Viðburðir Allt

Wildbirds & Peacedrums halda tónleika í Norræna húsinu 22.janúar

  • Friday 22. January 2010 kl. 21.00
  • 1500 kr.


 Miðasala er í Norræna húsinu, móttökunni.

Sænska hljómsveitin Wildbirds & Peacedrums mun heimsækja Ísland í lok janúar til þess vinna og taka upp með tónlistarmanninum Ben Frost.

Föstudaginn 22. janúar munu þau svo halda tónleika í Norræna húsinu.

 

Wildbirds & Peacedrums skipa hjónin Andreas Werliin og Mariam Wallentin. Tónlist þeirra byggist aðallega upp á rödd Wallentin og trommuslætti Werliin með slettu af raftakti inn á milli. Tónlist þeirra er best lýst sem blöndu af poppi, jass og blús og hefur bandinu t.d. oft verið líkt við Björk en þau hafa þó alveg sinn einstaka og sérstaka hljóm.

 

Hjónakornin hittust þegar þau voru bæði við nám í leik- og tónlistarskólanum Gothenburg Academy of Music and Drama árið 2004. Þau fóru fljótlega að gera tilraunakennda tónlist saman þar sem þeim fannst báðum rammi skólans vera of stífur. Fyrsta plata þeirra Heartcore kom út 2007 í Svíþjóð og ári síðar alþjóðlega. Platan var svo verðlaunuð sem besta jassplata ársins í Svíþjóð. Seinni plata þeirra, Snake kom út 2008 og hefur verið gefin út bæði í Svíþjóð og Bandaríkjunum.

 

Wildbirds and Peacedrums hafa túrað með m.a. sænsku söngkonunni Lykke Li, Efterklang, Bonnie Prince Billy og Deerhoof. Þau hafa spilað á fjölmörgum tónlistarhátíðum í Evrópu og eftir dvöl þeirra hér á Íslandi munu þau hefja sinn seinni túr um Bandaríkin.


Hildur Guðnadóttir, www.hildurness.com , mun opna tónleikana.

 

Tónleikarnir hefjast kl. 21.00

Miðaverð er 1500 kr. Miðasala er í Norræna húsinu, móttöku.

Myspace-síða Wildbirds and Peacedrums:

http://www.myspace.com/wildbirdsandpeacedrums

 


 


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica