Norræna ráðherranefndin

Norræna húsið heyrir undir Norrænu ráðherranefndina.

22

Norræna ráðherranefndin var stofnuð árið 1971. Í henni eiga sæti fulltrúar norrænu ríkisstjórnanna. Nefndin fjallar um hagsmunamál Norðurlanda og tekur ákvarðanir um framkvæmd samnorrænna verkefna í nánu samráði við Norðurlandaráð. Sjálfsstjórnarsvæðin þrjú taka einnig þátt í starfsemi nefndarinnar.

Norræna ráðherranefndnin er í raun samsett úr 11 minni nefndum fagráðherra sem hittast reglulega og bera m.a. ábyrgð á menningarmálum, umhverfismálum, menntun, rannsóknum, orkumálum og vinnumarkaðsmálum. Allar ákvarðanir ráðherranefndarinnar verða að vera samhljóma vegna þess að þær eru bindandi fyrir samstarfsríkin. Í sumum tilvikum þurfa þjóðþingin að staðfesta ákvarðanir ráðherranefndarinnar til að hrinda megi þeim í framkvæmd.

Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar er í Store Strandstræde 18 í Kaupmannahöfn og starfa þar um níutíu manns. Starfsemin er fjármögnuð með framlögum frá norrænu ríkjunum í réttu hlutfalli við íbúatölu og þjóðarframleiðslu. Norrænu ríkin skiptast á um að gegna formennsku í ráðherranefndinni, og á árinu 2009 leiða Íslendingar samstarfið.

Heimasíða Norrænu ráðherranefndarinnar http://www.norden.org  

nord_nmr_is_web