Viðburðir Allt

Cornelis Vreeswijk í Norræna húsinu

  • Wednesday 24. February 2010 kl. 21.00
  • Friday 26. February 2010 kl. 21.00
  • Saturday 27. February 2010 kl. 21.00
  • Saturday 6. March 2010 - Saturday 6. February 2010 kl. 21.00
  • Friday 12. March 2010 - Friday 12. February 2010 kl. 21.00
  • Wednesday 17. March 2010 kl. 21.00
  • Saturday 27. March 2010 kl. 21.00

corneliusÍ kjölfar afar vel heppnaðrar útgáfu og tónleika um land allt á síðasta ári er nú efnt til nýstárlegrar tónleikaraðar í Norræna húsinu þar sem fléttað er saman tónlist og frásögn af lífi þessa einstaka trúbadúrs. Guðrún og Aðalsteinn gera Vreeswijk verðug skil og

eðalfínir textar og lög njóta sín til fulls.

Dagskráin verður flutt í örfá skipti og sætafjöldi er takmarkaður. Veitingastaðurinn Dill býður upp á tvíréttaðan matseðil á tilboðsverði sýningardagana. Kvöldskemmtun í sérflokki fyrir unnendur góðrar tónlistar!

Miðasala á midi.is og við innganginn.  Miðaverð kr. 2500

Cornelis Vreeswijk (1937-1987) var söngvaskáld, ljóðskáld og leikari, fæddur í IJmuiden í Hollandi, en fluttist 12 ára gamall

ásamt foreldrum sínum til Svíþjóðar. Hann ætlaði sér að verða blaðamaður, en tónlistin varð fljótlega helsta viðfangsefni hans. Biturt háð og samfélagsádeila í verkum hans aflar honum sífellt nýrra aðdáenda. Á ferli sínum sendi hann frá sér nokkrar ljóðabækur og á fimmta tug LP platna í Svíþjóð og Hollandi. Auk þess að vera vinsæll tónlistarflytjandi lék hann við góðan orðstír í leikhúsum og kvikmyndum. Cornelis Vreeswijk er jafnan talinn meðal helstu söngvaskálda Svía.

Skólavörðustíg 27 ▪ 101 Reykjavík ▪   Sími  562 1921 ▪ Netfang: dimma@dimma.is

www.dimma.is


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica