Viðburðir

Tónleikar, sýningar, fyrirlestrar, gjörningar, leiðsagnir og margt fleira.

Norræna húsið býður upp á fjölbreytt úrval viðburða. Eitt meginhlutverk hússins er að styrkja böndin milli hinna norrænu þjóða sem og að miðla norrænni menningu. Viðburðir Norræna hússins bera því keim að þessu. Við fáum heimsóknir víðsvegar frá í heiminum og er hið norræna ávallt undirliggjandi þema í viðburðunum á einn eða annan hátt.

Í raun er hægt að skipta viðburðum Norræna hússins í þrjá flokka. Í fyrsta lagi  eru það hinir ýmsu viðburðir eins og tónleikar og sýningar, svo viðburðir sem húsið stendur sjálft fyrir og síðast stórir og umfangsmiklir viðburðir sem húsið tekur á móti s.s. RIFF og Iceland Airwaves.

Norræna húsið skipuleggur og heldur sjálft stóra viðburði og sýningar og má þá helst nefna Norræna tískutvíæringinn, List&ást&list, 101 Tokyo , Jóladagatal Norræna hússins og Reyfi.

Yfirlit yfir alla viðburði Norræna hússins

Norræna húsið kemur líka að öllum helstu menningarviðburðum Reykjavíkur s.s. Bókmenntahátíð í Reykjavík, Listahátíð í Reykjavík, Iceland Airwaves, RIFF-Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, Sequenses, Nordic Panorama og Jazzhátíð í Reykjavík.  





Þetta vefsvæði byggir á Eplica