• logo_press_package_web2

YOU ARE IN CONTROL: Alþjóðleg ráðstefna skoðar tækifæri sem felast í stafrænni framtíð

30.8.2010 Fréttir

YOU ARE IN CONTROL: Alþjóðleg ráðstefna skoðar tækifæri sem felast í stafrænni framtíð
 

Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í fjórða sinn í Reykjavík dagana 1. og 2. október næstkomandi þar sem rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum. Tilgangurinn er að sameina þá sem starfa í skapandi greinum, markaðsfólk og útgáfufyrirtæki á samvinnuþýðan máta og ræða þær breytingar sem hafa átt sér stað í menningarmiðlum.

 

Ráðstefnan fer fram á Hilton Nordica hótelinu. Skráning er þegar hafin á www.youareincontrol.isog er ráðstefnugjald fyrir þá sem skrá sig fyrir 5. September á 33% afslætti eða 20.000 krónur en eftir það hækkar verðið í 30.000 krónur. Innifalið í ráðstefnugjaldi er aðgangur að öllum pallborðum og kynningum, þátttaka í vinnusmiðjum, hádegisverður báða dagana og kaffiveitingar.

Þegar hefur fjöldi virtra gesta staðfest þátttöku sína á ráðstefnunni, þar á meðal Ian Livingstone forstjóri tölvuleikjafyrirtækins Eidos en hann hefur meðal annars selt leikina Lara Croft og Dungeons & Dragons. Grammy verðlaunahafinn og söngkonan Imogen Heap verður einnig fyrirlesari sem og Anamaria Wills, framkvæmdastjóri Þróunarmiðstöðvar skapandi greina (Creative Industries Development Agency).
 
Í ár hefur YAIC að leiðarljósi fimm meginþemu sem hafa áhrif á allar skapandi greinar: fjármögnun með áherslu á nýja þjónustu sem sprottið hefur upp á netinu í kringum örfjármögnun, markaðssetningu í netheimum, höfundaréttarmál, vefviðskiptamódel og siðfræðilega viðskiptahætti.

Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, Hönnunarmiðstöð Íslands, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Reykjavik International Film Festival, IGI og Íslandsstofa standa að ráðstefnunni. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á www.youareincontrol.isog hjá Líneyju Arnórsdóttur, markaðs- og kynningarstjóra, liney@icelandmusic.is, s. 849 0573.

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica