Beint í leiðarkerfi vefsins.
S.L.Á.T.U.R-tónleikar í Norræna húsinu
Laugardaginn 5. september lýkur S.L.Á.T.U.R (Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík) tónleikaferð sinni um Norðurlöndin með tónleikum hér á landi í Norræna húsinu í Reykjavík, tónleikarnir hefjast kl. 20:30.
Flutt verða 8 verk eftir jafnmörg tónskáld, flytjendur verkanna eru nokkrir meðlimir samtakanna auk slagverksleikarans Frank Aarnink. Verkin á tónleikunum voru sérstaklega samin fyrir þessa ferð samtakanna sem hófst í lok júlí, haldnir hafa verið 5 tónleikar í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, og eru tónleikarnir í Norræna húsinu lokahnykkurinn á ferðalaginu.
Flutt verða verk eftir Áka Ásgeirsson, Davíð Brynjar Franzson, Guðmundur Steinn Gunnarsson, Hlynur A. Vilmarsson, Ingi Garðar Erlendsson, Jesper Pedersen, Pál Ivan Pálsson og Þráin Hjálmarsson.
Um S.L.Á.T.U.R:
Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík höfðu starfað um nokkurt skeið þegar þau voru formlega stofnuð í janúar 2008. Samtökin hafa staðið fyrir tónleikum og ýmis konar uppákomum og haldið listrænt ágengt félagsheimili og tónsmíðastofu. Samtökin eru vaxandi og fjölmargir hafa komið fram á tónleikum í nafni samtakanna. Markmið samtakanna eru: 1) að stuðla að síauknu listrænu ágengi meðlima sinna, 2) að kynna listrænt ágenga tónlist og hugmyndir, 3) að koma á tengslum við sambærilegar stofnanir víða um heim til að stuðla að samvinnu og auka þekkingu innan samtakanna. Umfram allt er það markmið listrænnar ágengni að búa til nýja menningu.
AÐGANGUR ÓKEYPIS