Viðburðir Allt

Höfundahádegi í Norræna húsinu

  • Monday 1. February 2010 kl. 12.00 -13.00


 

Mánudaginn 1. febrúar klukkan 12 munu rithöfundarnir Óskar Guðmundsson og Einar Kárason spjalla um ævisögu Snorra sem Óskar sendi frá sér fyrir jólin. Bókin hlaut góðar viðtökur á meðal lesenda og gagnrýnenda þegar hún kom út.

 

Í ævisögu Snorra er fjallað um líf Snorra Sturlusonar (1178-1241) frá blautu barnsbeini allt til dánardags þegar hann var höggvinn í Reykholti. Snorri var mikill höfðingi á Sturlungaöldinni, sagnaritari og skáld og er hann meðal annars höfundur Heimskringlu.  Óskar leitar víða fanga þegar kemur að öflun heimilda um Snorra og setur efnið fram á einkar læsilegan hátt.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica