100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar í Norræna Húsinu
Haldið
verður upp á 100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar mánudaginn
23. ágúst 2010.
Fram kemur fjöldi listamanna ásamt því að flutt verða erindi úr sögu
íslenskrar tónlistar. Kynnir á dagskránni verður Halldór Halldórsson
(Dóri DNA).
Dagskrá:
Söguleg sýning á íslensku hljómplötunni verður í anddyri og stendur frá 23. – 27. ágúst.
...
Kl: 13:15 Skiptimarkaður í anddyri þar sem safnarar og aðrir unnendur tónlistar hittast og bera saman plötur sínar.
Kl: 14:00 Barnadagskrá - Gradualekór Langholtskirkju flytur syrpu af þekktum barnalögum frá 1965 – 1985.
KL:14:50 Ómar Ragnarsson heiðraður fyrir textagerð.
Kl: 15:10 Einsöngur - Garðar Thor Cortes syngur Dalvísur og önnur lög af íslenskum hljómplötunum.
Kl: 15:40 Ólafur Þór Þorsteinsson flytur erindi um fyrstu íslensku hljómplötuna og sögu 78 snúninga plötunnar.
Kl: 16:10 Ragnar Bjarnason flytur nokkur lög sem komu út á fyrstu íslensku 45 snúninga plötunum.
Kl: 17:10 Jónatan Garðarsson fjallar um íslenskar smáskífur og rokktímann milli 1950–1960
Kl: 17:50 Fjórtán Fóstbræður syngja nokkrar lagasyrpur.
Kl: 18:10 Gunnar Svavarsson ræðir um hæggengar hljómplötur – LP og SG hljómplötur.
Kl: 19:00 Skiptimarkaður í anddyri þar sem safnarar og aðrir unnendur tónlistar hittast og bera saman plötur sínar.
Kl: 21:00 Hljómsveitin Þeyr á 30 ára starfsafmæli á árinu og í tilefni þess mun hluti hennar ásamt ungu tónlistarfólki koma fram á 100 ára afmæli hljómplötunnar. Þau sýna meðal annars kvikmynd um Þeysara í þrjátíu ár, flytja gjörning og fremja tónlist.
Hljómsveitin Þeyr kom fyrst fram í Norræna húsinu 18. Nóvember 1980.
Kl: 23:00 Lok.
Dill býður uppá veitingar á afmælisverði.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.




