Beint í leiðarkerfi vefsins.
Frá hugmynd til framkvæmdar
Hugmyndin að sýningunni Einu sinni er varð til á fundi hjá HANDVERKI OG HÖNNUN í maí 2008. Á hverju ári eru haldnir fundir þar sem stjórn og starfsmenn HANDVERKS OG HÖNNUNAR hitta fulltrúa grasrótarinnar.
Hugmyndin var að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar með því að stefna saman tveimur ólíkum listamönnum. Tólf einstaklingar voru valdir af HANDVERKI OG HÖNNUN og hver þeirra valdi sér samstarfsaðila. Lagt var til að hver einstaklingur veldi sér samstarfsaðila af öðru sviði og af annarri kynslóð. Þetta var þó ekki gert að skilyrði.
Þema sýningarinnar „gamalt og nýtt ” var valið í samvinnu við hópinn. Á þessari glæsilegu sýningu sjáum við nýja nytjahluti sem unnir eru af þessum tólf pörum.
HANDVERK OG HÖNNUN hefur frá stofnun lagt mikinn metnað í að starfa um allt land þó skrifstofurnar hafi alltaf verið í Reykjavík. Sýningin Einu sinni er opnar í Safnasafninu á Svalbarðseyri 4. apríl 2008. Hún mun síðan verða sett upp víða um land, meðal annars á Ísafirði, Egilstöðum, Sauðárkróki, í Hveragerði og Reykjavík
Eitt af því sem skapað hefur HANDVERKI OG HÖNNUN sérstöðu meðal sambærilegra stofnana á Norðurlöndum og vakið athygli, er að þar starfa hlið við hlið faglærðir og ófaglærðir listamenn. Það er ásetningur HANDVERKS OG HÖNNUNAR að vinna gegn landamærum og sameina þá einstaklinga sem eru að vinna af fagmennsku að listsköpun. Þetta markmið skiptir miklu máli, ekki síst hinn dreifða hóp handverks- og listiðnaðarfólks sem vinnur utan höfuðborgarsvæðisins.
Sunneva Hafsteinsdóttir
Framkvæmdastjóri HANDVERKS OG HÖNNUNAR
www.handverkoghonnun.is handverk@handverkoghonnun.isAðgangur er ókeypis
Sýnendur eru: Anna Guðmundsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, George Hollanders,
Guðrún Á. Steingrímsdóttir,Guðbjörg Káradóttir, Frosti Gnarr, Guðný Hafsteinsdóttir,
Karen Ósk Sigurðardóttir, Inga Rúnarsdóttir Bachmann, Stefán Svan Aðalheiðarson,
Lára Gunnarsdóttir, Sigríður Erla Guðmundsdóttir, Lára Vilbergsdóttir, Fjölnir Björn Hlynsson, Ólöf Einarsdóttir, Sigrún Ólöf Einarsdóttir, Páll Garðarsson, Margrét Jónsdóttir, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Birna Júlíusdóttir, Sigríður Ásta Árnadóttir, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, Þorbergur Halldórsson og Ari Svavarsson
Myndir af nokkrum sýningargripum



Fjallaþyrpingar Flökkukindur Þingholtsrósin
Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir Sigríður Ásta Árnad. Inga Rún arsd. Bachman
og og og
Birna Júlíusdóttir Kristín Sigfríður Garðarsdóttir Stefán Svan Aðalheiðarson



Nói Ljósfar Handraði
Þorbergur Halldórsson Páll Garðarsson Lára Vilbergsdóttir
og og og
Ari Svavarsson Margrét Jónsdóttir Fjölnir Björn Hlynsson



Ferhyrningur Aparím með Apalín Foldarskart
Georg Hollanders Guðný Hafsteinsdóttir Lára Gunnarsdóttir
og og og
Guðrún Á. Steingrímsdóttir Karen Ósk Sigurðardóttir Sigríður Erla Guðmundsdóttir


Kólfur og Kringur Postulínsljós Fjögurra hnappa dúkur
Ólöf Einarsdóttir Guðbjörg Káradóttir Anna Guðmundsdóttir
og og og
Sigrún Ólöf Einarsdóttir Frosti Gnarr Tinna Gunnarsdóttir