• h1jq_OLOFsquare300dpi_2

Ólöf Arnalds með tónleika

Ólöf Arnalds heldur tónleika í Norræna Húsinu miðvikudaginn 11.ágúst.

11.8.2010 Fréttir

Þessir tónleikar eru aðrir í röðinni í þriggja tónleika röð Ólafar í Norræna Húsinu í aðdraganda að nýrri plötu hennar.

Nýrrar plötu Ólafar, “Innundir skinni” er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún kemur út á vegum One Little Indian útgáfunnar í september. Fyrsta smáskífan af plötunni, samnefnd henni, kom út í júní og var myndbandið við innundir skinni heimsfrumsýnt á tónleikunum í Norræna Húsinu.

Nú er komið að myndbandinu við næstu smáskífu, Crazy car, sem verður frumsýnt þessu sinni. Í laginu syngur Ólöf dúett með myndlistarmanninum og fyrrum glypspopparanum Ragnari Kjartanssyni, sem einnig kemur fram í myndbandinu, en hann leikstýrir því ásamt Ásdísi Sif Gunnarsdóttur.

Tónleikarnir í Norræna Húsinu hefjast kl. 21:00. María Huld Markan Sigfúsdóttir leikur með Ólöfu í nokkrum lögum og Kristín Eiríksdóttir les upp úr verkum sínum. DJ Klara vermir húsið sem opnar kl. 20:00.
Miðaverð er 1.500 kr. og eru miðar seldir í forsölu á midi.is.

Húsið opnar kl: 20:00
Atburður hefst kl: 21:00
Verð: 1.500






Þetta vefsvæði byggir á Eplica