Viðburðir Allt

Lesið fyrir börnin í desember

  • Sunday 6. December 2009 - Sunday 20. December 2009 kl. 13.00 -13.30
  • Saturday 12. December 2009 kl. 13.00 -13.30
  • Sunday 13. December 2009 kl. 13.00 -13.30
  • Saturday 19. December 2009 kl. 13.00 -13.30
  • Sunday 20. December 2009 kl. 13.00 -13.30

Í desember er mikið um að vera við undirbúning jólanna. Gott er því að taka sér hvíldarstund í asanum og njóta tímans með smáfólkinu.

Norræna húsið vill bjóða yngri kynslóðina sérstaklega velkomna í húsið um helgar en þá munu rithöfundar sækja húsið heim og lesa úr verkum sínum.

Lesturinn mun ætíð hefjast kl. 13.00 og kemur beint í kjölfar Jóladagatals Norræna hússins en það hefst ávallt kl. 12.34 dag hvern í desember.

Einnig er tilvalið að heimsækja barnabókasafn Norræna hússins í sömu ferð en þar er hægt að kúra sig með bækur í notalegum sófum og á púðum.


Dagskrá:


6/12 kl. 13.00:  Ragnheiður Gestsdóttir

12/12 kl. 13.00: Gerður Kristný ( allir velkomnir í prinsa- og prinsessubúningum)

13/12 kl. 13.00: Aðalsteinn Ásberg






Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica