• h1jq_OLOFsquare300dpi_2

Ólöf Arnalds heldur tónleika

23.6.2010 Fréttir

Ólöf Arnalds heldur tónleika í Norræna Húsinu þriðjudaginn 29.júní næstkomandi, þá fyrstu sem hún hefur haldið hér á landi í þónokkurn tíma.

 

Nýrrar plötu Ólafar, “Innundirskinni” er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún kemur út á vegum One Little Indian útgáfunnar í september. Tónleikarnir í Norræna Húsina marka þó útgáfu fyrstu smáskífu plötunnnar sem ásamt titillagi breiðskífunnar inniheldur einnig lagið ‘Close My Eyes' eftir bandaríska tónlistarmanninn Arthur Russell. Á tónleikunum verður einnig frumflutt myndband sem listamaðurinn Ásdís Sif Gunnarsóttir hefur gert við lagið ‘Innundir skinni'.

 

Fyrri sólóplata Ólafar, ‘Við og við' kom út árið 2007 og vakti stórkostleg viðbrögð; hlaut m.a. verðlaun sem plata ársins í flokknum ‘ýmis tónlist' á Íslensku tónlistarverðlaununum.Rétt eins og á nýju plötu Ólafar stjórnaði Kjartan Sveinsson þá upptökum. Á ‘Innundir skinni' nýtur hann aðstoðar Davíðs Þórs Jónssonar en aðrir sem leggja til vinnu og spilamennsku á plötunni eru m.a. Skúli Sverrisson, Shahzad Ismaily, María Huld Markan Sigfúsdóttir, Daníel Bjarnason, Matthías Hemstock, Róbert Reynisson, Ragnar Kjartansson og Björk.

Næst á döfinni hjá Ólöfu eru tónleikar með tveimur stórjöfrum poppsögunnar. Fyrst hitar Ólöf upp á þrennum tónleikum í London og Glasgow fyrir frönsku sveitina Air og síðan heldur hún til San Francisco og leikur þar tvívegis með Jonathan Richman.

Tónleikarnir í Norræna Húsinu hefjast kl. 21:00. Auk Ólafar leikur tónlistarkonan Adda ljóð sín og lög og Guðrún Eva Mínervudóttir les upp úr verkum sínum. DJ Klara vermir húsið sem opnar kl. 20:00

 

Atburður: Ólöf Arnalds - tónleikar

Staðsetning: Norræna Húsið

Dagsetning: þriðjud. 29.júní

Húsið opnar kl: 20:00

Atburður hefst kl: 21:00

Verð: 1.500

 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður í siggimaggi@gmail.com eða síma 694 8776






Þetta vefsvæði byggir á Eplica