Tæknibúnaður

Salarkynni og húsbúnaður er með þeim hætti að unnt er að raða honum í samræmi við þarfir hvers og eins s.s. í hefðbundnar sætaraðir, hringi eða skeifur.

Hjá Norræna húsinu er hægt að leigja margvíslegan búnað til ráðstefnu- og fundahalda, til að mynda: Skjávarpa, fartölvur, tússtöflur, hljóðkerfi, hljóðnema og upptökbúnað, myndbandstæki, litskyggnuvél og sjónvarp.


Salurinn hentar vel fyrir hvort eð er fyrirlestra, kvikmyndasýningar eða tónleika.
Fyrir kvikmyndasýningar er öflugur háskerpu (Full HD) skjávarpi og mjög vandað fjölrása (5.1) hljóðkerfi með 5 Bose MA12EX hljóðsúlum og Genelec 7070 bassa. Púlt með föstum hljóðnema er í salnum og þráðlausir hljóðnemar fyrir kynningar eða spurningar um sal. Einnig er hægt að tengja fleiri hljóðnema eða hljóðblandara við kerfið fyrir stóra viðburði. Með snertiskjá í púltinu er hægt að stýra öllum fundarbúnaði (hljóði, mynd og ljósum) án aðstoðar tæknimanns í gegnum Crestron stjórnkerfið. Ýmsar uppraðanir eru mögulegar í salnum, allt eftir því hvað hentar atburðinum.




Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica