Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sýningin Íslensk Grafík 40 ára opnar laugardaginn 7. nóvember næstkomandi kl. 16 í Norræna Húsinu. Eins og titillinn gefur til kynna, er hún sett upp í tilefni af 40 ára afmæli félagsins, en u.þ.b. jafnmargir meðlimir taka þátt í sýningunni og hafa unnið ný verk út frá hugtakinu þrykk.
Dagskrá:
7. nóvember kl. 16 - Opnun
8. nóvember kl. 15 - Sýningarstjóraspjall með Aðalsteini Ingólfssyni
15. nóvember kl. 14 - Grafísk listsmiðja fyrir alla fjölskylduna - Allir geta þrykkt
22. nóvember kl, 15 - Listamannsspjall - Nokkrir listamannanna taka þátt í leiðsögn um sýninguna
29. nóvember kl. 15 - Samræður við Grafíkera - Reynsluboltar í grafík tala við sýningargesti
Sýnendur:
Anna Snædís Sigmarsdóttir, Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, Bjarni Björgvinsson, Daði Guðbjörnsson, Díana M. Hrafnsdóttir, Elísabet Stefánsdóttir, Elva Hreiðarsdóttir, Friðrika Geirsdóttir, Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Guðfinna Hjálmarsdóttir, Guðbjörg Ringsted, Gunnhildur Ólafsdóttir, Gunnhildur Þórðardóttir, Hanna Bjartmarz, Helga Ármanns, Iðunn Árnadóttir, Ingiberg Magnússon, Iréne Jensen, Jón Reykdal, Kristín Pálmadóttir, Kristjana F. Arndal, Laura Ann Valentino, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Marlies Wechner, Marilyn Herdís Mellk, Margrét Birgisdóttir, Margrét Jónsdóttir, Pjetur Stefánsson, Ríkharður Valtingojer, Rut Rebekka Sigurjónsdóttir, Sigrid Valtingojer, Sigríður Melrós Ólafsdóttir, Sigrún Ögmundsdóttir, Sigrún Eldjárn, S. Anna E. Nikulásdóttir, Soffía Sæmundsdóttir, Stella Sigurgeirsdóttir, Valgerður Björnsdóttir, Valgerður Hauksdóttir, Þórdís Elín Jóelsdóttir.
Íslensk Grafík (einnig kallað Grafíkfélagið) var stofnað í núverandi mynd árið 1969 en var upprunalega stofnað árið 1954. Meginliðurinn í starfsemi félagsins hefur lengst af verið rekstur verkstæðis auk sýningarhalds af ýmsu tagi, einkum sýningar á verkum félagsmanna innan lands og utan og útgáfa kynningarrita um íslenska grafíklistamenn og verk þeirra. Það hefur líka gefið út möppur með verkum félagsmanna og þannig stuðlað að aukinni dreifingu grafíklistar. Félagið hefur sömuleiðis staðið að kynningu á erlendri grafík hérlendis. Í félaginu eru í dag yfir 70 listamenn. Þeir einir eru meðlimir sem lokið hafa minnst 4ra ára námi frá viðurkenndum listaskóla og hafa starfað að listsköpun í minnst 2 ár.
Árið 1954 stofnuðu nokkrir myndlistarmenn félagið Íslensk grafík í þeim tilgangi að vinna að kynningu og eflingar grafíklistar hérlendis. Þetta voru Hafsteinn Guðmundsson, Jóhannes Jóhannesson, Jón Engilberts, Jón Þorleifsson, Kjartan Guðjónsson, Benedikt Gunnarsson og Veturliði Gunnarsson. Starfsemi félagsins lagðist fljótlega niður enda félagsmenn fáir og lítil aðstaða til að vinna listgrafík hér á landi á þeim tíma.
Árið 1969 var núverandi félag stofnað undir sama nafni. Aðalhvatamaður þess og fyrsti formaður var Einar Hákonarson. Ekki eru bein tengsl milli félaganna tveggja önnur en þau að nokkrir af meðlimum hins fyrra gengu í hið síðara við stofnun þess. Einnig var tekið upp merki gamla félagsins sem Jón Engilberts teiknaði á sínum tíma.
Á sama tíma og afmælissýningin stendur yfir verður sögusýning í sal félagsins að Tryggvagötu 17, hafnarmegin en hún verður opnuð 12. nóvember kl 17. Afmælissýningunni lýkur 5. desember en sögusýningin stendur til 31. janúar 2010 og sérstaklega ætluð skólahópum.
Frekari upplýsingar á vefsíðu félagsins http://www.islenskgrafik.is/
Nánari upplýsingar hjá sýningarnefnd félagsins
Soffía Sæmundsdóttir s.8987425
Gunnhildur Þórðardóttir s. 8983419
S. Anna Nikulásdóttir s. 6911299
Díana M. Hrafnsdóttir s. 6996597