HÁSPENNA! 15:15
Tónleikasyrpan
Tónleikar
í Norræna húsinu
sunnudaginn
9. maí kl. 15:15
30.4.2010
Fréttir
HÁSPENNA!
Ingólfur Vilhjálmsson bassa- og klarinettuleikari
Á efnisskrá eru einleiksverk fyrir klarinettur með elektróník:
Áki Ásgeirsson - 306° frumflutningur,
Páll Ívan Pálsson - “KhPff” frumflutningur,
Davíð Brynjar Franzson - Elimination of Metphysics (B)
Pei-Yu Shi- Zwei singende Klarinetten
Rodericdk de Man- Ecoute- ecoute
Klas Thorstensson- Spans
Almennt miðaverð er kr. 1500 en kr. 750 fyrir eldri borgara, öryrkja og nemendur
Ingólfur Vilhjálmsson lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1998, BA-prófi í klarínettuleik frá Konservatoríinu í Utrecht 2000 og Postgraduate-prófi frá Konservatoríinu í Amsterdam 2002. Kennarar hans voru Einar Jóhannesson og Sigurður Snorrason á Íslandi og Herman Braune og Harmen de Boer í Hollandi. Hann stundaði einnig nám í bassaklarínettuleik hjá Harry Sparnaay og hélt því námi áfram sem aðalfagi hjá Erik van Deuren í Konservatoríinu í Amsterdam og lauk BA-prófi í bassaklarínettuleik vorið 2004. Ingólfur var skiptinemi við Tónlistarháskólann í Köln hjá prófessor David Smeyers 2005-2006. Þar vann hann með heimsfrægum nútímatónskáldum, Helmut Lachenmann að einleiks stykkinu Dal niente og Toshio Hosokawa og var tekin upp af WDR (Vestur-þýska útvarpinu). Ingólfur hefur sótt masterclass-námskeið hjá Joseph Balogh, Karl Leister og Francois Benda ásamt einkatíma hjá hinum finnska klarinett gúru Kari Kriikku. Ingólfur hefur tekið þátt í Ung Nordisk Musik tónlistarhátíðinni, Myrkum Músikdögum hátíðinni, De Suite festival (Ijsbreaker, Amsterdam), Maerz Musik (Berlin) og frumflutt fjölmörg verk á Íslandi, Hollandi og Þýskalandi. Ingólfur hefur einbeitt sér alfarið að nútímatónlist undanfarin ár og þá sérstaklega að bassaklarinettunni og spilar einleiks stykki eftir tónskáld eins og Isang Yun, Franco Donatoni og Klas Thorstensson.