Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu dagana 15.-17. apríl 2010 í tilefni af áttræðis afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Varðveisla framtíðar: Sjálfbærni tungumáls, menningar og náttúru og mun hún fara fram við Háskóla Íslands og í Norræna húsinu.
Ráðstefnan samanstendur af lykilfyrirlesurum ásamt samhliða málstofum þar sem fjallað verður um bókmenntir, menningu og tungumál frá ýmsum sjónarhornum.
Meðal lykilfyrirlesara verða:
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ráðstefnunnar: http://vefir.hi.is/vigdisconference2010/