Norræna menningargáttin
Snertiflötur fyrir norrænt menningarsamstarf
Norræna menningargáttin er stofnun fyrir menningaráætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar; Lista- og menningaráætlunina og Ferða- og dvalarstyrkjaáætlunina. Áætlanirnar veita ýmis konar styrki til ólíkra verkefna, allt frá ferðastyrkjum til verkefna er ná yfir nokkurra ára tímabil.
Áætlanirnar eru opnar öllum listgreinum og menningarstarfi, en eru einungis ætlaðar atvinnufólki í listum og menningarstarfi.
Hægt er að sækja um nokkrum sinnum á ári. Sjá umsóknarfresti
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Norrænu menningargáttarinnar http://www.kknord.org/ eða hjá Kristínu Scheving á kristin[hjá]nordice.is
Norræna menningargáttin gegnir hlutverki framkvæmdastjórnar Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði menningaráætlana og sérfræðinganefnda, veitir upplýsingar og áætlanirnar og miðlar ráðgjöf til umsækjenda. Norrænu menningargáttinni er einnig ætlað að upplýsa um norrænt menningarsamastarf innan og utan Norðurlandanna. Stofnunin tók til starfa árið 2007, er staðsett á Sveaborg í Helsinki.


