Norrænt samstarf um loftslagsmál
Norðurlöndin taka virkan þátt í alþjóðlegu loftslagssamstarfi. Eins og á öðrum sviðum umhverfismála reyna Norðurlöndin að vera í fararbroddi og ganga á undan með góðu fordæmi. Loftslagssamstarfið gegnir lykilhlutverki í norrænu samstarfi um sjálfbæra þróun, orkusamstarfinu, umhverfisstefnunni, norðurskautssamstarfinu og norræna hnattvæðingarferlinu. Norrænir vinnuhópar hafa verið settir á laggirnar til að hafa áhrif á alþjóðlega loftslagsstefnu.
Loftslagsbreytingar hafa áhrif á öll svæði heimsins, en greinilegust eru áhrifin á norðurskautssvæðinu þar sem hafís, jöklar og Grænlandsjökull bráðna.
Yfirlýsing norrænu forsætisráðherranna um loftslagsmál.


