• Sunna

Jazzhátíð Reykjavíkur 14. – 29. ágúst 2010

Dagskrá hátíðarinnar í Norræna húsinu

4.8.2010 Fréttir

Jazzhátíð Reykjavíkur 14. – 29. ágúst 2010

Dagskrá hátíðarinnar í Norræna húsinu

Sjá nánari upplýsingar um hátíðina á http://www.reykjavikjazz.is/

15.8.2010
14.00
Spennandi tilraun fyrir alla fjölskylduna Ókeypis
Spilaðu á hljóðfæri á nýjan og spennandi máta.
20.00 Frelsissveit hins nýja Íslands. Kr 1500
Haukur Gröndal stýrir flutningi á tónlist kollega síns Óskars Guðjónssonar, sem innblásin(n) er af atburðum líðandi stundar.

16.8.2010
20.00 Sunna Gunnlaugsdóttir
Kr 2000
Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari og tónsmiður kynnir splunkunýja tónlist af nýútkomnum geisladiski sínum “The Dream”, sem stökk beint i 20. sæti CJM yfir spilun í jazzútvarpi í Bandaríkjunum. Óskar Guðjónsson á saxófón, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur.

17.8.2010
20.00
Trio Kyrill Kr 2000
Achim Kaufmann er þýskur píanist sem hefur undanfarin ár verið búsettur í Amsterdam og tekið virkan þátt í hinu alþjóðlega jazzlífi borgarinnar. Hingað kemur hann til að búa sig undir Evróputúr í haust en músíkin á Kyrill er eitt af því ferskasta úr penna þessa snjalla spunameistara. Valdimar Kolbeinn Sigurjónson spilar á kontrabassa og Jim Black á trommur.

19.8.2010
20.00 og 22.00 Django Bates
Belovéd Bird Trio
Kr 2500
Breski píanistinn og tónsmiðurinn Django Bates ólst upp með blöndu afrískrar tónlistar, rúmenskrar þjóðlagatónlistar og jazztónlistar í eyrunum. Honum hafa einungis einu sinni fallist hendur, en það var þegar hann rak augun í spjöldin á píanóum hinnar konunglegu tónlistarakademíu. Á þeim stóð að á píanóin ætti alls ekki að spila jazz. Þar með fór ásetningur hans um nám í tónsmíðum út um þúfur og hann er sjálfmenntaður í þeim fræðum. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir stórkostlegan feril, stór verkefni og stórar hljómsveitir. Sumir segja hann meðal þeirra sem mesta ábyrgð bera á endurreisn breska jazzins með aðkomu sinni að stórsveitinni Loose Tubes á níunda áratugnum. Eitt er víst að á plötum hans má maður eiga von á bæði píanósólóum og risavöxnum hljómsveitarverkum. Á unglingsárunum voru átrúnaðargoð Django Bates ekki úr röðum knattspyrngoða heldur fann hann sitt átrúnaðargoð í Charlie Parker, og á meðan aðrir fóru á völlinn sat Bates við og hægði á 78 snúninga plötum til að snúa ofan af hinum undraverðu saxófónlínum. Það var ekki fyrr en 2005 sem Django Bates lét verða af því að gera tónlist Charlie Parker skil og til þess valdi hann píanótríóið sem sinn vettvang. Meðspilarar hans á tónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur eru Peter Bruun á trommur og Petter Eldh á kontrabassa.

20.8.2010
20.00
Stórsveit Reykjavíkur og Mariu Babtist Kr 2000
Stórsveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Mariu Babtist, en hún er þýskur stórsveitarhöfundur og píanóleikari.

22.08.2010
14.00 Spennandi tilraun fyrir alla fjölskylduna. Ókeypis. í gróðurhúsinu

Spilaðu á hljóðfæri á nýjan og spennandi máta.


24.8.2010
20.00
Daníel Friðrik Böðvarsson og Ari Bragi Kárason Kr 1500.
Gítarleikarinn Daníel Friðrik og trompetleikarinn Ari Bragi hafa þegar spilað sig upp að hlið þeirra bestu í íslensku jazzi þrátt fyrir ungan aldur. Ari Bragi stundar nám í New York og Daníel Friðrik heldur utan til framhaldsnáms í haust.
Dúettinn leikur frumsamda tónlist þeirra félaga.

29.8.2010
14.00 Spennandi tilraun fyrir alla fjölskylduna.
Ókeypis
Spilaðu á hljóðfæri á nýjan og spennandi máta.


 

Sjá nánari upplýsingar um hátíðina á http://www.reykjavikjazz.is/






Þetta vefsvæði byggir á Eplica