Friðlandið í Vatnsmýrinni – friðland í miðri borg.
Friðlandið í Vatnsmýrinni – friðland í miðri borg.
24.06 kl. 10.00- 12:00 í Norræna húsinu
Norræna húsið efnir til málþings um tækifærin sem felast í friðlandi í miðri borg og möguleikum til endurbóta á núverandi ástandi. Til máls taka m.a. Erik Jeppesen prófessor við Árósarháskóla og Natalie Jeremijenko prófessor við háskólann í New York.
Norræna húsið setti á dögunum saman sérfræðihóp sem hefur til umfjöllunar framtíð friðlandsins. Markmiðið er að blása lífi í friðlandið og hefur verkefnið nú þegar hlotið fjölda styrkja meðal annars frá Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar og Auðlind. Málþingið er einn af mörgum þáttum á leiðinni að betra friðlandi.
Dagskrá:
10.00Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur:
“Tilgangur friðlandsins og ástand varpfugla”
10.15 Erik Jeppesen, prófessor í vatnavistfræði:
“Lake restoration and the possibilities of restoring the city lakes in Reykjavik”
10.40 Natalie Jeremijenko, professor við NY Háskóla:
“Wetlanding: on the spectacular possibilities and environmental services of urban wetland ecosystems”
11.00 Arnaldur Schram, arkitekt:
Arkítektúr, vistkerfi og landslag, framtíðarsýn á friðlandið”
11.15 Umræður og spurningar úr sal
Hinn virti prófessor, Erik Jeppesen, í vatnavistfræði frá Rannsóknardeild umhverfisstofnunnar Árósarháskóla flytur erindið: “Lake restoration and the possibilities of restoring the city lakes in Reykjavik. (Endurheimt vatnasvæða og möguleikar á endurbótum á tjörnum í Reykjavík).”
Natalie Jeremijenko prófessor við New York University og stofnandi xclinic, náttúru-heilsugæslu-stöð, flytur erindið: Wetlanding: on the spectacular possibilities and environmental services of urban wetland ecosystems. Natalie hefur verið valin ein af 40 áhrifamestu hönnuðum af ID Magazine og ein af 100 uppfinningamönnum heims af MIT Technology Review.
Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur, fjallar um tilgang friðlandsins og sögu.
Arnaldur Schram, arkitekt og samstarfsmaður Natalie Jeremijenko, fjallar um möguleika á uppbyggingu í kringum friðlandið.
Vatnasvæði þjóna mikilvægu hlutverki í vistkerfi jarðar sérstaklega þegar horft er til líffræðilegs fjölbreytileika og fæðuöflunar. Á síðustu áratugum hefur ofauðgun á næringarefnum ógnað lífríki vatna og tjarna um allan heim. Þetta mikla magn næringarefna veldur gruggugu vatni og fátækara lífríki. Rannsóknir Tjarnarinnar benda til að ofauðgun næringarefna sé til staðar í Reykjavíkurtjörn, Erik Jeppesen mun ræða möguleika á úrbótum og hvernig hægt sé að bæta vatnasvið Tjarnarinnar.
Aðgangur er ókeypis, allir eru velkomnir.
Allar upplýsingar um verkefnið veitir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, verkefnastjóri, s. 5517032 thuridur@nordice.is



