Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fyrirlestra flytja:
Dr. Elina Druker, Stokkhólmsháskóla: Recent trends in Nordic Picture Books.
Dr. Sirke Happonen, Helsinkiháskóla: The Dancing Moominvalley: A Choreographic View on Tove Jansson's Art and Literature.
Pija Lindenbaum rithöfundur og myndskreytir: Barnperspektivet och sambandet mellan text och bild i mina böcker.
Að loknum fyrirlestrum (um kl. 15) verða pallborðsumræður á ensku undir stjórn Ragnheiðar Gestsdóttur með þátttöku Elinu Druker, Sirke Happonen og Þórarins Leifssonar.
Fyrirlestur Önnu Castagnoli verður á frönsku en túlkaður á ensku, fyrirlestrar Elinu Druker og Sirke Happonen verða á ensku og fyrirlestur Piju Lindenbaum á sænsku.
Sunnudaginn 25. apríl kl. 11 hefst dagskrá með opnun sýningar leikskólabarna í kjallara Norræna hússins. Fíasól kemur í heimsókn og Halldór Baldursson teiknar myndir af Fíusól og félögum.
Frá kl. 12 spjalla höfundar um verk sín og lesa fyrir börn og fullorðna í sal Norræna hússins.
Sven Nordqvist
Áslaug Jónsdóttir
Wolf Erlbruch
Svein Nyhus
Aino Havukainen og Sami Toivonen
Hlé
Lani Yamamoto
Julie Edel Hardenberg
Embla Ýr Bárudóttir og Ingólfur Örn Björgvinsson
Þórarinn Leifsson
Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir!
Fyrsta barna- og unglingabókmenntahátíðin sem kennd er við Vatnsmýrina var haldin í Reykjavík haustið 2001. Að henni stóðu Norræna húsíð, Síung (samtök barna- og unglingabókahöfunda), Rithöfundasamband Íslands, IBBY á Íslandi, Borgarbókasafn, norrænir sendikennarar við Háskóla Íslands og Kennaraháskóli Íslands. Hátíðin tókst mjög vel og fljótlega ákváðu þeir sem að henni stóðu að efna til annarrar hátíðar með það fyrir augum að barnabókmenntahátíð gæti orðið að tvíæringi - hátíð sem haldin yrði annað hvert ár og þá sem mótvægi við Alþjóðlega bókmenntahátíð í Reykjavík. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að hátíðin væri með alþjóðlegu sniði og boðið á hana höfundum og fræðimönnum frá Norðurlöndum, Englandi, Þýskalandi, Eystrasaltslöndum, Bandaríkjunum og Kananda.
Sú hefð hefur myndast að kenna hátíðina við Vatnsmýrina, þar sem Norræna húsið stendur, með mismunandi áherslum eða þemum:
2001 Köttur úti í mýri
2004 Galdur úti í mýri
2006 Krakkar úti í mýri
2008 Draugar úti í mýri
2010 Myndir úti í mýri
Hingað til hefur hátíðin verið haldin fjórum sinnum og undirbúningur fyrir fimmtu hátíðina hófst strax að lokinni hátíðinni 2008, en næsta hátíð er fyrirhuguð 21-27 apríl 2010. Þar verður lögð áherslu á myndefni í barna- og unglingabókmenntunum, jafnt myndskreyttar bækur, myndasögur og jafnvel kvikmyndir.
Samstarfsaðilar
Félagið sem stendur að hátíðinni heitir Mýrin. Eftirtaldar stofnanir og samtök mynda félagið: IBBY á Íslandi, SÍUNG (Samtök barna- og unglingabókahöfunda) Rithöfundasamband Íslands, Háskóli Íslands, Borgarbókasafn Reykjavíkur og Norræna húsið.
Um dagskrá hátíðarinnar almennt
Hátíðin byggist á fjölbreyttri dagskrá með þátttöku höfunda og fræðimanna, innlendra og erlendra. Meðal helstu atriða má nefna:
· höfundaheimsóknir í skóla og stofnanir
· upplestrar og kynningar í Norrræna húsinu
· fyrirlestrar höfunda og höfundaspjall
· fyrirlestrar bókmenntafræðinga
· sýningar og vinnustofur
· menningardagskrá í samræmi við þema
Myndir úti í mýri - apríl 2010
Það er von þeirra sem að Mýrinni standa að sú mikla vinna sem unnin hefur verið á síðastliðum níu árum og sú reynsla sem þar hefur skapast leiði til þess að hátíðin verði fastur liður í menningarlífi landsins.
Sækja: Fjöregg-Barnamenning-dagskrárbæklingur.

