Danskur kór í Norræna húsinu
Danskur kór í Norræna húsinu
Tónleikar mánudaginn 28. júní kl. 15.00
Danski kórinn Gimsingers kemur frá náttúruperlunni Struer við Limafjörðinn á vestur Jótlandi.
Gimsingers er blandaður kór sem samanstendur af 22 meðlimum. Efnisskráin er fjölbreytt blanda af sígildum lögum og ryþmískri tónlist. Kórinn heldur tónleika bæði í kirkjum og á kaffihúsum. Kórinn hefur haldið tónleika í Svíþjóð, Færeyjum, Hollandi, Eistlandi og Þýskalandi. Þau hafa gefið út tvo geisladiska.
Stjórnandi kórsins er Per Odgård.
Enginn aðgangseyrir.


