Beint í leiðarkerfi vefsins.
Arkitektafélag Íslands í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkitekta, Umhverfisráðuneytið
og Norræna húsið, heldur fyrirlestraröðina “Lýðheilsa og skipulag”.
Á HönnunarMarsi 2009 var haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur þriggja daga málþing sem bar sama heiti.
Vegna fjölda áskorana var ákveðið að endurtaka leikinn.
Að þessu sinni verður fyrirlestraröðin haldin í Norræna húsinu miðvikudagana 14., 21. og 28.apríl
kl. 17-19. Flutt verða um fimm stutt erindi hverju sinni.
Flytjendur næstkomandi miðvikudag eru : Arnar Þór Jónsson arkitekt, Þráinn Hauksson
landslagsarkitekt, Gestur Ólafsson arkitekt, Kristbjörg Traustadóttir landslagsarkitekt og
Orri Gunnarsson skipulagsfræðingur.
LÝÐHEILSA OG SKIPULAG-FYRIRLESTRARÖÐ UM SKIPULAGSMÁL Í NORRÆNA HÚSINU
Dagskrá miðvikudaginn 28.apríl kl.17-19
Flytjendur eru : Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi, Arnar Þór Jónsson arkitekt,
Kolbrún Þóra Oddsdóttir landslagsarkitekt, Magnús Jensson arkitekt, Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
B.Sc. líffræði og MPH nemi, Egill Guðmundsson arkitekt, Kristín S. Jónsdóttir hjá Umhverfisstofnun og
Árni Davíðsson frá Landssamtökum hjólreiðamanna.
Dagskrá miðvikudaginn 21.apríl kl. 17-19
Kynning á bíllausum lífstíl
Ásbjörn Ólafsson, Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni
Nytjagarðar, garðlönd í borgarlandi
Lilja Sigrún Jónsdóttir, læknir, og Hlynur Torfason, landfræðingur.
Stígar: Vannýtt auðlind til bættrar heilsu
Hermann Georg Gunnlaugsson, landslagsarkitekt.
,,Það er kortersgangur úr Norðurmýri
og niður á Lækjartorg" :Gerir græna byltingin okkur hraustari ?
Gísli Marteinn Baldursson, Formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur
Dagskrá miðvikudaginn 14.apríl kl.17-19
Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt: Bláþráðurinn og Græni stígurinn
Arnar Þór Jónsson, arkitekt: Skriðuklaustur - Leiðin að BREEAM vottun
Orri Gunnarsson, skipulagsfræðingur: Er allt falt ?
Gestur Ólafsson, arkitekt: Þéttbýlismyndun á suðvesturhorninu
Kristbjörg Traustadóttir, landslagsarkitekt: Heilsa og umhverfi, hönnun og skipulag
www.ai.is