• LOCAL

Alþjóðlega leiklistarhátíðin LÓKAL verður haldin í Reykjavík dagana 1. til 5. september

30.7.2010 Fréttir

Alþjóðlega leiklistarhátíðin LÓKAL verður haldin í Reykjavík dagana 1. til 5. september n.k.   


Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á nýjar og spennandi leiksýningar frá Norðurlöndunum. Að þessu tilefni verður haldið málþing í samvinnu við Norræna húsið um nýjustu strauma og stefnur í norrænu leikhúslífi.

    Hægt er að kaupa sig inn á sex af sjö sýningum hátíðarinnar með því að verða sér úti um passa sem kostar 13.000 krónur. Með því sparast 30% af almennu miðaverði.
    Passarnir verða til sölu frá og með 4. ágúst n.k. Áhugasamir sendi inn pöntun á netfangið tickets@lokal.is, eða hringi í síma 8983412. Athugið að fjöldi passa er takmarkaður og því rétt að bregðast skjótt við!


Nánari upplýsingar um dagskrána og sýningarnar er að finna á heimasíðu okkar www.lokal.is
Við hvetjum alla áhugamenn um leikhús og listir til þess að gefa þessum frábæru norrænu listamönnum góðan gaum og skella sér í leikhús fyrstu helgina í september!

f.h. LÓKAL – alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Reykjavík
Ragnheiður Skúladóttir, framkvæmdastjóri  


Eftirtaldir leikhópar eru gestir LÓKAL 2010:

TEATER FAAR 302      (Kaupmannahöfn)
Danir sýna Dværgen, kraftmikla leiksýningu byggða á sögu Pär Lagerkvist. Leikstjórinn er íslenskur, Egill Heiðar Anton Pálsson. Verkið er unnið í samstarfi við norska leikhópinn Værk Produksjoner.

DE UTVALGTE  (Ósló)            
Frá Noregi kemur sýningin Drømmen, sem fjallar um örlagarík kynni ungs manns og eldri konu í hjólhýsi á yfirgefnum tennisvelli. Sýningin byggir að nokkru leyti á sönnum atburðum og er sjónrænt meistaraverk.

TEATR WEIMAR  (Malmö)        
Svíar leggja hátíðinni til sýninguna Ibsen dekonstruktion 1 – Gengangere, en í
þeirri leika tveir ungir menn, magnaða útgáfu af „Afturgöngum“ Ibsens. Þeir
eru skeggjaðir, annar þeirra er í síðkjól og leikmyndin er slitinn chesterfieldsófi og
fortjöld í 19. aldar stíl.

NYA RAMPEN  (Helsinki) 
           
Þessi finnski leikhópur fékk ekki leyfi til þess að setja upp leikritið „Undantekningin og reglan“ eftir Brecht og ákvað því að gera sína eigin útgáfu af verkinu sem þau kalla Undantaget. Þetta er spennandi og skemmtileg úttekt á Brecht og möguleikum ungs fólks til þess að hafa áhrif á gang heimsins. Ekki má gleyma tónlistinni sem er hreint frábær!

KVISS BÚMM BANG  (Reykjavík)    
Hið óviðjafnanlega þríeyki, sem þekkt er fyrir lífstílsviðburði á borð við „Get a Life“ og „The Norm Olympics“ setur á svið fund fulltrúa helstu iðnríkja heims. Viðburðurinn kallast The Great Group of Eight en engir áhorfendur eru að honum, aðeins áhugasamir þátttakendur! Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu

16 ELSKENDUR (Reykjavík)        
Fyrir nokkru síðan settu forvitnir Íslendingar, sem mynda leikhópinn 16 elskendur, sig í samband við fjármálasnillinga frá Nígeríu. Útkoman úr samskiptum þeirra varð leiksýning sem þau kalla Nígeríusvindlið. Getur verið að skáldskapur sé í raun helsti drifkrafturinn í mannlegum samskiptum?

Sérstakir gestir LÓKAL 2010 eru RIMINI PROTOKOLL (Berlín), en þar er á ferðinni einn kunnasti leikhópur Evrópu. Þau vinna ekki með hefðbundnum leikurum, heldur „venjulegu“ fólki. Sýning þeirra, Black Tie, er magnað „heimildaleikhús“ um hinar ýmsu hliðar ættleiðinga.

Rimini Protokoll hlaut evrópsku leiklistarverðlaunin 2008.


LÓKAL – alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík
er rekin af Lókal – leiklistarhátíð ehf í samstarfi við eftirtalda aðila:

Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Reykjavíkurborg
Nordisk Kulturfond
Iceland Express

Þjóðleikhúsið
Borgarleikhúsið
LHÍ
Iðnó
Norræna húsið
Hótel Sögu

L Ó K A L  -  I n t e r n a t i o n a l  T h e a t r e  F e s t i v a l / www.lokal.is  / lokal@lokal.is






Þetta vefsvæði byggir á Eplica