Beint í leiðarkerfi vefsins.
Regin Weihe Dalsgaard sýnir myndir af grindarhvaladrápi í Færeyjum á sýningunni sinni "2 mínótur" sem opnar 14.janúar og stendur til og með 12. febrúar. Myndirnar varpa óvenjulegu ljósi á viðfangsefnið. Meginþema sýningarinnar eru viðbrögð áhorfenda á grindarhvaladrápin en ekki drápin sjálf. Sjón er sögu ríkari.
Leikhúsupplifun fyrir börn í hæsta gæðaflokki þar sem börnin taka þátt og upplifa í miklu návígi töfra leikhúss, tónlistar og myndlistar. Sýningar hefjast 4.febrúar í Norræna húsinu. Sýningin er um 35 mínútur og listsköpunin á eftir um 45 mín.
Miðaverð: 1500kr.
Miðapantanir á www.midi.is og hjá Norrænahúsinu s: 551 7030
Lesa meiraNorræna húsið býður finnsku og finnskumælandi fólki upp á sögustund einu sinni á mánuði. Við hittumst í fyrsta sinn laugardaginn 24. september kl. 11. Við lesum fyrir börnin og kaffi á könnunni handa foreldrum. Sögustundin er ætluð fyrir börn á öllum aldri og foreldra þeirra. Allir velkomnir til að spjalla saman á finnsku!
Lesa meira
Síðasti fyrirlestur haustsins um arkitektúr verður 17.nóvember kl. 20.00.
Þá mun Sigurður Einarsson frá Batteríinu Arkitektum segja frá hugmyndafræði og mótun Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Lesa meira
Pirkko Lindberg, fædd 1942, hóf feril sinn sem rithöfundur árið 1989 með skáldsögunni Byte sem vakt athygli bæði gagnrýnenda og lesenda, bæði í Svíþjóð og Finnlandi. Sagan fékk ”J. H. Erkkopriset” sem besta frumraun höfundar 1990. Hún verður á höfundakvöldi kl. 20.00 12.september í Norræna húsinu
Lesa meira
Dansk Kvindeklub i Island indbyder igen i år til Fastelavn for danske og dansk-islandske børn.
Søndag den 6. marts Kl.15:00 slår vi katten af tønden i Nordens Hus. Sturlagata 5, Reykjavik.
Der vil blive slået katten af tønden og arrangeret lege for børn i alle aldre.
Når kattekongen er kåret bliver der serveret kaffe/te, saftevand og fastelavnsboler for alle.
Lesa meira
Sunnudaginn 15. janúar kl. 15:15 leika Greta Guðnadóttir fiðluleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari tónleika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu.
Almennt miðaverð: 2000 kr.
Eldri borgarar, öryrkjar og námsmenn; 1000 kr.
Kammerklúbburinn er um 20 manna hópur ungra, íslenskra tónlistarnemenda. Þeir koma úr fimm tónlistarskólum í Reykjavík, eru á aldrinum 8 til 18 ára, og spila á fiðlu, víólu, selló og píanó. Í Kammerklúbbnum spila þeir saman í sex kammersveitum, þjálfast með því í að spila tónlist með öðrum og afla sér nýrrar tónlistarreynslu.
Samstarf klúbbfélaganna byggir og faglegum metnði og vináttu.
15 15 Tónleikarnir, sunnudaginn 10. apríl eru tileinkaðir minningu Sigursveins D. Kristinssonar á 100
ára afmæli hans en einnig verða flutt verk eftir Nadia Boulanger, Robert
Schumann, Francis Poulenc, Franz Schubert, Charles Gounod, Erik Satie og
Claude Debussy.