Börn og ungmenni á Norðurlöndum


Valhalla

Á heimasíðunni Valhalla.norden.org er hægt að finna upplýsingar um það helsta sem er að gerast í menningarmálum barna og unglinga.



valhalla



Norðurlöndin fyrr og nú

nordurlondjpgVelkomin á nýja norræna vefsíðu fyrir börn og unglinga á Norðurlöndum: www.dr.dk/norden

 Vefsíðan er sameiginlegur norrænn vefur um Norðurlöndin og er sérstaklega ætlaður skólanemendum á grunnskólastigi.  Á vefnum eru upplýsingar um öll Norðurlöndin á dönsku, norsku, sænsku, finnsku og íslensku. Myndskeið og stuttir textar segja sögu Norðulandanna.

Sagan. Hlustið á lýsingar af blóðugum bardögum og hetjudáðum.

Landafræði. Við kynnumst fjöllum og djúpum fjörðum Noregs, þúsund vatnalandinu Finnlandi, eldfjöllum og heitum hverum Íslands. Svíðþjóð með sínum miklu skógum og fallega skerjagarði og flatlandinu Danmörku með sandströndum og eyjum.

Við kynnumst líka Sömum í norður Skandinavíu og mannlífinu á Grænlandi, Álandi og í Færeyjum og baráttu fyrir viðurkenningu og sjálfstæði.

Tungumál Norðurlanda eru ólík þótt sum þeirra séu skyld. Hlustið á norrænar raddir og málfar víkinganna.

Ungt fólk á Norðurlöndum. Hvað skiptir máli fyrir ungt fólk sem býr á Norðurlöndum? Ungir Norðurlandabúar segja frá högum sínum og draumum.

 Íslensk útgáfa:  http://www.dr.dk/Undervisning/Norden/is/Forside.htm