Nýr norrænn matur
Verkefnið Nýr norrænn matur tengir saman matarmenningu Norðurlandanna og sjálfbæraþróun og kemur með aukna meðvitund um hvað er norrænt að matarborðinu.
Aukin eftirspurn er eftir matvælum sem búa yfir sérstökum hreinleika og eiginleikum sem taldir eru bæta heilsu fólks og stuðla að sjálfbærri þróun. Norðurlönd hafa sterka stöðu hvað þetta varðar í alþjóðlegu samhengi og með samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, Nýr norrænn matur og matargerðarlist, er bent á möguleikana sem felast í fjölbreyttu hráefni úr norrænni náttúru og matarhefðum. Áhersla er lögð á sjálfbæra þróun, lífræna ræktun, nálægð við framleiðanda og sölu beint frá bónda. Einnig er markmiðið að efla samstarf landanna á sviði matvælaframleiðslu og tengja hana verkefnum á sviði ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, byggðaþróunar og viðskipta.


