15:15 tónleikasyrpan
-
Febrúar
Svarta Rosor
Sunnudaginn 21. febrúar kl 15.15, halda tvær af efnislegustu tónlistarmönnum yngri kynslóðarinnar,
María Jónsdóttir, sópransöngkona, og Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanóleikari, tónleika
í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu. Á efnisskrá er úrval íslenskra og erlendra sönglaga og aría,
en yfirskrift tónleikanna, Svarta Rosor, er fengin af samnefndu lagi finnska tónmeistarans Sibeliusar .
Miðaverð: 1500 kr. - 750 kr fyrir eldri borgara og nemendur.
-
Mars
Á slóðum Xenakis
Sunnudag 7. mars kl. 15:15 verða flutt verk fyrir óbó og slagverk. Flytjendur eru Eydís Franzdóttir óbóleikari og Frank Aarnink slagverksleikari.
Á efnisskrá eru :
Þuríður Jónsdóttir: Nýtt verk fyrir óbó, frumflutningur
Doina Rotaru: Dincolo.... “Beyond....” fyrir óbó og slagverk
Riikka Talvitie: Neljä pientä taikaa fyrir óbó og slagverk
Atli Ingólfsson: Æting fyrir óbó, frumflutningur
Simon Holt: Banshee fyrir óbó og slagverk
Xenakis: Rebounds B, fyrir slagverk
Sólósería
Sunnudag 21.mars kl. 15:15 flytur Sveinn Lúðvíksson röð nýrra einleiksverka. Frumflutningur.
- Apríl
Barber, Berg og Duparc.
Sunnudag 18. apríl kl. 15:15. Anna Jónsdóttir, sópran, og Brynhildur Ásgeirsdóttir, píanóleikari, flytja sönglög eftir Barber, Berg og Duparc.
- Maí
Háspenna!!
Sunnudaginn 9. maí kl. 15.15 eru síðustu tónleikarnir á vorönninni. Ingólfur Vilhjálmsson klarinettuleikari flytur nokkur ný og frumsamin verk eftir m.a.
Áka Ásgeirsson, Pál Ívan Pálsson og Paul Frick.
Miðaverð á tónleikana er kr. 1500 og kr. 750 fyrir öryrkja, eldri borgara og nemendur.



