Dill restaurant
Velkomin á Dill Restaurant, nýnorrænt veitingahús staðsett í Norræna húsinu í Reykjavík. Dill Restaurant er hugar-fóstur þeirra Gunnars Karls Gíslasonar og Ólafs Arnar Ólafssonar sem hafa verið í farabroddi þegar kemur að nýnorrænu eldhúsi á Íslandi.
Dill Restaurant er ekki bara veitingahús heldur afleiðing draums þeirra félaga um persónulegan stað þar sem gestir fá ekki bara góðan mat og þjónustu, heldur verður máltíðin að upplifun þar sem norrænt hráefni er útbúið á nýstárlegan máta.
Við hlökkum til að deila þessum draumi með þér


