Viðburðir Allt

Málað með skærum-sýning 10.júlí -15.ágúst

  • Saturday 10. July 2010 - Sunday 15. August 2010

Með skærin sem pensil - Opnun kl. 16:00 10.júlí. Listakonan Karen Bit Vejle opnar sýninguna.

 

Karen_Bit_Vejle02_web-2

Málað með skærum

Á sýningunni ,,Málað með skærum” í Norræna húsinu getur að líta klippilist í sérstökum gæðaflokki eftir listakonuna Karen Bit Vejle. Karen er einn fremsti klippilistamaður Norðurlanda og setja verk hennar klippilist í nýtt samhengi en verkin klippir hún út af stakri nákvæmni og listfengi. Á sýningunni býr hún til heim uppfullan af táknum og munstrum sem sum eru innblásin af tónlist en önnur koma úr náttúrunni.

 

Á sýningunni má sjá ævintýralega stór og óvenjuleg klippiverk sem eru langt frá því sem venjulega flokkast undir úrklippur og klippiverk.

 

Karen Bit Vejle er ein fárra listamanna í Evrópu sem kallast psaligrafer en það eru listamenn sem mála eða teikna með skærum. Karen Bit heillaðist af þessu listformi 16 ára gömul þegar hún sá mann í Tívolíinu í Kaupmannahöfn klippa út munstur og fígúrur. Síðan hefur hún ekki sleppt skærunum.

 

Á 35 ára ferli hafa klippiverk Karenar tekið á sig ýmsar myndir, allt frá smágerðum, einföldum verkum upp í gríðarstór og flókin myndræn klippiverk. Hún hefur þróað með sér sérstaka tækni og stíl og er ein fárra á Norðurlöndum sem vinna klippiverk af þessum gæðaflokki. Miðað við hversu flókin verk hennar eru og rík af smáatriðum er ótrúlegt til þess að hugsa að hvert og eitt verk er aðeins klippt út í eina samfellda pappírsörk.

 

Samfellt úrklippuævintýri

malad-med-skaerumSíðan 1985 hefur Karen búið og starfað í Þrándheimi. Hún hafði farið leynt með klippiverk sín í 35 ár en samstarfsmaður hennar sem sá verkin fyrir tilviljun hvatti hana til að sýna þau opinberlega. Í kjölfarið setti Karen upp sýninguna ,,Málað með skærum” í Noregi og var aðsóknin að henni gríðarleg.

 

Áður en klippiverk hennar uppgvötuðust hafði hana ekki dreymt um að verkin gætu vakið áhuga annarra.  Vendipunktur varð í lífi Karen þegar hún greindist með króníska síþreytu árið 2006 og hafði það bæði áhrif á hana sjálfa og list hennar.

 

Sýningin ”Málað með skærum” samanstendur af 75 verkum ásamt smiðju fyrir börn og fullorðna, Klippiverkin eru staðsett víða um salina og hægt að njóta þeirra frá öllum hliðum.

Stærsta verkið er 5m x 1,20m og er innblásið af ópus 8 eftir Shostakovitsj. Ásamt klippiverkum er á sýningunni einnig að finna ýmsa muni með munstrum úr verkum Karenar, má þar nefna skírnarteppi hannað fyrir Dómkirkjuna í Niðarósi, teppi frá textílframleiðandanum Rørås Tweed og postulín sem Bit teiknaði munstur á frá

Porsgrunds Porcelænsfabrik AS.


Styrkur frá Norræna menningarsjóðnum

,,Málað með skærum” er styrkt af Norræna menningarsjóðnum og ferðast sýningin um Norðurlöndin til 2012. Sýningin kemur hingað til lands frá Nýlistasafninu í Álaborg en var þar áður í Húsi H.C. Andersen í Óðinsvéum. Sýningin fer héðan tilTampere og Helsinki í  Finnlandi.


Gallerí í Kaupmannahöfn

Ekki má afrita verk Karenar Bit Vejle, en Karen vinnur og sýnir við fyrsta Klippiverkagallerí í Kaupmannahöfn Glasseriet ApS – Glaspusteri & Galleri (www.glasseriet.dk). Nánar um Karen Bit Vejle på: www.papercutart.no


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica