• nanoook_smal_top

Nanook (GRL) með tónleika í Norræna húsinu 31.ágúst

2.7.2010 Fréttir

Hljómsveitin Nanook kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Húsið opnar kl. 20.00 og mun Nanook stíga á stokk kl. 21.45. kl. Hljómsveitin Rökkurró spilar á undan Nanook. Miðaverð er 1000 kr.

Nanook hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur  haldið tónleika um öll Norðurlöndin.

Hljómsveitin var stofnuð árið 2007 af bræðrunum Frederik K. Elsner (gítar og söngur) og Christian K. Elsner (gítar og söngur). Þeir ólust upp á litlum bæ á suður Grænlandi en fluttu síðan til höfuðborgarinnar, Nuuk. Hljómsveitin stækkaði rúmu ári seinna með meðlimina Ib Uldum (bassi og söngur), Martin Zinck (trommur) og Mads Røn (synthar og slagverk).

 

Hljómsveitin er með sterk tengsl við Danmörk, enda var fyrsti diskurinn þeirra tekinn upp þar. Tónlist þeirra er lýst sem tilraunakenndu popprokki þar sem gælt er við minnstu smáatriði. Fyrsta plata þeirra fékk nafnið  ”Seqinitta Qinngorpaatit” sem þýðir ”Sólin okkar skín á þig”. Allir textar Nanook eru á grænlensku.



http://www.myspace.com/nanooksite








Þetta vefsvæði byggir á Eplica