Beint í leiðarkerfi vefsins.
Facing the Climate /
Sýning sem tekst á við loftlagsbreytingarnar frá skoplegu sjónarhorni.
Hópur 25 sænskra skopmyndateiknara komu með húmoríska en jafnframt ógnvekjandi sýn á loftlagsbreytingarnar í tilefni af loftlagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn í desember 2009.
Myndirnar verða til sýnis í Norræna húsinu 11. september til 3. október. Teikningarnar undirstrika vilja Svíþjóðar til að takast á við þann mikla umhverfisvanda sem við stöndum frammi fyrir. The Swedish Institute á frumkvæði að sýningunni og er henni ætlað að vekja athygli á sjálfbærri þróun.
Skopmyndateiknararnir sem taka þátt í sýningunni eru: Magnus Bard, Riber Hansson, Helena Lindholm, Love Antell and Karin Sunvisson. Myndir þeirra, sem oft eru umdeildar, birtast reglulega í sænskum og alþjóðlegum dagblöðum og tímaritum.