• iki_plakat

IKI - með níu röddum getur allt gerst

Stelpuhljómsveit í Norræna húsinu

30.6.2010 Fréttir

IKI er tónlistarupplifun! Fallegar laglínur, skemmtilegar, lifandi, fallegar, grimmar sögur. Allt spunnið á staðnum!

Öll tónlist IKI er spunnin á staðnum eða snarstefjuð. Í tónlistarsköpun IKI nota söngkonurnar bæði innsæi sitt og hvatvísi og hafa þær mikið unnið að því að syngja saman en á sama tíma gefa hver annarri pláss. Ungu söngkonurnar eru níu talsins og eiga rætur í Noregi, Finnlandi, Danmörku og á Íslandi en þær drógu sig saman árið 2009. Þær áttu það sameiginlegt að langa að prófa nýja hluti í tónlist. Söngkonurnar voru forvitnar um möguleika raddarinnar og að nota röddina sem hljóðfæri. Allar eru söngkonurnar sjálfstæðar söngkonur og hver með sína rödd og sérkenni.

IKI spinnur tónlist á staðnum, bæði frjálst og út frá mismunandi tónlistarlegum þemum.  Sönghljómsveitin vinnur með hljóð, hljóma, tungumál, laglínur og takt – einungis með því að nota röddina. IKI leggur sig fram um að hafa áhrif á öll skynfærin, og notar til þess hreyfingu, liti og ljós. IKI lagar sig að umhverfinu hverju sinni og tekur inn áhrif frá hverjum stað sem sungið er á. Tónleikar með IKI eru þess vegna einstök upplifun fyrir bæði augu og eyru.
IKI skapar tónlist í núinu - allt getur gerst!


IKI:

Anna Mose

Johanna Sulkunen
Mari Tveito
Sofie Holm
Mia Marlen Berg
Anna María Björnsdóttir
Guro Tveitnes
Kamilla Kovacs
Mette Skou

 


Heimasíður:

www.myspace.com/ikivocal
www.ikivocal.com

Bókanir og PR:

ikivocal@gmail.com

Anna María: +354 694 1834/

+45 50 58 26 56

 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica