Ný bók eftir spennusagnahöfundinn Söru Blædel kynnt í Norræna húsinu
Ný bók eftir spennusagnahöfundinn Söru Blædel kynnt í Norræna húsinu
Föstudaginn 25. júní næstkomandi kemur út á vegum forlagsins Uppheima bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana. Sara Blædel var útnefnd af dönskum lesendum sem vinsælasti höfundur Danmerkur árið 2009 og í vali lesenda Søndagsavisen á rithöfundi ársins 2009 naut Sara mikilla yfirburða.
Í tilefni af útkomu bókarinnar er Sara Blædel væntanleg til Íslands. Kristján Kristjánsson útgefandi mun kynna höfundinn og síðan mun Sara lesa upp úr bókinni og sitja fyrir svörum í Norræna húsinu, föstudaginn 25. júní kl. 17.00.
Bækur Söru Blædel eru til á dönsku í Bókasafni Norræna hússins og hafa notið mikilla vinsælda á meðal notenda safnsins. Nú gefst lesendum einstakt tækifæri til þess að hitta sjálfan höfund bókanna og um leið er þetta kjörið tækifæri til þess að næla sér í spennandi lesefni í sumarfríið. Í káputexta er söguþræði lýst svo:
Konulík finnst á Vesterbro og allt er löðrandi í blóði; hún hefur verið skorin á háls á hrottalegan hátt. Louise Rick rannsakar málið ásamt félögum sínum í dönsku lögreglunni og allt bendir til að morðið tengist vændisstarfsemi í Kaupmannahöfn. Þegar annað hryllilegt morð er framið verður lögreglunni ljóst að hún á í höggi við nýja ógn – forherta glæpamenn sem skirrast ekki við að misnota saklaust fólk og misþyrma því grimmilega til að þjóna eigin gróðasjónarmiðum. Mansal er staðreynd á Norðurlöndum.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.



