyndari sem sérhæfir sig í búfénaði. Undanfarin tvö sumur hefur hann ferðast um Ísland og myndað landslag, mannlíf og nautgripi. Norræna Húsið sýnir nú myndir Brunos þar sem hin íslenska mjólkurkýr er í aðalhlutverki. Sýningin er frá 19.mars til 20.apríl.
Leirlistafélag Íslands opnar sýningu á HönnunarMars í Norræna húsinu. HönnunarMars er haldin í þriðja sinn og nú í ár er yfirskrift sýningarinnar íslensk matargerð í íláti. Á sýningunni eru tólf félagsmenn að velta fyrir sér formum og hugmyndum um íslenskan mat og hefðir íslendinga tengdum mat, svo sem verkfæri og ílát sem við höfum notað í gegnum tíðina sem tengjast íslenskum matarhefðum.
Á klassískum nótum er yfirskrift tónleika 15:15 tónleikasyrpunnar í Norræna húsinu sunnudaginn 20. mars, kl. 15.15. Á tónleikunum leikur færeyski píanóleikarinn Jóhannes Andreasen ásamt 4 blásurum úr blásaraoktettinum Hnúkaþey, þeim Eydísi Franzdóttur óbóleikara, Ármanni Helgasyni klarínettuleikara, Önnu Sigurbjörnsdóttur hornleikara og Kristínu Mjöll Jakobsdóttur fagottleikara. Á efnisskrá eru þrjár skærustu perlur tónbókmenntanna fyrir píanó og blásara; Mozart: Kvintett í Es-dúr KV 452, Beethoven: Kvintett í Es-dúr Op. 16 og Poulenc: Tríó fyrir óbó, fagott og píanó
Lesa meira
Seminar um módernisma á Norðurlöndunum verður haldið í Norræna húsinu 18.mars.
I anledningen af Islands Universitets 100-års jubilæum afholder de nordiske lektorer og Árni Magnússon Instituttet for Islandske Studier et heldagsseminar med temaet nordisk modernisme. Inspireret af rammen, Nordens Hus i Reykjavik, vil seminariet lægge vægt på tendenser og hovedllinjer inden for nordisk modernisme i litteratur, billedkunst og arkitektur. Forelæserne er forskere, kritikere og forfattere.
Miðvikudagskvöldið 16. mars kl. 20:00 fer kammertónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið af stað í þriðja sinn. Flytjendur á þessum fyrstu tónleikum starfsársins verða ítölsku tónlistarmennirnir Valentina Caiolo fiðluleikari og Francesco De Zan píanóleikari. Þau munu flytja einstaklega spennandi efnisskrá; sónötur og svítur eftir W.A.Mozart, I. Stravinsky, A. Schnittke og R. Schumann.
Lesa meira
Thor Vilhjálmsson rithöfundur lést miðvikudaginn 2.mars, 85 ára að aldri. Thor Vilhjálmsson hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1988 fyrir skáldsöguna, Grámosinn glóir. 1992 hlaut Thor bókmenntaverðlaun sænsku akademíunnar fyrir ritstörf.
Thor Vilhjálmsson var tíður gestur í Norræna húsinu m.a. vegna starfa sinna fyrir Bókmenntahátíð í Reykjavík en hann var einn af stofnendum hennar og sat í stjórn hátíðarinnar frá upphafi.
Lesa meira
Stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda verður í Norræna húsinu 7.mars kl. 19:30 . Tilgangur samtakanna er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og umhverfisins að leiðarljósi.
Lesa meira
Norræna húsið leitar að markaðsstjóra og bókaverði.
Við bjóðum áhugaverð störf í krefjandi og frjóu norrænu og alþjóðlegu umhverfi í Vatnsmýrinni. Norræna húsið er leiðandi afl í íslensku menningarlífi og er húsið eitt af meistaraverkum Alvars Aalto.
ATH: Síðasti sýningardagur 1.maí. Viltu vita meira um matinn okkar? Vitum við í raun hvaðan hann kemur og hvernig hann verður til? Manna er sýning sem höfðar til allra skilningarvitanna, sýning þar sem fjallað er um sambandið milli fæðu og umhverfis, hvernig við vanmetum áhrif okkar á náttúruna og birtir okkur vistfræðilegan veruleika vors daglega brauðs. Málefnið er sett fram á myndrænan og lifandi hátt þar sem húmor og jákvæðni er höfð að leiðarljósi.
Lesa meira
Bandaríski altósaxafónleikarinn Andrew N D'Angelo mun ferðast um nýjar lendur með glænýju, íslensku tríói sínu, TRIO EVE í Norræna Húsinu föstudaginn 25. Febrúar kl. 20:30. Miðaverð 1.500 kr. Ekki missa af þessari óvenjulegu jazzveislu í Norræna Húsinu.
Lesa meira
Miðvikudaginn 23. febrúar 2011 -kl. 16:30-18:30 verður fræðslufundur Lions í minningu Þórunnar Gestsdóttur í Norræna húsinu. Dagskráin er fjölbreytt og á meðal fyrirlesara eru Kristinn Hannesson, Fanney Proppé, Jón Snædal og Kristinn Johnson.
Dansk Kvindeklub i Island indbyder igen i år til Fastelavn for danske og dansk-islandske børn.
Søndag den 6. marts Kl.15:00 slår vi katten af tønden i Nordens Hus. Sturlagata 5, Reykjavik.
Der vil blive slået katten af tønden og arrangeret lege for børn i alle aldre.
Når kattekongen er kåret bliver der serveret kaffe/te, saftevand og fastelavnsboler for alle.
Lesa meira
Ráðstefna Lionshreyfingarinnar um áhrif krepunnar á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Til máls taka m.a. Guðrún Björt Yngvadóttir, alþjóðastjórnarmaður Lions og Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðingur í forsætisráðuneytinu. Ráðstefnan er frá 16.30-18.30. Allir velkomnir-Aðgangur ókeypis!
Sýningin I Vesterveg er afrakstur samvinnu listamanna frá Íslandi, Færeyjum, Hjaltlandseyjum og Noregi og er verkefnið styrkt af Norrænum sjóðum.Sýningin opnar formlega, laugardaginn 12.febrúar.
Þema Safnanætur 2011 er "Íslendingur". Norræna húsið býður upp á að þessu tilefni: "Ísland séð með augum Pólverja" , tónleika með Miklagarði, og leiðsögn um húsið. Verið velkomin!
Verið velkomin á opnun sýningar Oddvin Horneland i anddyri Norræna hússins 20.febrúar kl. 14.00.
Föstudagskvöldið 1. apríl kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Norræna húsinu með Hafdísi Bjarnadóttur, rafgítarleikara og Paulu Engel, harmonikkuleikara. Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt en þar má m.a. finna tónlist eftir Bach, nútímatónlist eftir Sofiu Gubaidulinu, Sofiu Martínez, Jesper Koch og Hafdísi Bjarnadóttur í bland við spunakennda tónlist frá Kína, Grikklandi og Íslandi. Miðaverð í forsölu er 500 kr. (sendið tölvupóst á info @ hafdisbjarnadottir.com), en annars er miðinn seldur á 1.000 kr. við innganginn.
Lesa meira
Tveir tónleikar myrkra músíkdaga fara fram í Norræna húsinu. Þetta eru tónleikar með Tríó Vei og svo með finnska trommaranum Samuli en tónleikar hans eru sérstakt samstarfsverkefni Norræna hússins og Myrkra músíkdaga.
Skrifstofur Norræna hússins eru lokaðar í dag vegna starfsmannadags. Móttaka opnar kl. 12.00. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum ykkar til nh@nordice.is.
Hrafnhildur Arnardóttir, einnig þekkt sem Shoplifter, hlaut norrænu textílverðlaunin í ár. Verðlaunin verða afhent í Borås, Svíþjóð, 10. nóvember en þá opnar einnig sýning með verkum Hrafnhildar í textílsafninu í Borås. Hrafnhildur hefur verið ráðin sem sýningarstjóri Nordic Fashion Biennale sem verður í Seattle 30.september - 13. nóvember.
Norræna húsið óskar Hrafnhildi innilega til hamingju með þennan vel verðskuldaða heiður.
Sunnudaginn 30.janúar kl. 20.00 mun Finnsk/sænska ljóðskáldið Solja Krapu vera með uppistand í sal Norræna hússins. Solja hefur gefið út fjölda ljóðabóka og tekið þátt í ljóðaslammi.
Lesa meira
Grafíklistamaðurinn Jens Damkjær Nielsen sýnir í anddyri Norræna hússins 22.janúar - 13.febrúar. Sýningin opnar kl. 16.00, laugardaginn 22.janúar, allir velkomnir.
Norræna húsið sýnir alla leiki íslenska landsliðsins á breiðtjaldi í sal hússins. Úrslitaleikirnir verða auk þess sýndir þegar að þeim kemur. Aðgangur er ókeypis og allir handboltaaðdáendur eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Hótel og veitingaskipið MS Sjøkurs er á leið til Íslands. Áfangastaður þess er Húsavík en þar verður haldin norræn strandmenningarhátíð dagana 16.-23.júlí.
Dómnefnd velur verðlaunahafa Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 á fundi sínum í Ósló 12. apríl 2011. Sama dag verður tilkynnt hver hlýtur verðlaun.
Íslenskum hönnuðum gefst þar tækifæri á að hitta norræna kaupendur, framleiðendur og seljendur hönnunar í þeim tilgangi að kynna fyrir þeim verk sín. Markmiðið er að skapa íslenskri hönnun brautargengi á einum mikilvægasta markaði Íslands, Norðurlöndunum. Skemmst er frá því að segja að verkefnið þóttist takast vel fyrir ári og urðu til viðskiptasambönd sem þegar hafa borið ávöxt.
Norræna húsið leitar að helgarstarfsmanni.
Unnin er önnur hver helgi frá 12-17.
Um er að ræða starf í móttöku Norræna hússins og felst vinnan í ýmis konar þjónustu við viðskiptavini Norræna hússins m.a. í formi símsvörunar og afgreiðslustarfa.
Viðkomandi þarf að vera samviskusamur, með þjónustulund, tala góða íslensku, ensku auk skandinavísku.
Lesa meira
orkuaudlindir.is ATH: Karaókí er líka í Kántrýbænum á Skagaströnd, Bolungavík, Bókakaffinu á Selfossi og á Akureyri.
Á þréttándanum lætur þjóðin rödd sína heyrast: Í Norræna húsinu og um allt land ætlar landsþekkt tónlistarfólk og áhugafólk að stíga á stokk og flytja orkumikinn óð til náttúrunnar. Eru allir hvattir til að taka þátt og syngja sitt uppáhaldslag í stærsta karaókíi Íslandssögunnar.
Hljóðbækur á norsku (cd eða mp3); K.Hamsun: "Sult", V. Sundstøl:"De døde", R. Jacobsen: "Det nye vannet", Anne Holt: "Pengemannen", Karl Ove Knausgård: "Ute av verden", Ambjørnsen: "Elling - elsk meg i morgen", J. Jonasson: "Hundraåringen som klev ut genom fönstret och försvann", Kepler: "Paganinikontraktet", U. Lindell, “Sukkerdøden”.....
Lesa meiraHerder Andersson sýnir í Norræna húsinu altarisklæði, hökkla, dúka og muni sem tengjast kristinni trú og handverki. Herder hefur frá árinu 2006 saumað alls 26 hökkla í öllum litum kirkjuársins ásamt stólum sem hann hefur gefið Langholtskirkju auk þess til annarra kirkna. Hann hannar mynstrin og velur litina sjálfur og eru þau bæði hefðbundið og nýstárleg.
Vakin er athygli á löngum útlánatíma á DVD myndum vikuna fyrir jól, fram yfir áramót. Myndir sem eru lánaðar frá 18. des til 23. des. þarf ekki að skila tilbaka fyrr en mánudaginn 3. janúar.Venjulega er bókasafnið opið alla virka daga og laugardaga og sunnudaga kl. 12-17. Skilakassi við dyrnar að safninu fyrir utan afgreiðslutíma. Bókasafnið er lokað frá 24. desember til og með 2. janúar 2011
Norræna húsið hefur sett saman tuttugu gjafir fyrir stráka og stelpur sem munu fara til Mæðrastyrksnefndar. Gjafirnar eru m.a. skemmtilegar þrautir tengdar Tilraunalandi Norræna hússins en þá sýningu ættu flest börn á Höfuðborgarsvæðinu að þekkja. Það er okkar ósk að þiggjendur gjafanna munu hafa af þeim gagn og gaman og viljum við hvetja aðrar stofnanir til að gera það sem þær geta til þess að styðja við bakið á þeim sem þurfa.
Jólakveðja frá Norræna húsinu.
Viltu breyta hjá þér og kynnast norrænni grafíklist í leiðinni? Bókasafn Norræna hússins Artótek eða listlánadeild bókasafnsins lánar út grafíklistaverk eftir íslenska og aðra norræna listamenn. Hægt er að fá allt að 3 myndir lánaðar í einu í 3 mánuði í senn. Eina sem þarf er bókasafnskort í bókasafni Norræna hússins sem kostar 1200 kr. á ári, koma í Artótekið í bókasafninu, velja grafíkverk og fá lánað.
Artótekið rekur sögu sína til ársins 1972. Það ár ákvað Norræna grafíkbandalagið að gefa Norræna húsinu 200 grafíkverk eftir norræna grafíklistamenn sem skyldi verða stofn að listlánadeild.
Björg Þorsteindóttir er menntuð í myndlist í Reykjavík, Stuttgart og París. Myndirnar, sextán að tölu, sem verða til sýnis í anddyri Norræna hússins eru allar frá kirkjugarðinum í Pori. Sýningin nefnist “Gengið um garðinn” stendur frá 8.-19. janúar 2011 og er opin frá kl. 12-17 daglega.
Lesa meira
Í tilefni af 15 ára afmæli félagsins, sem stofnað var 12. desember 1995, verður sýnd nýlega útgefin upptaka af uppsetningu Kirchner/Rosalie/Levine á Götterdämmerung í Festspielhaus.
Sýningin er öllum opin.
Lesa meira
Á hverjum degi, 1.-23.desember, kl. 12.34 verða óvænt atriði í jóladagatali Norræna hússins.
Það er ljóst hverjir taka þátt en gestir vita ekki hvenær hver er. Þannig er dagatalið líkt og óvænt gjöf.
Jóladagatalið er öllum opið, verið velkomin.
Tinna Þorsteinsdóttir leikur ný píanóverk eftir Slátur-meðlimi í Norræna húsinu, laugardaginn 18. desember klukkan 17:00. Miðaverð: 1500 kr. (1000 kr. fyrir nemendur og 5000 kr. fyrir gagnrýnendur)
Lesa meira
13.desember kl. 08.30 verður haldin Lúsíuhátíð að hætti Svía í Norræna húsinu. Sænski Lúsíukórinn á Íslandi flytur hefðbundin jólalög í tilefni dagsins. Það er hátíðleg og falleg stemning í Norræna húsinu þegar börnin birtast með kertaljósin sem lýsa upp mykvið. Stjórnandi kórsins er Maria Cederborg. Að loknum tónleikunum verður boðið upp á kaffi, glögg, lúsíuketti og piparkökur.
Lesa meira
Þriðjudaginn 23. nóvember kl 20.00 mun Guja Dögg Hauksdóttir, ásamt systrunum Hafdísi og Dagnýju Bjarnadætrum, segja frá sýningunni ”Nýtt norrænt landslag” (New Nordic Landscapes) sem var haldin í Shanghai í sumar í tengslum við Expo 2010. Á fyrirlestrinum verða sýningin og hönnunarferlið kynnt í máli, myndum og hljóðum.
Lesa meira
Ráðstefna á vegum Verkfræðingafélags Íslands. Aðgangseyrir 1500 kr.
Á þessari sýningu eru verk sem tengjast söguhetjum úr barnabókum frá Norðurlöndunum. Ísak og fjölskylda ferðuðust til Norðurlanda í sumar og heimsóttu m.a. Múmíndalinn í Finlandi, Vimmerby, fæðingarstað Astridar Lindgren í Svíþjóð og enduðum ferðalagið í Kardemommubænum í Kristianssand í Noregi. Söguhetjurnar á þessari sýningu hafa verið Ísak ákaflega hugleiknar frá barnæsku.
Teiknistofan h a p p y s p a c e frá Stokkhólmi, kynnir tillögu sína fyrir
svæðið sem liggur milli Ráðhússins og Nauthólsvíkurinnar. Tillagan er teiknuð að beiðni Norræna hússins. Tillagan byggir á landfræðilegum og jarðfræðilegum sérkennum svæðissins og endurheimt votlendissins. Fer fram í Ráðhúsinu kl. 12.00 5. nóvember
Lesa meira
Sýning á verkum úr Artóteki Norræna hússins er nú í Anddyri norræna hússins. Listlánasafn Norræna hússins tók til starfa árið 1976. Það var fyrsta
norræna listasafnið þar sem almenningi gafst kostur á að fá lánuð heim listaverk
Félagið Matur - saga - menning hefur fyrirlestraröð sína í vetur með því að bjóða til fundar um Norræna eldhúsið, en það er nýtt fyrirbæri í matarmenningunni. Meðal ræðumanna eru Mads Holm, verkefnastjóri fyrir norræna matarmenningu í Norræna húsinu, Úlfar Eysteynsson, veitingamaður, og Jón Þór Pétursson, þjóðfræðingur.
Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20:00.
Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í fjórða sinn í Reykjavík dagana 1. og 2. október næstkomandi þar sem rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum. Tilgangurinn er að sameina þá sem starfa í skapandi greinum, markaðsfólk og útgáfufyrirtæki á samvinnuþýðan máta og ræða þær breytingar sem hafa átt sér stað í menningarmiðlum.
Lesa meira
Nú er opið fyrir umsóknir í menningar og listaáætlun Norrænu menningargáttarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 15. september. Menningar- og listaáætlunin veitir styrki til verkefna á sviði allra menningar- og listgreina. Áætlunin veitir styrki til fagfólks og áhugafólks sem starfar að listum og menningarmálum.
Mikilvægustu matsþættir eru gæði verkefnis og nýsköpun.
Grafíklistamaðurinn Dovile Tomkute opnar sýningu sýna Tvær hliðar raunveruleikans í Norræna húsinu 27/8. Sýningin er í anddyrinu og stendur til 12/9.
Grænlenska hljómsveitin Nanook mun spila á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Sveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur síðan haldið tónleika um öll Norðurlöndin. Nánari upplýsingar og Miðaverð verður auglýst síðar.
Sýning á teiknimyndasögum eftir Magnús Ingvar Ágústsson í bókasafni Norræna hússins, neðri hæð. Sýningin stendur frá 19. júlí – 13. ágúst og er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins kl. 12-17 alla virka daga og um helgar.
Lesa meira
sunnudaginn 11. des. kl. 14 í bókasafni Norræna hússins.
Lesnar norskar jólasögur, sungin norsk jólalög og spjallað saman. Sögustundin er fyrir alla krakka sem tala og skilja norsku og foreldra þeirra.
Lesa meira
Myndin "Sumar á Íslandi" verður sýnd í Norræna húsinu Sunnudaginn 11.desember kl. 15.00. Aðgangur er ókeypis, allir eru velkomnir.
verður sérstök dagskrá og bein útsending í Norræna húsinu frá Stokkhólmi vegna afhendingar Nóbelsverðlaunanna í flokki bókmennta.
Sænski rithöfundurinn Tomas Tranströmer er viðtakandi verðlaunanna í ár.
Á laugardaginn þann 11. desember mun slagverkshljómsveitin Papii flytja tónleikar í Norræna húsinu. Hún spilar hefðbundna grænlenska þjóðlagatónlist í bland við nútímalegri takta. Papii er hlíðarverkefni tónlistarmanna hljómsveitarinnar Liima Inui. Tónleikarnir hefjast kl. 19. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs hefur tilnefnt Svar við bréfi Helgu eftir Bergvein Birgisson og Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2012.
Lesa meira
Í kvöld kl. 21:05 sýnir RÚV þáttinn „Komdu að sigla“ sem Norræna húsið lét framleiða í sumar í tengslum við Norræna strandmenningarhátíð sem haldin var á Húsavík í júlí. Norræna húsið skipulagði heilmikla dagskrá sem samanstóð af handverkssýningum, fyrirlestrum, tónleikum og leiksýningum sem á einhvern hátt tengdust strandmenningu Norðurlandanna.
Lesa meira
Komdu og upplifðu "óvæntan" atburð.
Á hverjum degi kl. 12.34 frá 1. desember og fram til jóla opnum við nýjan glugga á dagatalinu og gestir fá að njóta skemmtiatriðis í sal Norræna hússins.
Allir gestir dagatalsins fá óáfengt jólaglögg og piparkökur til að gæða sér á.
Lesa meira
Síðdegis sunnudaginn 27. nóvember kl. 16.00 verður skammdeginu sagt stríð á hendur. Vopnuð laglínum, sem fólk hefur sungið sér til skemmtunar í aldaraðir, munu þau Niall Chorell, Laura Pyrrö, Ágúst Ólafsson og Eva Þyri Hilmarsdóttir reyna að bæta skap og létta lund landans með söng og píanóleik. Miðaverð 2500 kr.
Regin Weihe Dalsgaard sýnir myndir af grindarhvaladrápi í Færeyjum á sýningunni sinni "2 mínótur" sem opnar 14.janúar og stendur til og með 12. febrúar. Myndirnar varpa óvenjulegu ljósi á viðfangsefnið. Meginþema sýningarinnar eru viðbrögð áhorfenda á grindarhvaladrápin en ekki drápin sjálf. Sjón er sögu ríkari.
Fimmtudaginn 24. nóvember kl. 19.45
Hrífandi menningarkokteill í Norræna húsinu!
Herman Lindqvist sænskur metsöluhöfundur kynnir hið merka rit sitt um Napóleon og Tríó Inga Bjarna Skúlasonar leikur jazz fyrir gesti kvöldsins. Veitingar í boði.
Lesa meira
Föstudaginn 18. nóvember frá kl. 9:00-17.30 verður málþing á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við rannsóknarsetur og háskóla á Norðurlöndunum og við Eystraslatið. Viðfangsefni málþingsins er að varpa ljósi á þær leiðir sem þessi smáríki hafa valið til að bregðast við áskorunum alþjóðasamfélagsins á sviði efnahagsmála.
Síðasti fyrirlestur haustsins um arkitektúr verður 17.nóvember kl. 20.00.
Þá mun Sigurður Einarsson frá Batteríinu Arkitektum segja frá hugmyndafræði og mótun Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Lesa meira
Samsýning Sigurðar Þóris og Sigurðar Örlygssonar opnar í sýningarsölum Norræna hússins 26. nóvember og stendur til 9.janúar.
Opnun sýningarinnar er 26. nóvember kl. 16.00. Vertu velkominn.
Sýningin er opin alla daga frá 12-17. Lokað mánudaga.
Lesa meira
Sunnudaginn 9. október mun Lilja Eggertsdóttir sópran halda ljóðatónleika í Norræna húsinu ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara.
Dagskrá tónleikanna inniheldur helst ljóð eftir finnska tónskáldið J. Sibelius en einnig íslensk sönglög og ljóð eftir Grieg og R. Strauss.
Lilja er ein af 27 þátttakendum , sem munu taka þátt í alþjóðlegu
Sibeliusar söngkeppninni í ljóðasöng en hún er haldin í Järvenpää, dagana 23.-29. okt 2011. Hún er eini keppandinn frá Íslandi.
Tónleikarnir hefjast kl. 18.15.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
Hvaðan koma hin prósentin? Laugardaginn 24. September kl 12:00
Málþing WIFT og RIFF um fjármögnunarferli kvikmynda á Íslandi. Erfitt er að hafa tæmandi yfirsýn yfir þá möguleika sem eru í boði fyrir Íslendinga í fjármögnunarferli kvikmynda og hljóta ýmsar leiðir að vera ókannaðar.
Lesa meira
Lone Scherfig, laugardaginn 24. september kl 14:30
Lone Scherfig er meistari í hárfínni persónusköpun. Trekk í trekk sýnir hún okkur smá en mikilvæg atriði sem svipta hulunni af hinu góða og hinu illa án þess að það komi niður á sjálfri framvindu sögunnar. Þótt tónninn sé ætíð léttur þá er samt eitthvað harmþrungið að verki innra með persónum Scherfig, sem eru oftar en ekki venjulegt en svolítið sérviturt fólk.
Þann 25. September verður sýnd myndin El Bulli og af því tilefni af mun veitingastaðurinn Dill bjóða upp á sérstakan matseðil innblásinn af veitingahúsinu. Veitingastaðurinn El Bulli er lokaður hálft árið á meðan stjörnu kokkurinn Ferram Adriá og samverkamenn hanns halda sérlega matarsmiðju í Barcelona þar sem þeir búa til nýjan matseðil fyrir næsta ár.
Lesa meira
Í tengslum við RIFF er ljósmyndasýningin "Subjective Portraits" eftir Alex Galmeanu sett upp í anddyri Norræna hússins. Á sýningunni má sjá portrettmyndir af þekktum rúmönskum leikurum og kvikmyndagerðarmönnum. Sýningin opnar 24.september og stendur til 2. október.
Norræna húsið er sem fyrr einn af aðalstyrktaraðilum RIFF. Þann 25. September verður sýnd myndin El Bulli. Af því tilefni mun veitingastaðurinn Dill bjóða upp á sérstakan matseðil innblásinn af veitingahúsinu. Þær myndir sem sýndar eru í húsinu eru m.a. í flokkunum;náttúru/mannréttinda og matarmyndir.
Lesa meiraSjötta alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils verður haldin dagana 21.-23. október. Blásið Verður til pallborðsumræðna um ljóðlist undir stjórn Benedikts Hjartarsonar bókmenntafræðings í Norræna húsinu laugardaginn 23. október.
Lesa meira
Ljósvakaljóð er stuttmyndahátíð fyrir 15 - 25 ára. Hátíðin er haldin í fimmta skipti í ár og unnin í samstarfi við dvoted.net, Reykjavíkurborg, Zik Zak Filmworks og Norræna húsið.
Í tilefni af útgáfu ljóðabókar Kjell Espmark, Vetrarbraut, í þýðingu Njarðar P. Njarðvík, og heimsókn höfundarinns til Íslands verður efnt til ljóðastefnumóts í Norræna húsinu. Lesið verður upp úr Vetrarbraut á bæði íslensku og sænsku. Viðburðurinn verður þann 18. október og hefst kl. 17.00 , aðgangur ókeypis.
16. október opnar, í Norræna húsinu, ein stærsta vatnslitasýning sem haldin hefur verið á Íslandi. 105 verk verða á sýningunni eftir 105 listamenn frá öllum norðurlöndunum. Sýningin verður bæði í sýningarsal Norræna hússins og í Anddyri en þar sýna ungir íslenskir myndlistarmenn. Sýningin er til 7. nóvember.
Sýningin saman stendur af gjöfum til Norræna hússins. Hlutirnir tengjast allir tónlist á einn eða annan hátt.
Lúður var gjöf til Norræna hússins 1975 frá Moras ungdomsspelmanslag í Svíþjóð.
Friðlandið í Vatnsmýrinni – friðland í miðri borg.
24.06 kl. 10.00- 12:00 í Norræna húsinu
Norræna húsið efnir til málþings um tækifærin sem felast í friðlandi í miðri borg og möguleikum til endurbóta á núverandi ástandi.
Völuspá - A Nordic Food Expedition er samstarfsverkefni leikhússins Republique í Kaupmannahöfn, Norræna hússins og DILL veitingastaðar og byggist bæði á ævafornum textum Völuspár og norrænni matarmenningu. Verkið verður flutt dagana 23. október til 2. nóvember 2011 og er einkum ætlað fullorðnum.
Miðvikudagskvöldið 14. september kl. 20 verða haldnir tónleikar Í Norræna Húsinu á vegum Klassíkur í Vatnsmýrinni, sem er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið. Eru þetta þriðju tónleikar starfsársins og flytjandi verður píanóleikarinn Miklós Dalmay.
Lesa meira
15.september opnar Kultur Kontakt Nord fyrir umsóknir um styrki til tengslaneta. Hægt er að sækja um styrk fyrir uppbyggingu tengslanets innan lista- og menningargeirans á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum.
Þurrkar, flóð, hitabylgjur, skordýraplágur, skógareldar, hækkun sjávar – við sjáum raunverulegar afleiðingar loftslagsbreytinga á hverjum degi. Fimm árum eftir að kvikmyndin An Inconvenient Truth kom út heldur Nóbelsverðlaunahafinn og fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, alþjóðlegan viðburð sem sameinar heimsbyggðina á ögurstundu í hnattrænni meðvitund til að koma áleiðis mikilvægum skilaboðum: Loftslagsbreytingar eru staðreynd og þær eru þegar hafnar. http://climaterealityproject.org/events/husavik/ 14.september kl. 19.00 í Norræna húsinu
Lesa meira
Haldið verður upp á 100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar í Norræna húsinu mánudaginn 23. ágúst 2010. Fram kemur fjöldi listamanna ásamt því að flutt verða erindi úr sögu íslenskrar tónlistar.
Lesa meiraHljómsveitin Silfurberg samanstendur af sex einstaklingum, söngkonu og fimm hljóðfæraleikurum, en leiðir þeirra lágu saman í Tónlistarskóla FÍH. Í sumar ætlar hljómsveitin að flytja norræn þjóðlög í eigin útsetningum fyrir gesti og gangandi víðs vegar um Reykjavík. Silfurberg spilar í Norræna húsinu kl. 12.00 30.júní.
Lesa meira
Velflest börn á Íslandi ættu að kannast við vísindasýningu Norræna hússins og Háskóla Íslands, Tilraunalandið. Sýningin opnaði í byrjun apríl á þessu ári og sló í gegn. Í sumarbyrjun flutti sýningin út í skála á lóð Norræna hússins og í Júlí hóf hún sig af stað í ferðalag um Ísland. Nú fer að líða að sýningarlokum en næsta helgi síðasta opnunarhelgi Tilraunalandsins.
Þér er boðið á opnun ljósmyndasýningu Nysos Vasilopoulos laugardaginn 25. september kl. 16.00 í Norræna húsinu. Sýningin er hluti af dagskrá RIFF. Verið hjartanlega velkomin.
Vínþjónasamtök Íslands með Peter Lehmann og Vin d´Alsace eru gestgjafar Norðurlandamóts vínþjóna að þessu sinni. Keppnin fer fram í Norrænahúsinu dagana 21 og 22 september. Þar mæta til leiks tveir keppendur frá hverju landi eða 10 bestu vínþjónar norðurlanda og þó víða væri leitað og keppast um titilinn vínþjónn Norðurlanda 2010.
Kría Brekkan flytur frumsamda tónlist undir kvikmyndinni The Fall of the House of Usher eftir Jean Epstein, en myndin er frá árinu 1928 og er byggð á sögu eftir Edgar Allan Poe. Kría heitir réttu nafni Kristín Anna Valtýsdóttir, ehn hún var í hljómsveitinni múm um langt skeið. Miðaverð er 2000 kr. 1500 kr. fyrir handhafa passa.
Markmið þessarar sýningar er að skoða nokkrar stórar evrópskar borgir og varpa ljósi á einmanaleikann og sorgina sem þær geyma. Hugmyndin er að afhjúpa virði vestrænnar menningar. http://nyssosv.com/
Danski kórinn Øre-sound heldur tónleika í Norræna húsinu 17. september næst komandi. Í kórnum eru fimmtíu meðlimir og þar af einn frá Íslandi. Á efnisskránni eru m.a. lög með Outlandish, Queen, Toto, Leonard Cohen og The Beach Boys.
Miðvikudagskvöldið 22. september kl. 20:00 verða haldnir í Norræna húsinu fyrstu tónleikar vetrarins undir yfirskriftinni „Klassík í Vatnsmýrinni“. Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari og Elísabet Waage, hörpuleikari, leika verk eftir Louis Spohr, Jórunni Viðar og Béla Bartók en auk þess frumflytja þær nýtt verk eftir Þuríði Jónsdóttur.
Miðvikudaginn 1. september býður Alþjóðamálastofnun og rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands til hádegisfundar með Dr. Jyrki Iivonen, yfirmanni upplýsingadeildar finnska varnarmálaráðuneytisins. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 12.
Lesa meira
Gáman (DK) kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu 1.9 kl. 21.00. Húsið opnar kl. 20.00 og miðasala er við inngang. Meginviðfangsefni Gáman tríósins er að tvinna saman gamla norræna alþýðutónlist og nýjar tónsmíðar. Gáman snýr upp á menningararfinn á nýstárlegan hátt og er útkoman engu lík.
Föstudaginn 25. júní næstkomandi kemur út á vegum forlagsins Uppheima bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana.
Lesa meiraDanski kórinn Gimsingers kemur frá náttúruperlunni Struer við Limafjörðinn á vestur Jótlandi.
Gimsingers er blandaður kór sem samanstendur af 22 meðlimum. Efnisskráin er fjölbreytt blanda af sígildum lögum og ryþmískri tónlist.
Enginn aðgangseyrir.
Lesa meira
Stavanger í Noregi hefur gefið Norræna húsinu 6 metra háan sandkassa hannaðan af teiknistofunni Happy Space í Svíþjóð. Sandkassinn var fyrst vígður þegar Stavanger var ein af menningarborgum Evrópu. Nú rís hann upp á lóð Norræna hússins, fyrir alla að njóta. Áætlað er að vígja sandkassann og útisvæðið 15.maí.
Kynnið ykkur dagskrána framundan.
Tónleikarnir hefjast alltaf kl. 21 og er 1.500 kr aðgangseyrir. Miðasala við innganginn.
Lesa meira
Í sýningarrými á fyrstu hæð Norræna hússins er sýning um aðdraganda og tilurð Listahátíðar í Reykjavík 1970. Það var Ivar Eskeland, fyrsti forstjóri Norræna hússins, sem átti hugmyndina að Listahátíð í Reykjavík.
Sýningin er frá 12.maí til 30.júní.
Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á nýjar og spennandi leiksýningar frá Norðurlöndunum. Að þessu tilefni verður haldið málþing í samvinnu við Norræna húsið um nýjustu strauma og stefnur í norrænu leikhúslífi.
Lesa meira
Í tilefni stofnunnar Menningarsjóðsins Kína-Ísland verður haldið ljóðaþing í Norræna húsinu 4.-7. október. Þingið sækja heim sex ljóðskáld frá Kína, tvö frá Japan auk fulltrúa frá hverju Norðurlandanna. Fjórum íslenskum skáldum er boðin þátttaka og eru þau: Sigurbjörg Þrastardóttir, Sigurður Pálsson, ...
Sýning með myndum Kristínar Rögnu úr Hávamálum er í anddyri Norræna hússins til og með 20.nóvember. Hávamál geyma orð Óðins og skiptast í sex þætti og þann þekktasta þeirra, Gestaþátt, hefur Þórarinn Eldjárn endurort fyrir þessa bók.
Lesa meira
Nýlega fékk bókasafn Norræna hússins danskar matreiðslubækur fyrir börn og unglinga, sem eru þó einnig áhugaverðar fyrir mömmur og pabba. Um er að ræða Prinsessekogebogen, Børn i køkkenet, Heibergs vilde dessertcirkus og fyrir unga fólkið Mad uden mor.
Lesa meira
Grænlenska listakonan Linda Riber sýnir portrettmyndir þar sem hún notar ljósmyndir af fólki, umhverfi og náttúru,auk textabrota úr viðtölum, til þess að skapa mynd af því hvað það er að vera grænlenskur. Sýning sem fjallar um þjóðerni og ímyndir.
Lesa meira
6. október kl 20.00 mun Signe Kongebro frá hinni margverðlaunuðu dönsku teiknistofu Henning Larsen Architects í Kaupmannahöfn halda fyrirlestur í Norræna húsinu.
Teiknistofan vann nýverið samkeppni um nýjar höfuðstöðvar Siemens í München.
Lesa meira
Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna
Laugardaginn 11. september kl. 14.00 gefst áhugafólki á öllum aldri
tækifæri til að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði.
Í sumar hefur eldhúsgarðurinn við Norræna húsið vaxið og dafnað í sumarblíðunni. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant
Norræna húsið býður nemendum, 10 – 12 ára og 13 – 15 ára að taka þátt í stuttu og skemmtilegu námskeiði í breikdansi. Námskeiðið er liður í Fjöreggi – Barnamenningu í Norræna húsinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Barnabækurnar um Tatu og Patu eru mjög vinsælar í Finnlandi og núna er hægt að fræðast um stafrófið í bókinni Tatun ja Patun oudot aakkoset. Einnig er mælt með bókunum um Heinähattu ja Vilttitossu. Fyrir alla sem hafa gaman af teiknimynda- sögum erum við með nýjar flotta finnskar teiknimyndasögur: Eero eftir Petteri Tikkanen, Jupu: baa- rien nainen eftir Johanna Tolonen og Minerva: Jääkarhun sydän eftir Juba.
Sunnudaginn 24. október kl. 15:15 eru tónleikar með Duo Harpverk. Tónleikarnir eru hluti af 15:15 Tónleikasyrpunni. Miðaverð er kr. 1500 og 750 fyrir öryrkja, eldri borgara og nemendur.
Tilraunalandið sýnir náttúruvísindin í nýju samhengi, á skemmtilegan og fjörugan hátt með áherslu á gagnvirkni og upplifun allra skilningarvita.
Gestir eru beðnir um að skrá sig í Tilraunalandið á netfangið nh@nordice.is og í síma 551 7030
Lesa meiraPallborðsumræðna um norrænt samtímaleikhús í Norræna húsinu, laugardaginn 4. september, kl.13:00-15:00. Steinunn Knútsdóttir, leiklistarkona stjórnar umræðum.
Dagskrá hátíðarinnar í Norræna húsinu
Sjá nánari upplýsingar um hátíðina á www.reykjavikjazz.is
Með Jesper De Neergaard, Johanna Tuukanen og Ragnheiður Skúladóttir
Þrír mikilsvirtir stjórnendur norrænna hátíða munu ræða efni sem varða spurninguna; Hvað er hátíð?
Hvenær: 13. ágúst kl 15:00
Hvar: Norræna Húsið
Tími: 2 klukkustundir
Verð: Ókeypis
Grænlenska hljómsveitin Nanook mun spila á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Sveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur síðan haldið tónleika um öll Norðurlöndin. Nánari upplýsingar og Miðaverð verður auglýst síðar.
Randi Ward er rithöfundur og ljósmyndari, fædd í Bandaríkjunum 1982 í Vestur Virginíu. Hennar fyrsta verk, ljósmynda og ljóðabókin, meditations on salt, var gefin út í Færeyjum 2007. Ljósmyndir og ljóð Randi hafa birst víða þar á meðal í Listasafni Færeyja, Gallery SO.ZO, Graffiti Magazine og víðar.
IKI verður með tónleika í Norræna húsinu kl. 20:00 á menningarnótt.
"Fallegar laglínur, skemmtilegar, lifandi, fallegar, grimmar sögur. Allt spunnið á staðnum! Í tónlistarsköpun IKI nota söngkonurnar bæði innsæi sitt og hvatvísi. Ungu söngkonurnar eru níu talsins og eiga rætur í Noregi, Finnlandi, Danmörku og á Íslandi. "
Ólöf Arnalds heldur tónleika í Norræna Húsinu þriðjudaginn 29.júní næstkomandi, þá fyrstu sem hún hefur haldið hér á landi í þónokkurn tíma.
Nýrrar plötu Ólafar, “Innundirskinni” er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún kemur út á vegum One Little Indian útgáfunnar í september.
Finnska kammersveitin, Elokuu - ensemble, verður með tónleika í Norræna húsinu 3.ágúst kl. 20.00.
Um er að ræða hóp sem hefur spilað saman í 10 ár. Þau hafa ferðast víða og gengið vel í alþjóðlegum keppnum.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.
Lesa meira
Ingólfur Vilhjálmsson bassa- og klarinettuleikari
Á efnisskrá eru einleiksverk fyrir klarinettur með elektróník:
Áki Ásgeirsson - 306° frumflutningur,
Páll Ívan Pálsson - “KhPff” frumflutningur,
Davíð Brynjar Franzson - Elimination of Metphysics (B)
Pei-Yu Shi- Zwei singende Klarinetten
Rodericdk de Man- Ecoute- ecoute
Klas Thorstensson- Spans
Almennt miðaverð er kr. 1500 en kr. 750 fyrir eldri borgara, öryrkja og nemendur
Lesa meira
7.júní kl. 20.30
Kórinn heitir "Hørsholm kórinn" og er eins og nafnið bendir til frá Hørshólmi, sem er bær á austanverðu Norður-Sjálandi, um 20 km. fyrir norðan Kaupmannahöfn.
Kórinn var stofnaður 1896 og var þá karlakór en hefur verið blandaður kór síðan 1962.
Undirleik í nokkrum verkum annars Örn Magnússon.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Lesa meira
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu dagana 15.-17. apríl 2010 í tilefni af áttræðis afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur og mun hún fara fram við Háskóla Íslands og í Norræna húsinu.
Lesa meiraSvæðadeild Félags leikskólakennara og Kennarafélag Reykjavíkur stendur fyrir opnum fundi um leik- og grunnskólamál með fulltrúum framboðanna.
Fundarstjóri verður María Ellingsen leikkona.
Leik- og grunnskólakennarar eru hvattir til að mæta og spyrja þá sem vilja stjórna Reykjavíkurborg næstu fjögur árin spjörunum úr. 26. maí kl. 17:30 – 18:30 í Norræna húsinu í Reykjavík
Fatahönnunarsýning tveggja íslenskra fatahönnunarnema, Öglu og Sigrúnar, frá Kolding, School of Design í Danmörku. Sýningin hefst 16.mars og er til 18.apríl.
Norræna húsið leggur sérstaka áherslu á börn og barnamenningu árið 2010. Sérstök barnadagskrá, Fjöregg Norræna hússins, verður kynnt í byrjun apríl og hefur hún að geyma fjölbreytta viðburði fyrir börn á öllum aldri. Við munum bjóða upp á sýningar, tónleika og margvíslegar smiðjur út árið fyrir börnin.
Rússnesk-ísraelski píanóleikarinn Albert Mamriev kemur til landsins og kynnir nýútkominn geisladisk sinn með Wagner-Liszt umritunum. Tónleikarn hans í Norræna húsinu verða mánudaginn 18. okt. kl. 20.00. Aðgöngumiðar kr. 2000 og 1000 kr. fyrir nemendur.
Norðurlandaráð og Norræna húsið bjóða til umræðukvölds um norrænar bókmenntir. Allir velkomnir.
Sýningin Budo: saga japanskra bardagalista opnar 21. nóvember kl. 14:00. Á sýningunni getur að líta muni er tengjast japönskum bardagalistum. Annars vegar endurgerðir og frumgerðir af vopnum, brynjum og hjálmum og hins vegar er fjallað um hvernig andi bardagalistanna hefur áhrif á japanskan hversdagsleika.
Norræna húsið kynnir með ánægju og tilhlökkun Airwaves-off venue- dagskrá sína. Við hefjum leikinn á fimmtudegi kl. 13.00 og munu alls sautján hljómsveitir stíga á stokk. Þar á meðal eru Pétur Ben (IS), Guðrið Hansen (FO), Dad Rocks! (DK), Team Me (NO), Agent Fresco (IS) og 22 Pistepirkko (FI). Tónleikadagskráin er frá fimmtudegi - laugardags en á sunnudaginn verða sýndar myndirnar Temporary Copenhagen og INNI, ný mynd um Sigur Rós.
Nú er komið að myndbandinu við næstu smáskífu, Crazy car, sem verður frumsýnt þessu sinni. Í laginu syngur Ólöf dúett með myndlistarmanninum og fyrrum glypspopparanum Ragnari Kjartanssyni, sem einnig kemur fram í myndbandinu, en hann leikstýrir því ásamt Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. Tónleikarnir í Norræna Húsinu hefjast kl. 21:00. Verð: 1.500
Nú komið að því að kynna Tilraunalandið víða um landið og er Landsvirkjun aðalstyrktaraðili ferðarinnar. Það er ekki ofsögum sagt að nánast öll börn á höfuðborgarsvæðinu þekki Tilraunaland Norræna hússins og Háskóla Íslands. Sýningin hefur slegið í gegn og mörg þúsund manns hafa gert sér ferð niður í Vatnsmýrina.
Lesa meira