Norðurlöndin í fókus

32Norðurlöndin í fókus frá Reykjavík er verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem hófst 2001. Markmiðið er að miðla norrænni menningu og upplýsingum um það sem efst er á baugi hverju sinni í þjóðfélagsmálum á Norðurlöndum. Í dagskrá Norræna hússin eru viðburðir á vegum Norðurlandanna í fókus merktir sérstaklega. 

Verkefnið er starfrækt með mismunandi hætti í höfuðborgunum fimm og hefur mismikið fjármagn til ráðstöfunar. Hér í Reykjavík fellur verkefnið undir starfsemi Norræna hússins og skilar sér í fjölda menningarviðburða og skilvirkri upplýsingaþjónustu. Auk þess vinna fulltrúar Norðurlandanna í fókus saman að stærri verkefnum.

Norðurlöndin í fókus í:

Stokkhólmi, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki.