Beint í leiðarkerfi vefsins.
Diana Shearwood er ljósmyndari sem býr í Montréal. Nýjasta verkefnið hennar, Bak við verslunarmiðstöðina, er mynd af hinu hversdagslega "matarlandslagi" eins og það birtist á sívaxandi fjölda flutningabifreiða sem aka um götur okkar og þjóðvegi. Með því að leggja áherslu á þessa fábreytilegu en um leið litríku hlið umhverfis okkar, hvetur hún áhorfendur að hugleiða framleiðsluvæðingu matarmenningar okkar. Einkum vill hún beina athygli á svokallaðar "matarmílur" þ.e. þá vegalengd sem maturinn ferðast frá túninu á diskinn. Samansafn mynda úr sýningunni hefur birst í bókinni FOOD, greina- og ljósmyndasafni gefið út á vegum Alphabet City, Toronto og MIT Press, Cambridge. Skoða má alla sýninguna á www.dianashearwood.com