Viðburðir Allt

Myndir úti í mýri

Alþjóðleg barnabókmenntahátíð í Reykjavík í apríl 2010

  • Wednesday 21. April 2010 - Tuesday 27. April 2010
Dagskráin: http://myrin.typepad.com/myrin/dagskr.html

Dagskrá í Norræna húsinu 24. og 25. apríl

Laugardaginn 24. apríl kl. 13.00 hefst fræðileg dagskrá um myndskreytingar og tengsl texta og mynda í barnabókum.

Fyrirlestra flytja:


Anna Castagnoli, myndskreytir: Le rapport texte et illustration: une excursion entre les différentes relations possibles entre images et paroles.

Dr. Elina Druker, Stokkhólmsháskóla: Recent trends in Nordic Picture Books.

Dr. Sirke Happonen, Helsinkiháskóla: The Dancing Moominvalley: A Choreographic View on Tove Jansson's Art and Literature.

Pija Lindenbaum rithöfundur og myndskreytir: Barnperspektivet och sambandet mellan text och bild i mina böcker.

Að loknum fyrirlestrum (um kl. 15) verða pallborðsumræður á ensku undir stjórn Ragnheiðar Gestsdóttur með þátttöku Elinu Druker, Sirke Happonen og Þórarins Leifssonar.

Fyrirlestur Önnu Castagnoli verður á frönsku en túlkaður á ensku, fyrirlestrar Elinu Druker og Sirke Happonen verða á ensku og fyrirlestur Piju Lindenbaum á sænsku.

Sunnudaginn 25. apríl kl. 11 hefst dagskrá með opnun sýningar leikskólabarna í kjallara Norræna hússins. Fíasól kemur í heimsókn og Halldór Baldursson teiknar myndir af Fíusól og félögum.

Frá kl. 12 spjalla höfundar um verk sín og lesa fyrir börn og fullorðna í sal Norræna hússins.

Sven Nordqvist

Áslaug Jónsdóttir

Wolf Erlbruch

Svein Nyhus

Aino Havukainen og Sami Toivonen

Hlé

Lani Yamamoto

Julie Edel Hardenberg

Embla Ýr Bárudóttir og Ingólfur Örn Björgvinsson

Þórarinn Leifsson


Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir!

Í tengslum við hátíðina verður sýning á verkum Wolfs Erlbruchs í Borgarbókasafninu frá 22. apríl í samstarfi við Goethe- stofnunina og sýning á verkum Önnu Castagnoli hjá Alliance Francaise frá 19.-25. apríl og í Bókasafni Kópavogs frá 26.apríl - 6. maí í samstarfi við Alliance Francaise. 

Um Myndir úti í mýri

Fimmta alþjóðlega barna- og unglinga-bókmenntahátíðin  sem  kennd er við Vatnsmýrina verður haldin í Norræna húsinu 21.-27. apríl 2010 undir yfirskriftinni: Myndir úti í mýri. Þema hátíðarinnar er myndskreyttar bækur fyrir börn og unglinga og tengsl texta og mynda í barna- og unglingabókmenntum. Gestir verða íslenskir og erlendir fræðimenn,rithöfundar og myndskreytar.

Krummi3webFyrsta barna- og unglingabókmenntahátíðin sem kennd er við Vatnsmýrina var haldin í Reykjavík haustið 2001. Að henni stóðu Norræna húsíð, Síung (samtök barna- og unglingabókahöfunda), Rithöfundasamband Íslands, IBBY á Íslandi, Borgarbókasafn, norrænir sendikennarar við Háskóla Íslands og Kennaraháskóli Íslands. Hátíðin tókst mjög vel og fljótlega ákváðu þeir sem að henni stóðu að efna til annarrar hátíðar með það fyrir augum að barnabókmenntahátíð gæti orðið að tvíæringi - hátíð sem haldin yrði annað hvert ár og þá sem mótvægi við Alþjóðlega bókmenntahátíð í Reykjavík. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að hátíðin væri með alþjóðlegu sniði og boðið á hana höfundum og fræðimönnum frá Norðurlöndum, Englandi, Þýskalandi, Eystrasaltslöndum, Bandaríkjunum og Kananda.

Sú hefð hefur myndast að kenna hátíðina við Vatnsmýrina, þar sem Norræna húsið stendur, með mismunandi áherslum eða þemum:

2001    Köttur úti í mýri
2004    Galdur úti í mýri
2006    Krakkar úti í mýri
2008    Draugar úti í mýri
2010    Myndir úti í mýri

Hingað til hefur hátíðin verið haldin fjórum sinnum og undirbúningur fyrir fimmtu hátíðina hófst strax að lokinni hátíðinni 2008, en næsta hátíð er  fyrirhuguð 21-27 apríl 2010. Þar verður lögð áherslu á myndefni í barna- og unglingabókmenntunum, jafnt myndskreyttar bækur, myndasögur og jafnvel kvikmyndir.

Samstarfsaðilar
Félagið sem stendur að hátíðinni heitir Mýrin. Eftirtaldar stofnanir og samtök mynda félagið: IBBY á Íslandi,  SÍUNG (Samtök barna- og unglingabókahöfunda) Rithöfundasamband Íslands, Háskóli Íslands, Borgarbókasafn Reykjavíkur og Norræna húsið.

Um dagskrá hátíðarinnar almennt

Krummi1webHátíðin byggist á fjölbreyttri dagskrá með þátttöku höfunda og fræðimanna, innlendra og erlendra. Meðal helstu atriða má nefna:

·    höfundaheimsóknir í skóla og stofnanir
·    upplestrar og kynningar í Norrræna húsinu
·    fyrirlestrar höfunda og höfundaspjall
·    fyrirlestrar bókmenntafræðinga
·    sýningar og vinnustofur
·    menningardagskrá í samræmi við þema


  Myndir úti í mýri - apríl 2010

Það er von þeirra sem að Mýrinni standa að sú mikla vinna sem unnin hefur verið á síðastliðum níu árum og sú reynsla sem þar hefur skapast leiði til þess að hátíðin verði fastur liður í menningarlífi landsins.


Sækja: Fjöregg-Barnamenning-dagskrárbæklingur.


fjoregg_logo_norraenaKrummi2web


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica