Opið fyrir umsóknir í Norrænu menningargáttina
Opið fyrir umsóknir í Norrænu menningargáttina
Nú er opið fyrir umsóknir í menningar og listaáætlun Norrænu menningargáttarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 15. september.
Menningar- og listaáætlunin veitir styrki til verkefna á sviði allra menningar- og listgreina. Áætlunin veitir styrki til fagfólks og áhugafólks sem starfar að listum og menningarmálum.
Þegar fjallað er um umsóknir frá áhugafólki eða sjálfboðaliðum, eru þau verkefni sem unnin eru í samstarfi við atvinnufólk sett í forgang.
Mikilvægustu matsþættir eru gæði verkefnis og nýsköpun.
Nánari upplýsingar eru að finna á http://kknord.org/lang-is/menningaraaetlanir/lista-og-menningaraaetlunin


