Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í desember er mikið um að vera við undirbúning jólanna. Gott er því að taka sér hvíldarstund í asanum og njóta tímans með smáfólkinu.
Norræna húsið vill bjóða yngri kynslóðina sérstaklega velkomna í húsið um helgar en þá munu rithöfundar sækja húsið heim og lesa úr verkum sínum.
Lesturinn mun ætíð hefjast kl. 13.00 og kemur beint í kjölfar Jóladagatals Norræna hússins en það hefst ávallt kl. 12.34 dag hvern í desember.
Dagskrá:
6/12 kl. 13.00: Ragnheiður Gestsdóttir
12/12 kl. 13.00: Gerður Kristný ( allir velkomnir í prinsa- og prinsessubúningum)
13/12 kl. 13.00: Aðalsteinn Ásberg