• silfurberg

Hljómsveitin Silfurberg með hádegistónleika 30.júní

29.6.2010 Fréttir

Hljómsveitin Silfurberg samanstendur af sex einstaklingum, söngkonu og fimm hljóðfæraleikurum, en leiðir þeirra lágu saman í Tónlistarskóla FÍH. Í sumar ætlar hljómsveitin að flytja norræn þjóðlög í eigin útsetningum fyrir gesti og gangandi víðs vegar um Reykjavík. Útsetningarnar verða í notalegum, jözzuðum stíl og markhópurinn er því mjög breiður, allt frá börnum til þeirra heldri. Það er því um að gera að sperra eyrun í sumar því hver veit nema Silfurberg leynist með ljúfa tóna á næsta götuhorni! Silfurberg skipa: Lilja Björk Runólfsdóttir (söngur), Baldur Tryggvason (gítar), Sigmar Þór Matthíasson (bassi), Ingi Bjarni Skúlason (hljómborð), Þorvaldur Halldórsson (trommur) og Daníel Geir Sigurðsson (trompet). Hægt er að fylgjast með hópnum á www.facebook.com






Þetta vefsvæði byggir á Eplica