Viðburðir Allt

Útgáfutónleikar-Kjós

  • Thursday 8. April 2010 kl. 20.00
  • Ókeypis!

Finnsku þjóðlagatónlistarmennirnir, Matti Kallio og Roope Aarnio, halda útgáfutónleika plötunnar Kjós, 8.apríl n.k. kl. 20.00.

 

Nýverið kom út fyrsta plata þeirra, Kjós, og var hún tekin upp hér á Íslandi í hinni gullfallegu Reynivallakirkju, síðsumars árið 2009. Lagasmíðar þeirra eru allar í frumlegum þjóðlagastíl og spila þeir á harmonikku, munnhörpu og gítar.

 

Matti Kallio býr um þessar mundir í Reykjavík og hefur tekið þátt í fjölbreyttum tónlistartengdum verkefnum. Hann er jafnvígur á flest hljóðfæri s.s. piano, harmoníku og flautu. Kallio er meðlimur í bestu heimstónlistarsveit Finnlands, Värttinä. Hann hefur einnig samið tónlist fyrir Borgarleikhúsið.

 

Roope Aarnio er einn af eftirsóttustu þjóðlagaspilurum Finnlands. Hann er sérfræðingur í strengjahljóðfærum og spilar á gítar, bouzouki og mandólín. Aarnio hefur túrað um heiminn með Norrænu þjóðlagasveitinni, Frigg, og harmoníkusnillingnum Johönnu Juhola.

 

Frítt er inn á tónleikana en hægt verður að kaupa plötuna, Kjós á staðnum fyrir sanngjarnt verð (munið reiðufé).

www.facebook.com/kallioaarnio


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica